Umboð stjórnarmanna VR í Lífeyrissjóði verslunarmanna afturkallað

Tillaga um nýja stjórn­ar­menn til bráða­birgða var einnig sam­þykkt.

Á fundi sem hald­inn var í full­trúa­ráði VR í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna nú í kvöld, fimmtu­dag­inn 20. júní 2019, var sam­þykkt að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og var að auki sam­þykkt til­laga um nýja stjórn­ar­menn til bráða­birgða.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá VR.

Áður hafði stjórn VR lýst yfir trún­að­ar­bresti gagn­vart stjórn­ar­mönnum félags­ins hjá sjóðnum vegna sam­þykktar stjórnar hans um hækkun breyti­legra vaxta verð­tryggðra sjóð­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­lækk­anir í nýgerðum kjara­samn­ingi.

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna sendi frá sér til­kynn­ingu vegna þessa, og mót­mælti þessu mati stjórnar VR. Þá sendi FME einnig frá sér til­kynn­ingu þar sem eft­ir­litið árétt­aði skyldur stjórn­ar­manna sam­kvæmt lögum líf­eyr­is­sjóði.

Til fundar í kvöld var því boðað í þeim til­gangi að bera upp til­lögu um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR í líf­eyr­is­sjóðnum og að skipa nýja stjórn­ar­menn í þeirra stað til bráða­birgða.

Tillagan sem borin var upp og sam­þykkt með 20 atkvæðum gegn 2 (2 sátu hjá) var eft­ir­far­andi: „Fundur í full­trúa­ráð VR hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna sam­þykkir að trún­að­ar­brestur hafi orðið milli VR og stjórn­ar­manna VR í Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna og að umboð aðal- og vara­manna VR í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna er aft­ur­kallað,“ segir í til­kynn­ingu VR.

Að því búnu var borin upp til­laga um eft­ir­far­andi aðila í stjórn til bráða­birgða:

Aðalmenn

Bjarni Þór Sig­urðs­son
Guðríður Svana Bjarna­dóttir
Helga Ing­ólfs­dóttir
Stefán Svein­björns­son

Varamenn

Björn Krist­jáns­son
Oddur Gunnar Jónsson
Selma Árna­dóttir
Sigríður Lovísa Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár