Hækkanir á fasteignagjöldum áhyggjuefni

Forseti ASÍ segir að hækk­anir á fast­eigna­gjöldum muni hafa áhrif á lífs­kjara­samn­ing­ana ef ekk­ert annað verði gert á móti.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Hækkanir á fast­eigna­gjöldum í fimmtán fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lögum lands­ins voru í mörgum til­fellum langt umfram 2,5 pró­sent, að því er fram kemur í nýrri könnun ASÍ, en verð­lags­eft­ir­lit sam­bands­ins tók saman breyt­ingar á fast­eigna­gjöldum milli áranna 2019 og 2020.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir í sam­tali við Kjarnann að mik­il­vægt sé fyrir fólk í þessum sveit­ar­fé­lögum að vita hvernig staða fast­eigna­gjalda sé. Þessi gjöld séu einmitt hluti af stóru heild­ar­mynd­inni þegar litið er á það hvort verið sé að standa við lífs­kjara­samn­ing­ana sem gerðir voru á síð­asta ári.

Breyt­ing­arnar eru reikn­aðar í krónum miðað við meðal fast­eigna- og lóða­mat í ákveðnum hverfum hjá þeim sveit­ar­fé­lögum sem eru til skoð­unar en fast­eigna­gjöld eru í flestum til­fellum lögð á miðað við fast­eigna- og lóða­mat, segir í til­kynn­ingu ASÍ um könn­un­ina.

Langt umfram þau loforð sem gefin voru í tengslum við lífskjarasamningana

Gjöld á 100 fer­metra íbúð í fjöl­býli hækka mest á Sauð­ár­króki um 14,93 pró­sent eða 36.991 krónur en næst mest á Egils­stöðum um 11,06 pró­sent eða 29.515 krónur. Ef miðað er við 200 fer­metra ein­býli hækka gjöldin mest á Egils­stöðum, 10,3 pró­sent eða um 46.756 og næst mest í Gler­ár­hverfi á Akureyri um 7,7 pró­sent eða 27.000 krónur.

Í til­kynn­ingu ASÍ kemur fram að þessar hækk­anir séu langt umfram þau lof­orð sem gefin voru í tengslum við lífs­kjara­samn­ing­ana en Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga lýsti stuðn­ingi við þau með til­mælum til sveit­ar­fé­laga um að gjald­skrár­hækk­anir vegna árs­ins 2020 yrðu ekki umfram 2,5 pró­sent.

Drífa segir að góðu frétt­irnar séu þær að gjald­skrár sveit­ar­fé­lag­anna hafi ekki hækk­að umfram 2,5 pró­sent sem sé þó umfram verð­bólgu, til að mynda leik­skóla­gjöld. „En við höfum miklar áhyggjur af fast­eigna­gjöld­un­um,“ segir hún og bendir til dæmis á gríð­ar­legar hækk­anir sem orðið hafa á Sauð­ár­króki.

Fasteignamat hækkar en álagningarprósentur lækka ekki

Samkvæmt ASÍ má rekja hækk­anir á Sauð­ár­króki til þess að fast­eigna- og lóða­mat hækk­aði þar mikið í fjöl­býli á milli ára á meðan álagn­ing­ar­pró­sentur sveit­ar­fé­lags­ins stóðu í stað auk þess sem sorp­hirðu­gjöldin hækk­uðu. Næst mest hafi fast­eigna­gjöld hækkað fyrir 100 fer­metra fjöl­býli á Egils­stöðum, 11,06 pró­sent eða 29.515 krónur, en svip­aða sögu sé að segja þaðan þar sem fast­eigna­mat hafi hækkað en álagn­ing­ar­pró­sentur hafi ekki verið lækk­aðar til að stemma stigu við hækk­unum. Miklar hækk­anir hafi einnig verið á Reyð­ar­firði, 8,6 pró­sent, Akureyri, 6,35 til 6,57 pró­sent og á Völlunum Hafn­ar­firði, 6,20 pró­sent.

Fast­eigna­gjöldin lækk­uðu mest í Keflavík sé miðað við 100 fer­metra fjöl­býli, -9,61 pró­sent eða 28.722 krónur, og næst mest í Njarðvík, -3,88 pró­sent eða um 10.223 krónur. Sé miðað við 200 fer­metra ein­býli lækk­uðu fast­eigna­gjöldin mest á Ísafirði, -9,3 pró­sent eða um 38.969 krónur, og næst mest í Njarðvík, -4,4 pró­sent eða um 24.364 krónur, sam­kvæmt könnun ASÍ.

Hækkanir hafa „auðvitað áhrif“

Þegar Drífa er spurð út í það hvort þessar hækk­anir hafi áhrif á lífs­kjara­samn­ing­ana þá segir hún að auð­vitað hafi þær áhrif ef ekk­ert annað verði gert á móti. „Á þessu stigi erum við að gefa okkar félags­mönnum færi á að skoða þessar tölur og þrýsta á breyt­ing­ar.“

Hún segir þó að erfitt sé að taka heild­stæða afstöðu út frá könn­un­inni vegna þess að töl­urnar eru mis­jafnar milli sveit­ar­fé­laga, eins og kom fram hér að ofan. Þau hjá ASÍ skoði marga þætti þegar kemur að lífs­kjara­samn­ing­unum, til að mynda ástand efna­hags­mála og hvort launa­hækk­anir séu raun­veru­lega að skila sér til fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár