Lífeyrisjóður verzlunarmanna hækkar verðtryggða vexti og breytir viðmiði

Einn stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins sem býður nú upp á lægstu mögu­legu íbúða­lána­vexti hefur ákveðið að breyta því hvernig hann ákvarðar vext­ina. Héðan í frá mun stjórn sjóðs­ins gera það. Og fyrsta ákvörðun er að hækka vext­ina um tæp­lega tíu pró­sent.

Kjör sem standa íbúðakaupendum sem borga í Lífeyrissjóðverzlunarmanna til boða munu versna um komandi mánaðarmót.
Kjör sem standa íbúða­kaup­endum sem borga í Lífeyrissjóðverzlunarmanna til boða munu versna um kom­andi mán­að­ar­mót. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur ákveðið að hækka breyti­lega vexti verð­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga frá og með 1. ágúst næst­kom­andi úr 2,06 pró­sentum í 2,26 pró­sent.

Vextir sjóðs­ins nú eru þeir lægstu sem standa íbúða­kaup­endum á Íslandi til boða. Eftir breyt­ing­una munu bæði Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,15 pró­sent) og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,18 pró­sent) bjóða sínum félögum upp á lægri breyti­leg vaxta­kjör á verð­tryggðum lánum.

Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa ákveð­ins skulda­bréfa­flokks stýri því hverjir vext­irnir eru mun stjórn sjóðs­ins ákveða þá. Frá þessu er greint í frétt á vef Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.

Vextir hafa lækkað skarpt

Frá því að sjóð­ur­inn hóf end­ur­komu sína inn á íbúða­lána­markað að alvöru haustið 2015, með því að hækka veð­hlut­fall lána, lækka vexti og lækka lán­töku­gjald, hafa vextir lána hans ákvarð­ast í sam­ræmi við breyt­ingu á ávöxt­un­ar­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­flokks Íbúða­lána­sjóðs (HFF150434.). Á und­an­förnum árum hafa við­skipti með þau bréf dreg­ist veru­lega saman með þeim afleið­ingum að ávöxt­un­ar­krafan hefur dreg­ist mikið saman.

Afleið­ing þess hefur verið sú að vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hafa lækkað mjög mikið á skömmum tíma. Haustið 2015 voru vextir á breyti­legum verð­tryggðum lánum sjóðs­ins til að mynda 3,6 pró­sent en þeir eru nú 2,06 pró­sent og hafa aldrei verið lægri. Vext­irnir í dag eru því 42,7 pró­sent lægri en árið 2015.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa allir reynt að draga úr eft­ir­spurn í íbúða­lán hjá sér und­an­farin miss­eri, m.a. með því að lækka veð­hlut­fall úr 75 í 70 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna gerði það strax vorið 2017.

Bankarnir ekki samkeppnishæfir

Þeir sem eiga rétt á að taka íbúða­lán hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins eru þó enn í mun betri stöðu en þeir sem þurfa að taka lán hjá við­skipta­bönk­unum. Ef íbúð­ar­kaup­anda dugar að fá 70-75 pró­sent lán þá getur hann tekið slík hjá líf­eyr­is­sjóðum sem hann hefur greitt til og fengið breyti­lega verð­tryggða vexti sem eru frá 2,96 pró­sent (Gildi) til 2,06 pró­sent (Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna) eins og staðan er í dag.

Við­skipta­bank­arnir þrír bjóða hins vegar upp á hærra veð­hlut­fall, eða 80 til 85 pró­sent af virði þeirrar eignar sem verið er að kaupa. Íslands­banki býður upp á lægstu breyti­legu verð­tryggðu vext­ina upp að 70 pró­sent af virði fast­eignar, sem eru 3,40 pró­sent. Ef við­kom­andi þarf að taka hærra lán þá þarf hann að bæta við sig við­bót­ar­láni á hærri vöxtum. Þannig er málum einnig háttað hjá Lands­bank­anum og Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár