Stjórnvöld vona að hjarðónæmi verði náð á fyrsta ársfjórðungi

Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu segir að vonir standi til þess að mark­miðum bólu­setn­ingar verði náð á fyrsta árs­fjórð­ungi. Búið er að ná sam­komu­lagi um bólu­efni fyrir 200.000 manns, en ólík­legt er að það komi allt til lands­ins á sama tíma.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk stjórn­völd segja að gera megi ráð fyrir því að bólu­setn­ing gegn COVID-19 hefj­ist fljót­lega eftir ára­mót og að mark­miðum bólu­setn­ingar verði von­andi náð strax á fyrsta árs­fjórð­ungi, en mark­miðið er að ná hjarð­ó­næmi sem hindrar frek­ari útbreiðslu far­ald­urs.[links]

„Til að ná hjarð­ó­næmi er gert ráð fyrir að bólu­setja þurfi a.m.k. helm­ing þjóð­ar­innar. Hér er gert ráð fyrir að um 75% lands­manna verði bólu­settir,“ segir í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu sem send var út skömmu fyrir hádegi.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir hvatti lands­menn til raun­hæfrar bjart­sýni varð­andi tíma­setn­ingu bólu­setn­ingar við COVID-19 hér á landi á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í morgun og minnti á að mik­il­vægt væri að við­hafa áfram sótt­varnir sem stund­aðar hafa verið þar til stór hluti þjóð­ar­innar hefði verið bólu­settur.

Þegar búið að tryggja bóluefni fyrir 200.000 manns

Í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins segir frá því að skrifað verði undir samn­ing um kaup Íslands á bólu­efni Pfizer í næstu viku og að það bólu­efni muni duga fyrir 85 þús­und ein­stak­linga. Einnig hafi Ísland þegar gert samn­ing um kaup á bólu­efni AstraZeneca, sem dugar fyrir 115 þús­und ein­stak­linga.

[adspot]

Lyfja­stofnun Evrópu er með umsóknir þess­ara tveggja fram­leið­enda um skil­yrt mark­aðs­leyfi til með­ferðar þessa dag­ana. Von er á nið­ur­stöðu um bólu­efni Pfizer 29. des­em­ber og um bólu­efni AstraZeneca í jan­úar.

Þann 12. jan­úar fjallar Lyfja­stofnun Evrópu svo um mark­aðs­leyfi fyrir bólu­efnið frá Moderna, en fyrir liggja drög að samn­ingi Íslands um kaup að því bólu­efni og einnig bólu­efni sem Johnson & Johnson er að þróa og minni fregnir hafa borist af en hinum þremur.

„Gera má ráð fyrir að fljót­lega eftir að mark­aðs­leyfi fæst fyrir bólu­efni frá fyr­ir­tæki sem Ísland er með beinan samn­ing við, verði fyrstu skammtar fluttir til lands­ins. Það er þó fyr­ir­séð að bólu­efni sem fá mark­aðs­leyfi verði deilt milli ríkja og komi því í tak­mörk­uðu magni til að byrja með, þ.e. að ekki komi allt það magn sem samið hefur verið um í einu lagi,“ segir í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

Þar segir einnig að bólu­setja þurfi fólk tvisvar og að gert sé ráð fyrir að bólu­sett verði með tveggja til þriggja vikna milli­bili. Eftir það líði allt að mán­uður þar til við­kom­andi ein­stak­lingur sé kom­inn með mótefna­svar, en það geti verið mis­jafnt eftir bólu­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár