VR ætlar að skipta út öllum stjórnarmönnum sínum í Lífeyrissjóði verzlunarmanna

Stjórn VR hefur sam­þykkt til­lögu um að aft­ur­kalla umboð allra stjórn­ar­manna félags­ins sem sitja í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Ástæðan er trún­að­ar­brestur vegna hækk­unar á vöxtum á hús­næð­is­lánum. Tillagan verður tekin fyrir á morgun.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn VR sam­þykkti á fundi í gær, með 13 af 15 greiddum atkvæðum, að boða fund í full­trúa­ráði VR hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna þar sem lögð verður fram til­laga um að aft­ur­kalla umboð allra stjórn­ar­manna VR sem sitja í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins og skipa nýja stjórn til bráða­birgða. Fundur full­trúa­ráðs­ins verður haldin á morgun, fimmtu­dag.

Ástæðan er „algjör trún­að­ar­brestur“ milli stjórn­ar­manna sem VR skipar og stjórnar félags­ins vegna ákvörð­unar sjóðs­ins um að hækka breyti­lega verð­tryggða vexti sem sjóðs­fé­lögum bjóð­ast til hús­næð­is­kaupa um tæp tíu pró­sent.

[links]Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins. Heild­ar­eignir hans voru mentar á 713,5 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Hann er mjög umsvifa­mik­ill fjár­festir í íslensku við­skipta­lífi og á stóran hlut í flestum skráðum félögum hér­lendis. Verð­mætasta hluta­bréfa­eign sjóðs­ins er hluti í Marel.

Sjóð­ur­inn á einnig stóran hlut í félögum á borð við HB Granda, Reginn, Icelandair og Eimskip. Þá er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Kviku banka með 9,49 pró­sent hlut.

[adspot]VR til­­­nefnir helm­ing stjórn­­­ar­­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna en sam­tök ýmissa atvinn­u­rek­enda hinn helm­ing­inn. Sem stendur er stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur­ sjóðs­ins, Ólafur Reimar Gunn­ars­son, úr röðum þeirra sem VR til­­­nefn­­ir. Hann er einn þeirra fjög­urra sem VR vill nú víkja úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins.

Ákvarðanir færðar í lokuð stjórnarherbergi

Samkvæmt sam­þykkt stjórnar VR af stjórn­ar­fundi hennar í gær, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur skýrt fram að ástæða þess að gripið sé til þess­ara aðgerða sé ákvörðun stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna þann 24. maí síð­ast­lið­inn að hækka breyti­lega verð­tryggða vexti sem sjóð­ur­inn býður sjóðs­fé­lögum sínum til hús­næð­is­kaupa úr 2,06 pró­sent í 2,26 pró­sent frá og með 1. ágúst næst­kom­andi, eða um tæp tíu pró­sent.

Í sam­þykkt­inni kemur fram að eitt af meg­in­mark­miðum nýgerðra kjara­samn­inga VR væri að stuðla að vaxta­lækkun sem yki ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­il­anna. Það hafi því komið eins og þruma úr heið­skýru lofti þegar stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna ákvað að hækka vext­ina með þessum hætti. „Ekki aðeins er tíma­setn­ing þess­arar ákvörð­unar algjör­lega óskilj­an­leg í ljósi þess að blekið á und­ir­skriftum okkar á kjara­samn­ingi er vart þornað heldur hitt að þessi ákvörðun virð­ist lýsa algjöru skiln­ings­leysi á þeirri miklu áherslu sem verka­lýðs­hreyf­ingin lagði á vaxta­lækkun í mjög erf­iðum kjara­samn­ings­við­ræðum. Höfuðið er svo bitið af skömminni með þeirri ákvörðun stjórnar LIVE að hætt með opið og gagn­sætt ákvörð­un­ar­ferli þess­ara vaxta­breyt­inga og að ákvarð­anir um vaxta­breyt­ingar verði í fram­tíð­inni ein­fald­lega ákveðið í lok­uðu stjórn­ar­her­bergi. Þetta er gegn sam­þykk á síð­asta þingi Alþýðu­sam­bands Íslands þar sem sagði að almenn­ingur ætti að fá ða njóta með beinum hætti lækk­unar vaxta á skulda­bréfa­mark­aði. Þetta er aft­ur­hvarf til stjórn­ar­hátta sem við hrein­lega héldum að væri komið úr úr mynd­inni. En svo er greini­lega ekki.“

[adspot]Stjórn VR telur að ekki sé hægt að líta á þennan gjörn­ing stjórnar líf­eyr­is­sjóðs­ins nema sem „algjöran trún­að­ar­brest við félagið, stefnu þess og nýgerðar lífs­kjara­samn­ing“. Því leggur hún til að hald­inn verði fundur í full­trúa­ráð VR hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna þar sem lögð verði fram til­laga um að aft­ur­kalla umboðs stjórn­ar­manna VR í sjóðnum og skipa nýja stjórn til bráða­birgða.

Ákváðu að hækka vexti og láta stjórn ákveða þá

Kjarninn greindi frá því síðla í maí að Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna hefði ákveðið að hækka breyt­i­­lega vexti verð­­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga frá og með 1. ágúst næst­kom­andi úr 2,06 pró­­sentum í 2,26 pró­­sent.

Vextir sjóðs­ins nú eru þeir lægstu sem standa íbúða­­kaup­endum á Íslandi til boða. Eftir breyt­ing­una munu bæði Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn (2,15 pró­­sent) og Almenni líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn (2,18 pró­­sent) bjóða sínum félögum upp á lægri breyt­i­­leg vaxta­­kjör á verð­­tryggðum lán­­um.

Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­­ar­krafa ákveð­ins skulda­bréfa­­flokks stýri því hverjir vext­irnir eru mun stjórn sjóðs­ins ákveða þá. Frá þessu er greint í frétt á vef Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna í síð­ustu viku. Þar kom einnig fram að vextir sjóðs­ins á föstum verð­tryggðum vöxtum frá og með föstu­deg­inum 24. maí úr 3,6 pró­sentum í 3,4 pró­sent. Vextir á slíkum lánum hald­ast óbreyttir út láns­tím­ann.

Fastir verð­tryggðir vextir hafa verið umtals­vert hærri en breyti­legir vext­ir. Ef sjóðs­fé­lagi hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna tæki til að mynda 40 ára verð­tryggð lán hjá sjóðnum upp á 30 millj­ónir króna, miðað við 3,3 pró­sent verð­bólgu­spá, í dag þá myndi við­kom­andi greiða 94,9 millj­ónir króna í heild­ar­greiðslu ef hann tæki fasta vexti með jöfnum afborg­un­um. Ef við­kom­andi myndi hins vegar velja breyti­lega vexti með jöfnum afborg­un­um, og þeir myndu hald­ast óbreyttir eða lækka að með­al­tali á láns­tím­an­um, þá myndi við­kom­andi greiða 81,8 millj­ónir króna í heild­ar­greiðslu miðað við sömu for­send­ur.

Viðbrögð sem færu ekki framhjá neinum

VR kall­aði í kjöl­farið eftir skrif­legum skýr­ingu frá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna um ákvörðun sjóðs­ins. Þann 31. maí síð­ast­lið­inn sagði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, við Kjarnann að það væri mjög þungt hljóð í stjórn­ar­mönnum VR vegna máls­ins. Ákvörðun sjóðs­ins sé blaut tuska framan í verka­lýðs­hreyf­ing­una og vinni gegn mark­miðum henn­ar. Viðbrögð við stöð­unni væri vænt­an­leg. „Þau við­brögð munu ekki fara fram­hjá nein­um.“

Ragnar ræddi þær áherslur sem hann og stjórn VR muni tala fyrir í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins, sem er einn stærsti fjár­festir á Íslandi, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í febr­ú­ar.

Þar sagði hann meðal ann­ars að þeim til­mælum yrði beint til stjórnar að haga sínum fjár­­­fest­ingum með þeim hætti að það verði ekki fjár­­­fest í fyr­ir­tækjum sem eru með kaup­rétt­­ar­­samn­inga eða ofur­­laun eða bónusa. „Eða haga sér með þeim hætti eins til dæmis eins og Almenna leig­u­­fé­lag­ið, að beina við­­skiptum sínum frá slíkum félög­­um. Það verða skýr skila­­boð sem við munum senda nýrri stjórn Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna.[...]Það eru skila­­boð sem mig langar að senda út inn í fjár­­­mála­­kerf­ið, að menn skulu þá hugsa sig tvisvar um þegar þeir fara gegn hags­munum launa­­fólks með þessum hætti, að við munum beita okkur með rót­tækri hætti heldur en áður hefur ver­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár