FME rannsakar lögmæti ákvörðunar VR

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur til skoð­unar þá ákvörðun VR að draga til baka umboð stjórn­ar­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna. FME hefur jafn­framt til­kynnt stjórn­ar­for­manni sjóðs­ins að hann sitji áfram þar til stjórn­ar­fundur VR hefur verið hald­inn.

Fjár­mála­eft­ir­litið, FME, hefur til skoð­unar þá ákvörðun VR að draga til baka umboð stjórn­ar­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna. Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri FME, segir í sam­tali við Frétta­blaðið í dag að eft­ir­litið muni rann­saka hvernig málið sé vaxið og hvort farið hafi verið eftir lögum, til að mynda hvort það séu rétt kjörnir stjórn­ar­menn sem taki ákvarð­anir. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur jafn­framt til­kynnt stjórn­ar­for­manni sjóðs­ins að eft­ir­litið telji að stjórn­ar­menn­irnir sitji áfram í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna þar til stjórn­ar­fundur VR hefur verið hald­inn.

Trúnaðarbrestur gagnvart stjórnarmönnum

[links]Á fundi sem hald­inn var í full­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­sjóð­i verzlunarmanna síð­ast­lið­inn fimmtu­dag var sam­­­þykkt að aft­­­ur­­­kalla umboð stjórn­­­­­ar­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­sjóðs verzlunarmanna og var að auki sam­­­þykkt til­­­laga um nýja stjórn­­­­­ar­­­menn til­ bráða­birgða. Áður­ hafði stjórn­ VR­ lýst yfir trún­­­að­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­ar­­­mönnum félags­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­legra vaxta verð­­­tryggðra sjóð­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­lækk­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­samn­ing­i.

Fjár­mála­eft­ir­litið birti á vef sínum þann 19. júní áminn­ingu í til­efni frétta um að stétt­ar­fé­lag hefði til skoð­unar að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna sem félagið hafði þegar til­nefnt í stjórn líf­eyr­is­sjóðs. Fjár­mála­eft­ir­litið benti því á þær kröfur sem gerðar eru til starf­semi líf­eyr­is­sjóða sam­kvæmt lög­um. Fjár­mála­eft­ir­litið telur að stjórn­ar­mönnum líf­eyr­is­sjóða sé óheim­ilt að beita sér fyrir því að líf­eyr­is­sjóð­i ­séu nýttir í öðrum til­gangi en þeim sem lýst er í lögum um starf­semi líf­eyr­is­sjóða.

Fullkomlega lögleg aðgerð

VR svar­aði í gær áminn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og sagði aðgerð­ina vera lög­lega. „Þessa sneið fáum við frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu vegna þeirr­ar ­full­kom­lega lög­legu aðgerðar okkar að draga umboð núver­andi stjórn­ar­manna okkar í Líf­eyr­is­sjóð­i verzlunarmanna til baka og skipa þar nýtt fólk eins og er okkar hlut­verk og ábyrgð,“ segir í svari VR.

„Þegar stjórn­ar­menn VR í líf­eyr­is­sjóðnum standa að ákvörðun sem gengur þvert gegn þess­ari sátt og mik­il­vægu stefn­u VR­ og hækkar vexti á íbúða­lán­um, þrátt fyrir að vextir á mark­aði hafa lækk­að, sit­ur VR­ ekki þög­ult hjá.“

Í svar­inu segir jafn­framt að Fjár­mála­eft­ir­lit­ið hljót­i að eiga að haga sínu eft­ir­liti þannig að hags­munir neyt­enda séu varð­ir. „Hvernig væri nú að Fjár­mála­eft­ir­litið sinnti þessum skyldum og gætti hags­muna lán­tak­enda eins og þeir gæta hags­muna fjár­magns­eig­enda?“

Í svari VR er jafn­framt tekið fram að stjórn­ar­menn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna eru og hafa verið skip­aðir af þeim aðilum sem að sjóðnum standa en ekki verið kosnir á árs­fundi eða á sjóðs­fé­lags­fundi.

Eiga einungis að starfa eftir eigin samvisku

Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að stjórn­ar­for­menn séu sjálf­stæðir í vinnu­brögðum og þeir sem til­nefni í stjórnir eigi ekki að segja stjórn­ar­mönnum fyrir verkum. „Þeir eiga ein­ungis að starfa eftir eigin sam­visku og þeim lögum sem eru í gildi,“ segir hún.

Unnur segir jafn­framt að stjórn­ar­menn eigi almennt rétt á að sitja í stjórn séu þeir kosnir með lög­legum hætti á aðal­fundi. Því verður að gera ráð fyrir að ákveði stjórn­ar­maður að víkja úr sæti taki vara­maður, sem þegar hefur verið kos­inn á aðal­fundi, sæti hans.

„Við munum vanda til verka við að rann­saka hvernig málið er vaxið og hvort farið hafi verið að lögum, til að mynda hvort það séu rétt kjörnir stjórn­ar­menn sem taki ákvarð­anir. Það er mik­il­vægt einkum þegar um er að ræða ríka almanna­hags­muni eins og rekstur líf­eyr­is­sjóðs,“ segir Unnur 

FME telur að stjórnin sitji áfram

Ólafur Reimir Gunn­ar­son, einn þeirra stjórn­ar­manna sem sat í umboði VR í stétt­ar­fé­lagi Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að fjár­mála­eft­ir­litið hafi til­kynnt honum að hann sé enn stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins. „FME er búið að hafa sam­band við mig og telur að við sitjum áfram í stjórn­inni þar til stjórn­ar­fundur hafi verið hald­inn hjá VR. Maður kærir sig auð­vitað ekki um að sitja í óþökk fólks en það er alvar­legt ef verið er að brjóta lög,“ segir Ólafur Reimar.

Ólafur segir jafn­framt í sam­tali við blaðið að frá­far­andi stjórn hafi leitað álits lög­fræð­ings. Það liggi von­andi fyrir í næstu viku. Guðrún Haf­steins­dóttir, vara­for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna segir auk þess í sam­tali við Morg­un­blaðið að lög­fræð­ingur Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna væri að skoða rétt­mæti ákvörð­un­ar­innar. „Ég get einnig stað­fest að við erum að láta óháðan sér­fræð­ing í félaga­rétti skoða hvort hægt sé að gera þetta með þessum hætti sem gert var.“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son segir hins vegar í sam­tali við Morg­un­blaðið að regl­urnar séu skýrar um að Full­trúa­ráð VR megi aft­ur­kalla umboð stjórnamma hvenær sem það vill. „Við erum í fullum rétti að gera þetta, regl­urnar eru alveg kýr­skýrar. Full­trúa­ráð VR má aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna hvenær sem það vill, það eru regl­urnar sem við höfum og það er eng­inn ágrein­ingur um það innan okkar raða,“ segir Ragnar Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár