FME telur afturköllun á tilnefningu stjórnarmanna sjóða vega að sjálfstæði stjórna þeirra

Fjár­mála­eft­ir­litið segir að aft­ur­köllun á til­nefn­ingu stjórn­ar­manna sjóða, sem byggi á ósætti til­nefn­ing­ar­að­ila við ein­stakar ákvarð­anir stjórnar, geti talist til­raun til beinnar íhlut­unar í stjórnun líf­eyr­is­sjóða.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur beint því með dreifi­bréfi til stjórna líf­eyr­is­sjóða að taka sam­þykktir sínar til skoð­unar með það að leið­ar­ljósi að skýra hvort og þá við hvaða aðstæður sé mögu­legt að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna sem kjörnir/til­nefndir hafa verið, að því er kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

[links]Greint var frá því í síð­ustu viku að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði til skoð­unar þá ákvörðun VR að draga til baka umboð stjórn­ar­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna. Í til­kynn­ingu FME ,sem birt var í dag, segir að aft­ur­köllun „á til­nefn­ingu stjórn­ar­manna sjóða sem byggir á ósætti til­nefn­ing­ar­að­ila við ein­stakar ákvarð­anir stjórnar getur talist til­raun til beinnar íhlut­unar í stjórnun líf­eyr­is­sjóða, sem með óbeinum hætti færir ákvörð­un­ar­vald frá stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins. Slíkt vegur að sjálf­stæði stjórnar og gengur í ber­högg við almenn sjón­ar­mið um góða stjórn­ar­hætti.“

[adspot]Auk þess kemur fram í til­kynn­ing­unni að sam­kvæmt lögum um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða skuli meðal ann­ars kveða á um hvernig vali stjórn­ar­manna líf­eyr­is­sjóðs­ins og kjör­tíma­bili þeirra skuli háttað. Hins vegar sé ekki frekar kveðið á um hvernig að til­nefn­ingu eða kjöri skuli staðið eða hvort aft­ur­köllun sé heimil.

Enn fremur segir Fjár­mála­eft­ir­litið að val stjórn­ar­manna fari eftir ákvæðum í sam­þykktum líf­eyr­is­sjóða sem séu þó „almennt hljóðar um hvort og þá við hvaða aðstæður umboð stjórn­ar­manna verði aft­ur­kallað. Óskýrar sam­þykktir hvað þetta varðar gera ferli við val og mögu­lega aft­ur­köllun á umboði stjórn­ar­manna ógagn­sætt.“

Tryggja verður sjálfstæði stjórna lífeyrissjóða

„Góðir stjórn­ar­hættir eru mik­il­vægir í starf­semi líf­eyr­is­sjóða og er víða fjallað um þá m.a. í lögum um um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða sam­þykktum, starfs­reglum stjórna og stjórn­ar­hátt­ar­yf­ir­lýs­ingum margra íslenskra líf­eyr­is­sjóða,“ segir einnig í til­kynn­ing­unni.

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að í ljósi fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farna daga, mis­mun­andi aðferða við val á stjórn­ar­mönnum milli sjóða og til að koma í veg fyrir óvissu til fram­tíðar, þá beini Fjár­mála­eft­ir­litið því til stjórna líf­eyr­is­sjóða að taka sam­þykktir sínar til skoð­unar varð­andi hvort og þá við hvaða aðstæður umboð stjórn­ar­manna verði aft­ur­kallað. Að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sé við skoð­un­ina jafn­framt nauð­syn­legt að taka mið af góðum stjórn­ar­háttum og tryggja að sjálf­stæði stjórna líf­eyr­is­sjóða verði ekki skert.

Umboð stjórnarmanna VR afturkallað

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­sjóð­i verzl­un­ar­manna ­í júní síð­ast­liðnum var sam­­­­­þykkt að aft­­­­­ur­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­sjóðs verzl­un­ar­manna og var að auki sam­­­­­þykkt til­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­menn til­­­ bráða­birgða. Áður­­­ hafði stjórn­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­að­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­mönnum félags­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­legra vaxta verð­­­­­tryggðra sjóð­­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­­lækk­­­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­­samn­ing­i. VR­ hefur lýst því yfir að þessi að­gerð félags­ins sé full­kom­lega lög­leg.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mað­ur­ VR, sagði í stöðu­færslu á Face­book fyrr í vik­unni að það væri ekk­ert í lögum sem banni sér og stjórn­ VR­ að skipta út stjórn­ar­­mönnum í líf­eyr­is­­­sjóð­um. Hann benti á að stjórn­ar­­menn í LIVE séu ekki kosnir á aðal­­fundi heldur skip­aður af þeim aðilum sem að sjóðnum standa. „Ég treysti því fólki, sem full­trúa­ráðið valdi, full­kom­lega til að taka mál­efna­lega og sjálf­stæða afstöðu í þeim málum sem kunna að koma á borð stjórn­ar­innar fram að þeim tíma.“

Hann sagði jafn­framt lík­lega væri það eina ­leiðin til raun­veru­­legra breyt­inga að sjóð­­fé­lagar líf­eyr­is­­­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint. Þannig væri hægt að aftengja atvinnu­lífið og verka­lýðs­hreyf­ing­una sem hann segir að sé í ákveð­inn­i ­mót­sögn við sjálfa sig sem fjár­magns­eig­anda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár