FME minnir á kröfur sem gerðar eru til lífeyrissjóða

VR hyggst gera breyt­ingar á skipan stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna.

Fjár­mála­eft­ir­litið, FME, hefur sent frá sér til­kynn­ingu þar sem minnt er á þær kröfur sem gerðar eru til líf­eyr­is­sjóða sam­kvæmt lögum um starf­semi þeirra.

Er vísað til frétta af því að stétt­ar­fé­lag hafi það til skoð­unar að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna sem félagið hefur til­nefnt í stjórn líf­eyr­is­sjóðs, en eins og greint var frá á vef Kjarnans í morgun, þá hyggst VR skipta út stjórn­ar­mönnum í Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, vegna óánægju með vaxta­á­kvarð­anir sjóðs­ins.

Er í til­kynn­ingu FME vísað til laga um líf­eyr­is­sjóði, og meðal ann­ars að engir aðrir hags­munir eigi að ráða för hjá líf­eyr­is­sjóðum en hags­munir sjóð­fé­laga.

Í til­kynn­ingu FME, sem birt var á vef FME í dag, segir:

„Líf­eyr­is­sjóðir veita við­töku iðgjaldi til greiðslu líf­eyris vegna elli, örorku eða and­láts og lýtur starf­semi þeirra að mót­töku, varð­veislu og ávöxtun iðgjalda og greiðslu líf­eyris. Líf­eyr­is­sjóðum er óheim­ilt að stunda aðra starf­semi en þá sem nauð­syn­leg er til að ná fram­an­greindum til­gangi, skv. 20. gr. laga nr. 129/1997 um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða, sbr. 2. mgr. 1. gr. sömu laga.

Í 29. gr. laga nr. 129/1997 kemur fram að stjórn líf­eyr­is­sjóðs ber ábyrgð á að starf­semi sjóðs­ins sé í sam­ræmi við nefnd lög, reglu­gerðir settar sam­kvæmt þeim og sam­þykktir sjóðs­ins. Þá setur stjórn líf­eyr­is­sjóðs honum fjár­fest­ing­ar­stefnu, sbr. 1. mgr. 36. gr. nefndra laga og ber við þá vinnu að hafa hags­muni allra sjóð­fé­laga að leið­ar­ljósi. Fram­kvæmda­stjóri líf­eyr­is­sjóðs ber ábyrgð á því að fjár­fest­ing­ar­stefnu stjórnar sé fram­fylgt.

Samkvæmt 4. mgr. 44. gr. laga nr. 129/1997 skal Fjár­mála­eft­ir­litið hafa eft­ir­lit með því hvort starf­semi líf­eyr­is­sjóðs sé að ein­hverju leyti óeðli­leg, óheil­brigð eða ótraust. Við mat á fram­an­greindu lítur Fjár­mála­eft­ir­litið m.a. til ákvæða laga nr. 2/1995, um hluta­fé­lög, en í 76. gr. þeirra laga segir: „Félags­stjórn, fram­kvæmda­stjóri og aðrir þeir er hafa heim­ild til að koma fram fyrir hönd félags­ins mega ekki gera neinar þær ráð­staf­anir sem eru fallnar til þess að afla ákveðnum hlut­höfum eða öðrum ótil­hlýði­legra hags­muna á kostnað ann­arra hlut­hafa eða félags­ins. Með hlið­sjón af fram­an­greindu telur Fjár­mála­eft­ir­litið að stjórn­ar­mönnum líf­eyr­is­sjóða sé óheim­ilt að beita sér fyrir því að líf­eyr­is­sjóðir séu nýttir í öðrum til­gangi en þeim sem að framan var lýst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár