Segir það leið til breytinga kjósi sjóðfélagar lífeyrissjóða stjórnir þeirra beint

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, svarar leið­ara rit­stjóra Frétta­blaðs­ins og segir að þegar slag­ur­inn sé tek­inn við valda­mikil öfl í íslensku sam­fé­lagi þá þurfi að búa sig undir að hart sé sótt að manni af „gæslu­mönnum sér­hags­muna­afla“.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Hringbraut

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að lík­lega sé það eina leiðin til raun­veru­legra breyt­inga að sjóð­fé­lagar líf­eyris­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint. Þannig væri hægt að aftengja atvinnu­lífið og verka­lýðs­hreyf­ing­una sem hann segir að sé í ákveð­inni mót­sögn við sjálfa sig sem fjár­magns­eig­anda. Ragnar fjallar um við­brögð „gæslu­manna sér­hags­muna­afla“ við þeirri ákvörðun VR að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í stöðu­færslu á Facebook í dag.

Svarar leiðara ritstjóra Fréttablaðsins

[links]Á fundi sem hald­inn var í full­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­sjóð­i verzlunarmanna ­í júní síð­ast­liðnum var sam­­­­þykkt að aft­­­­ur­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­ar­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­sjóðs verzlunarmanna og var að auki sam­­­­þykkt til­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­ar­­­­menn til­­ bráða­birgða. Áður­­ hafði stjórn­­ VR­­ lýst yfir trún­­­­að­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­ar­­­­mönnum félags­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­legra vaxta verð­­­­tryggðra sjóð­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­lækk­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­samn­ing­i. Fjár­mála­eft­ir­lit­ið hefur þessa ákvörð­un­ina VR til skoð­unar og mun meðal ann­ars skoða hvernig málið sé vaxið og hvort farið hafi verið eftir lögum. VR hefur hins vegar lýst því yfir að þessi aðgerð félags­ins sé full­kom­lega lög­leg.

Í leið­ara Davíðs Stef­áns­sonar, rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag segir að átak­an­legt hafi verið að fylgj­ast með þeirri hörðu valda­bar­áttu sem upp sé komin innan VR. „For­maður þess vill að full­trúar fé­lags­ins í stjórn Líf­eyris­sjóðs verzlunarmanna hlýði hans fyrir­skip­unum,“ ritar Davíð og spyr hvaða hags­munum það þjóni að ráð­ast gegn full­trúum fé­lags­ins í stjórn Líf­eyris­sjóði Versl­unar­manna.

„Ef við látum það líð­ast að for­menn verka­lýðs­fé­laga geti beitt á­hrifum sínum til þess að sjóð­irnir fari að þjóna duttl­ungum þeirra og póli­tískum hags­munum, þá er mikil­væg for­senda vel­ferðar okkar í hættu,“ segir Davíð. 

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, svarar leið­ara Davíðs í stöðu­færslu á Facebook í dag og segir það ekki stand­ast að full­trúar í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna gangi erinda hans. „Í full­trúa­ráði VR í Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna eru 25 full­trúar. Trúir því virki­lega ein­hver að 20 full­trúar af 24 sem mættu á fund­inn, og aft­ur­köll­uðu umboð stjórn­ar­manna okkar í LIVE, séu undir boð­valdi for­manns VR?,“ skrifar Ragnar Þór.

Hann segir jafn­framt að það sé ekk­ert í lögum sem banni sér og stjórn VR að skipta út stjórnar­mönnum í Líf­eyris­sjóðum. Hann bendir á að stjórnar­menn í LIVE séu ekki kosnir á aðal­fundi heldur skip­aður af þeim aðilum sem að sjóðnum standa. „Ég treysti því fólki, sem full­trúa­ráðið valdi, full­kom­lega til að taka mál­efna­lega og sjálf­stæða afstöðu í þeim málum sem kunna að koma á borð stjórn­ar­innar fram að þeim tíma.“

Skerðir lífskjör allra sjóðfélaga

Ragnar segir jafn­framt að hátt vaxta­skil skili sér í hærri fjár­magns­kostn­aði ein­stak­linga og fyrir­tækja og því lægri kaup­mætti, hærra vöru­verði, hærri húsa­leigu og hærri af­borg­unum hús­næðis­lána. Einnig dragi háir vextir getu at­vinnu­lífs­ins til að standa undir launa­hækk­unum og fjölgun starfa. „Þannig skerðir hátt vaxta­stig og vaxta­hækkun lífs­kjör þeirra 170 þús­und sjóð­fé­laga í Líf­eyris­sjóði versl­unar­manna. Ekki bara þeirra 3.700 sem tóku verð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum.“

Að lokum segir Ragnar að lík­lega sé eina leiðin til raun­veru­legra breyt­inga að sjóð­fé­lagar líf­eyris­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint en hann bendir á að sjóð­fé­lögum sé treystandi til að kjósa um nán­ast allt annað. „Líklega er eina leiðin til raun­veru­legra breyt­inga að sjóð­fé­lagar líf­eyr­is­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint og aftengjum þannig atvinnu­lífið og verka­lýðs­hreyf­ing­una, sem er í ákveð­inni mót­sögn við sjálfa sig sem fjár­magns­eig­andi. Til þess þarf ein­falda laga­breyt­ingu. Okkur er jú treystandi til að kjósa um nán­ast allt annað,“ segir Ragnar

Stimplar sig í hóp þeirra lobbíista sem allir sjá í gegnum

Enn­fremur fjallar Ragnar um við­brögð „gæslu­manna sér­hags­muna­afla“ og segir þau vera mæli­kvarði á hversu miklir hags­munir séu í húfi. „Þegar þú tekur slag­inn við valda­mikil öfl í íslensku sam­fé­lagi þarftu að búa þig undir að hart sé að þér sótt af gæslu­mönnum sér­hags­muna­afla sem makað hafa krók­inn á því valda­ó­jafn­vægi sem þrífst í okkar sam­fé­lagi. Áróð­ur­inn er mis­harður en mæli­kvarði á hversu miklir hags­munir eru í húfi hverju sinni. Mál­efna­leg rök virð­ast engu máli skipta heldur það eitt að lobbí­ist­arnir tali í sömu átt­ina í þeirri von um að fólkið trúi lyg­inni sé hún sögð nægi­lega oft úr sem flestum hornum sér­hags­muna. Ég hef sjaldan orðið vitni að eins hörðum við­brögðum og per­sónu­legum árásum við nokkru sem ég hef tekið þátt í að gera. Sem þýðir að við erum á hár­réttri leið.“

Að lokum óskar hann nýjum rit­stjóra Frétta­blaðs­ins til ham­ingju með nýja starfið og fyrir að „stimpla sig ræki­lega í hóp þeirra lobbí­ista sem allir sjá í gegnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár