Þórólfur: Ekki hægt að ganga að því vísu að bólusetning hefjist fljótlega eftir áramót

Sótt­varna­læknir hvetur til raun­hæfrar bjart­sýni þegar kemur að tíma­setn­ingu bólu­setn­ingar við COVID-19 á Íslandi. Það megi ekki láta jákvæðar fréttir leiða til þess að lands­menn passi sig ekki í sótt­vörnum.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hvetur til raun­hæfrar bjart­sýni hvað varðar tíma­setn­ingu bólu­setn­ingar við COVID-19 hér á landi.

Hann segir að Lyfja­stofnun Evrópu eigi enn eftir að gefa út sam­þykkt sína á bólu­efni Pfizer/BioNTech þannig að það geta farið í almenna notkun. Búist sé við því að það ger­ist í lok árs og ef nið­ur­staðan verður jákvæð væri hægt að hefja bólu­setn­ingar fljót­lega eftir ára­mót. „Auðvitað verða það ánægju­legar fréttir ef svo verður en ég held að það sé ekki hægt að ganga út frá því sem vísu á þess­ari stundu. Hvað varðar önnur bólu­efni sem við höfum rétt á að fá þá mun taka lengri tíma að fá úttekt og nið­ur­stöðu lyfja­stofn­unar Evrópu og þá enn lengri tíma að fá bólu­efni hingað til lands.“

Þórólfur segir því mik­il­vægt að við­hafa áfram þær sótt­varnir sem stund­aðar hafa verið hér­lendis í far­aldr­inum þar til að stór hluti þjóð­ar­innar hefur verið bólu­settur. „Ég vil einnig minna á að áhrif bólu­setn­ingar hjá ein­stak­lingum sjást ekki fyrr en um einum mán­uði eftir að fyrsti skammtur hefur verið gef­inn. Pössum okkur þannig á því að láta ekki jákvæðar fréttir af bólu­efnum leiða til þess að við hættum að passa okkur í sótt­vörnum, því það mun ein­ungis leiða til upp­sveiflu í far­aldr­inum aftur. Höldum út, stöndum saman og pössum upp á grund­vall­ar­at­riði sótt­varna.“

Þetta kom fram í máli Þórólfs á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. 

Sagði raunhæft að bólusetja í janúar

Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­unar Íslands, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi að raun­hæft væri að hefja bólu­setn­ingar hér­lendis í jan­úar. „Það er mjög raun­hæft að það verði í jan­úar. En það er ekki auð­velt um það að segja. Við komum ekki að inn­kaupum að bólu­efn­inu eða flutn­ingnum til lands­ins,“ sagði Rúna. Gert væri ráð fyrir að bólu­efnið sem Ísland er búið að semja um aðgengi að komi hingað til lands í einu lagi.

Greint var frá því í gær að lyfja­eft­ir­lit Bret­lands hefði lagt blessun sína yfir bólu­efni Pfizer/BioNTech og að dreif­ing á því gæti haf­ist þar í landi strax í næstu viku. Bretar hafa þegar pantað um 40 millj­ónir skammta af bólu­efni sem duga til að bólu­setja um 20 milljón manns.

Þórólfur sagði á fund­inum í dag að það væri mjög áhuga­vert að Bretar hefðu farið sjálfir af stað í þessa veg­ferð og að það væri ábyrgð­ar­hluti að segja að bólu­efnið væri virkt og öruggt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár