Formaður stjórnar: Illa vegið að mér og öðrum stjórnarmönnum

VR ákvað í kvöld að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna.

„Ég und­ir­rit­aður Ólafur Reimar Gunn­ars­son stjórn­ar­maður í VR og nú frá­far­andi stjórn­ar­for­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna (LV) til­nefndur af VR segi hér með af mér sem stjórn­ar­maður í VR og um leið segi ég mig frá öllum þeim trún­að­ar­störfum sem ég hef gegnt fyrir félagið und­an­farin ár.“

Svona hefst til­kynn­ingu frá frá­far­andi stjórn­ar­for­manni Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, Ólafi Reimari Gunn­ars­syni, en eins og greint var frá fyrr í kvöld, sam­þykkti full­trúa­ráð VR að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna.

Í til­kynn­ingu sinni segir Ólafur Reimar að illa sé vegið að honum og öðrum stjórn­ar­mönnum, sem þurfi að gæta hags­muna allra sjóð­fé­laga í störfum sínum.

„Ég hef í störfum mínum fyrir VR lagt mig fram um að sinna þeim af kost­gæfni og alúð og lagt mig fram um að starfa fyrir alla félags­menn og alla sjóð­fé­laga í LV.

Ég hef meðal ann­ars að fullu tekið þátt í því mikla verk­efni LV að draga veru­lega úr fjár­magns­kostn­aði heim­il­anna á und­an­förnum árum með því að sjóð­ur­inn hefur boðið sjóð­fé­lögum lán á sam­keppn­is­hæfum kjörum. Þar hefur sjóð­ur­inn haft for­göngu um lækkun vaxta sem síð­ustu miss­erin hefur einkum komið fram á verð­tryggðum lánum með breyti­legum vöxtum. Eins og auð­veld­lega má sjá á vef sjóðs­ins báru þessi lán 3,99% vexti í upp­hafi árs 2015, þeir hafa jafnt og þétt lækkað og eru nú 2,06%. Þetta er og hefur verið afar mik­il­væg kjara­bót fyrir félags­menn VR og sjóð­fé­laga í LV.

Á sama tíma hefur stjórn LV gætt þeirrar afdrátt­ar­lausu laga­legu og sið­ferð­is­legu skyldu sinnar að gæta hags­muna allra sjóð­fé­laga.

Á liðnum vetri var orðið ljóst, að það við­mið sem stjórn sjóðs­ins hafði á árum áður ákveðið að binda vexti þess­ara lána við var ekki lengur not­hæft og varð að finna nýtt sem upp­fyllti þau skil­yrði að vera almennt, end­ur­spegla vaxtaum­hverfi á mark­aði hér og vera tengt við áreið­an­leg við­mið á mark­aði þannig að ekki væri hætta á að vaxta­á­kvarð­anir tækju mið af ann­ar­legum sjón­ar­miðum eða hags­munum af neinu tagi. Þessi breyt­ing hafði í för með sér að breyti­legu vext­irnir hækka sem nemur 0,2 pró­sentu­stigum og eru eftir sem áður með lægstu vöxtum á íslenskum lána­mark­aði. Sé allt með talið, líka skil­yrði sem lán­takar þurfa að upp­fylla, hika ég ekki við að full­yrða að eftir þessa vaxta­breyt­ingu eru verð­tryggð lán LV með breyti­legum vöxtum eftir sem áður þau hag­stæð­ustu sem almenn­ingur á Íslandi á kost á að taka.

Í öllu þessu hefur stjórn LV unnið af fullum heil­indum og með hag allra sjóð­fé­laga að leið­ar­ljósi.

Ég tel því illa að mér og öðrum stjórn­ar­mönnum sjóðs­ins vegið að væna okkur um óheil­indi og bregð­ast við með svo harka­legum og ómál­efna­legum hætti sem for­maður VR og stjórn félags­ins hafa gert, og nú síð­ast full­trúa­ráð félags­ins í LV. Vinnu­brögð for­manns og meiri­hluta stjórnar hafa verið for­kast­an­leg og get ég ekki hugsað mér að starfa lengur í þessum félags­skap og segi því hér með skilið við hann,“ segir Ólafur Reimar í til­kynn­ingu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár