Alþýðusambandið varar við nýju stéttarfélagi

Forseti ASÍ segir nýtt stétt­ar­fé­lag, sem ber heitið Kópur og hefur einkum verið mark­aðs­sett til Pólverja sem búa hér á landi, hafi ekki nein tengsl við ASÍ. Varað er við því að launa­fólk afsali sér rétt­indum með því að ganga í félagið.

Merki Kóps stéttarfélags.
Merki Kóps stétt­ar­fé­lags. Mynd: Bára Huld Beck

„Kópur er ekki hluti af Alþýðu­sam­bandi Íslands, er ekki aðili að neinum kjara­samn­ingnum, VIRK, Bjargi, orlofs­sjóðum, fræðslu­sjóðum eða sjúkra­sjóðum,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Drífu Snædal, for­seta ASÍ, sem send var á fjöl­miðla í dag.

Yfir­lýs­ingin snýr að nýju stétt­ar­fé­lagi, sem ber heitið Kópur, sem hefur verið aug­lýst að und­an­förnu. Aug­lýs­ingum hefur, að sögn Drífu, einkum verið beint að Pól­verjum sem starfa á Íslandi og hefur verið látið í veðri vaka að félagið „hafi aðgang að öllum þeim gæðum og þjón­ustu við félags­menn sem íslensk verka­lýðs­hreyf­ing hefur byggt upp um ára­tuga skeið og jafn­vel að félagið sé tengt Alþýðu­sam­bandi Íslands.“

Þetta segir Drífa rangt.

[adspot]

„Það eru engin tengsl milli ASÍ og Kóps og okkur vit­an­lega hefur Kópur ekki gert neina kjara­samn­inga. Kópur er ekki með fræðslu­sjóð til að greiða menntun, er ekki með sjúkra­sjóð fyrir þá sem verða veikir í lengri tíma, á ekki aðild að Bjargi íbúða­fé­lagi sem býður lægri leigu og hús­næð­is­ör­yggi, er ekki aðili að VIRK starfsend­ur­hæf­ingu og á ekki orlofs­hús. Mögu­legir félags­menn í Kópi myndu ekki njóta neinna ef þessum rétt­indum né hafa aðgang að lög­fræði­legri og annarri fag­legri aðstoð sem launa­fólki býðst almennt hjá sínum stétt­ar­fé­lögum,“ segir í yfir­lýs­ingu Drífu.

Því er bætt við að hvatt sé til þess að þessum upp­lýs­ingum sé dref­ist sem víð­ast og með því „komið í veg fyrir að launa­fólk afsali sér óaf­vit­andi rétt­indum sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur byggt upp um ára­tuga skeið.komið í veg fyrir að launa­fólk afsali sér óaf­vit­andi rétt­indum sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur byggt upp um ára­tuga skeið.

Stétt­ar­fé­lagið Kópur er, sam­kvæmt vef­setri þess á Facebook, nýlega stofnað og for­maður þess er sagður heita Stanley Kowal. Kjarninn reyndi að setja sig í sam­band við síma­númer sem þar er gefið upp, án árang­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár