Þörf á „þriðju sprautunni“ líkleg innan árs

Bólu­efna­fram­leið­endur telja lík­legt að end­ur­bólu­setja þurfi fólk innan við ári eftir að það hefur fengið fyrstu skammta. Árleg bólu­setn­ing gegn COVID-19 er „lík­leg sviðs­mynd“.

Það er líklegt að bólusetja þurfi árlega gegn COVID-19, segja framleiðendur bóluefnanna.
Það er lík­legt að bólu­setja þurfi árlega gegn COVID-19, segja fram­leið­endur bólu­efn­anna. Mynd: EPA

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum eru þegar farin að huga að und­ir­bún­ingi þess að gefa þurfi „búst“ á bólu­setn­ingu gegn COVID-19 um 9-12 mán­uðum eftir fyrstu bólu­setn­ingu. Slíkt er ekki óal­gengt þegar bólu­setn­ingar eru ann­ars vegar og kenn­ing um að þess gæti gerst þörf í tengslum við bólu­setn­ingu gegn COVID-19 hefur verið til staðar frá upp­hafi.

[links]Enn er verið að rann­saka hversu lengi vörn bólu­efn­anna gegn sýk­ingu af kór­ónu­veirunni varir sem skilj­an­lega fæst ekki að fullu stað­fest nema með tím­anum. David Kessler, helsti vís­inda­ráð­gjafi Joes Bidens Banda­ríkja­for­seta sagði á fundi þing­nefndar í gær­kvöldi að mögu­lega verði þörf fyrir end­ur­bólu­setn­ingu til að efla ónæmi gegn veirunni enn frekar. „Ég held að við ættum að búa okkur undir að það gæti orðið þörf á end­ur­bólu­setn­ingu,“ sagði hann á fundi nefnd­ar­innar.

Margir vís­inda­menn hafa sagt að ein bólu­setn­ing gegn COVID-19 muni ekki duga til varnar veirunni til lengri tíma. Þetta hafa íslenskir vís­inda­menn m.a. sagt.

Umræðan hefur þó orðið kraft­meiri síð­ustu daga. Albert Bourla, for­stjóri lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer, sagði í gær að „lík­lega“ þurfi þriðja skammt­inn af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins, sem unnið er í sam­starfi við þýska líf­tækni­fyr­ir­tækið BioNtech, innan við ár frá fyrstu skömmt­unum tveimur. Hann telur einnig lík­legt að árlegrar bólu­setn­ingar við COVID-19 gæti svo reynst þörf í fram­hald­inu. „Líkleg sviðs­mynd“ er að sögn Bourla sú að þriðja skammt­inn þurfi að gefa á bil­inu 6-12 mán­uðum eftir fyrstu tvo.

[adspot]

Bourla nefndi sem dæmi að bólu­efni gegn mænu­sótt þyrfti aðeins að gefa einu sinni á ævinni en aðra sögu væri að segja um t.d. bólu­efni gegn inflú­ensu. „Kór­ónu­veiran sem veldur COVID-19 lík­ist meira inflú­ensu­veiru en mænu­sótt­ar­veiru.“

Kessler, sem er læknir að mennt, segir þetta til skoð­unar og þætti á borð við ný afbrigði veirunnar og virkni bólu­efna gegn þeim þurfi að meta sér­stak­lega.

Lyfja­fyr­ir­tækið Moderna er einnig að vinna að efni til end­ur­bólu­setn­ingar og Johnson & Johnson sagði nýverið að líkur væru á því að gefa þyrfti bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins árlega.

Kessler segir að bólu­efnin sem nú séu gefin vest­an­hafs séu áhrifa­rík, einnig gegn nýjum afbrigðum veirunnar sem þegar hafa komið fram. Hins vegar þurfi að fara að huga að þróun „næstu kyn­slóðar“ bólu­efna sem beint verður sér­stak­lega gegn nýjum afbrigðum.

Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna hefur ákveðið að lyfja­fyr­ir­tækin sem þegar hafa fengið skil­yrt mark­aðs­leyfi fyrir bólu­efni sín í land­inu, þurfi ekki að fara aftur í gegnum tíma­frekar þriðju fasa rann­sóknir með bólu­efnin sem verður breytt lít­il­lega til að verj­ast betur nýjum afbrigðum.

Yfir 125 millj­ónir manna hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efnum gegn COVID-19 í Banda­ríkj­unum. Um 78 millj­ónir eru full­bólu­settir.

Lyfja­fyr­ir­tækið Moderna greindi frá því í vik­unni að virkni bólu­efnis þess sé enn góð sex mán­uðum eftir bólu­setn­ingu. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Stéphane Bancel, sagð­ist binda vonir við að „þriðja sprautan“ yrði til­búin til notk­unar í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár