Stjórnvöld reikna með að bólusetning verði langt komin í lok júní

Heil­brigð­is­yf­ir­völd gera ráð fyrir því að hægt verði að bólu­setja tæp­lega 190.000 ein­stak­linga hér á landi fyrir lok júní næst­kom­andi með bólu­efnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna.

Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólu­setja tæp­lega 190.000 ein­stak­linga hér á landi fyrir lok júní næst­kom­andi með bólu­efnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með mark­aðs­leyfi og komin í notkun hér á landi. Þetta er mun meira en áður var vænst.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Þar segir að mestu muni ann­ars vegar um nýjan samn­ing Evr­ópu­sam­bands­ins við Pfizer sem tryggir Íslandi bólu­efni fyrir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum árs­fjórð­ungi, til við­bótar fyrri samn­ingum. Gert er ráð fyrir að Ísland und­ir­riti samn­ing um aukið magn bólu­efna frá Pfizer á grund­velli nýs samn­ings Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir lok þess­arar viku.

Hins vegar muni aukin fram­leiðslu­geta AstraZeneca hafa áhrif. Alls verði rúm­lega 280.000 ein­stak­lingum boðin bólu­setn­ing hér á landi, það er öllum sem eru 16 ára og eldri. Vænta megi bólu­efna frá fleiri lyfja­fram­leið­endum á öðrum árs­fjórð­ungi að því gefnu að þeim verði veitt mark­aðs­leyfi á næst­unni eins og að sé stefnt.

[adspot]

Sóttvarnalæknir vinnur að gerð bólusetningardagatals

„Gert er ráð fyrir að Evrópska lyfja­stofn­unin leggi mat á bólu­efni Janssen og Curevac innan skamms en mat hennar er for­senda mark­aðs­leyfis. Áætlað er að afhend­ing þess­ara bólu­efna geti haf­ist á öðrum fjórð­ungi árs­ins en ekki liggja fyrir stað­festar upp­lýs­ingar frá fram­leið­end­unum um magn. Að auki er fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins að leggja loka­hönd á samn­ing um kaup á bólu­efni frá Novavax sem Ísland getur fengið hlut­deild í á sömu for­sendum og gilt hafa um aðra samn­inga Evr­ópu­sam­starfs­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Jafn­framt kemur fram að sótt­varna­læknir vinni að gerð bólu­setn­ing­ar­daga­tals á grund­velli fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­inga um afhend­ingu bólu­efna á næstu mán­uðum. Þar verði birtar upp­lýs­ingar um for­gangs­hópa og hvenær ein­stak­lingar í hverjum hópi geti vænst þess að fá boð um bólu­setn­ingu. „Þessum upp­lýs­ingum er fyrst og fremst ætlað að veita fólki grófar upp­lýs­ingar um fram­vindu bólu­setn­inga gegn COVID-19 hér á landi. Upp­lýs­ing­arnar verða birtar með fyr­ir­vara um mögu­legar breyt­ingar á áætl­unum um afhend­ingu bólu­efna. Benda má á bólu­setn­ing­ar­daga­tal líkt og hér um ræðir sem birt hefur verið á vef Sund­heds­styrel­sen, sem er dönsk syst­ur­stofnun emb­ættis land­læknis og einnig sam­bæri­legt daga­tal á vef syst­ur­stofnun emb­ættis land­læknis í Noregi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár