Langt frá hjarðónæmi í marslok

Ekki er útlit fyrir því að hjarð­ó­næmi náist í lok mars, líkt og stjórn­völd stefndu að í síð­asta mán­uði. Jafnvel þótt allir skammt­arnir frá AstraZeneca fengjust á næstu vikum myndi enn vanta bólu­efni fyrir 80 þús­und manns til að ná mark­mið­inu.

Upprunalegu vonir heilbrigðisráðuneytisins um að bólusetja flesta fyrir marslok virðast ekki ætla að ganga upp.
Upp­runa­legu vonir heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um að bólu­setja flesta fyrir mars­lok virð­ast ekki ætla að ganga upp. Mynd: EPA

Stjórn­völd, sem von­uð­ust áður til þess að ná hjarð­ó­næmi gegn COVID-19 hér­lendis fyrir mars­lok, hafa ein­ungis tryggt 13 pró­sent af bólu­efna­skömmt­unum sem þyrftu til að það næð­ist. Ísland væri enn langt frá því að ná hjarð­ó­næmi á fyrsta árs­fjórð­ungi þótt allir skammtar Oxford-bólu­efn­is­ins kæmu hingað til lands fyrir mars­lok.

225 þúsund bólusettir til að ná hjarðónæmi

Líkt og Kjarninn greindi frá til­kynnti heil­brigð­is­ráðu­neytið í byrjun des­em­ber að gera mætti ráð fyrir að bólu­setn­ingar hefð­ust um síð­ustu ára­mót. Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að ráðu­neytið von­að­ist til þess að mark­miðum bólu­setn­ingar yrði náð á fyrsta fjórð­ungi þessa árs, þ.e. að 75 pró­sent lands­manna sem fæddir eru eftir 2005 verði bólu­settir. Til þess að hjarð­ó­næmi næð­ist hér á landi þyrfti því að bólu­setja um 225 þús­und manns.

Tæpum tveimur vikum seinna, þann 15. des­em­ber, birti svo ráðu­neytið fyrstu töl­urnar úr dreif­ing­ar­á­ætlun Pfizer. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir bólu­efni fyrir tæp­lega 14 þús­und manns í jan­úar og febr­úar á þessu ári, þ.e. ein­ungis rúm sex pró­sent af magn­inu sem þarf til þess að ná hjarð­ó­næmi. Í til­kynn­ingu sinni sagði ráðu­neytið að hrá­efn­is­skortur ylli því að áætlun Pfizer hafi raskast, en ekki er vitað hvernig upp­haf­lega áætl­unin hljóm­aði.

Á gaml­árs­dag barst svo enn önnur til­kynn­ing frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu þar sem því var haldið fram þar sem að minnsta kosti 50 þús­und skammtar myndu ber­ast til lands­ins frá Pfizer fyrir mars­lok, en þeir gætu dugað fyrir 25 þús­und manns.

Á upp­lys­inga­fundi almanna­varna sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir svo að Ísland myndi fá 10 þús­und skammta frá bólu­efna­fram­leið­and­anum Moderna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, líkt og RÚV greindi frá. Með þessu væri hægt að bólu­setja fimm þús­und manns og því mætti gera ráð fyrir að 30 þús­und manns yrðu bólu­sett á fyrsta árs­fjórð­ungi.

Líkt og sést á mynd hér að ofan er fyr­ir­hug­aður fjöldi bólu­settra á fyrsta árs­fjórð­ungi langtum minni en yfir­völd von­uðu upp­haf­lega, en 30 þús­und eru ein­ungis 13 pró­sent af þeim fjölda sem þyrfti að vera bólu­settur til að hjarð­ó­næmi næð­ist hér á landi.

Oxford-bóluefnið væntanlegt, en ekki nóg

Þessa stund­ina hefur Lyfja­stofnun ein­ungis sam­þykkt bólu­efni frá Pfizer og Moderna, en stjórn­völd búast þó við að afhend­ing þriðja bólu­efn­is­ins frá AstraZeneca, sem einnig er kallað Oxford-bólu­efnið, muni hefj­ast á þessum árs­fjórð­ungi. Lyfja­stofnun hefur hingað til fylgt Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) eftir í leyf­is­veit­ingu, en líkt og mbl.is greindi frá í gær gæti sú stofnun veitt mark­aðs­leyfi fyrir Oxford-bólu­efn­inu þann 29. jan­úar.

Ísland hefur tryggt sér kaup á 230 þús­und skömmtum á bólu­efn­inu, sem myndu duga fyrir 115 þús­und manns. Ef allir þessir skammtar myndu ber­ast til lands­ins fyrir mars­lok væri þá hægt að bólu­setja 145 þús­und manns, að með­töldum bólu­setn­ing­unum frá Pfizer og Moderna. Því myndi enn vanta bólu­efni fyrir 80 þús­und manns til þess að hjarð­ó­næmi hér á landi á fyrsta árs­fjórð­ungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár