Efling sakar Reykjavíkurborg um að hafa dreift villandi upplýsingum

„Borgin er í okkar höndum!“ Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar í opnu bréfi til borg­ar­stjóra, þar sem honum er til­kynnt um algjör við­ræðu­slit vegna kjara­samn­inga­gerðar. Efling segir borg­ina hafa brotið bæði trúnað og lög.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, og Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Samsett

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur til­kynnt Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra Reykja­víkur að Efling muni ekki eiga frek­ari við­ræður við samn­inga­nefnd borg­ar­innar umfram það sem lög krefj­ast. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu sem Efling sendi frá sér í morgun.

Þar segir að samn­inga­nefnd Reykja­vík­ur­borgar hafi dreift „vill­andi upp­lýs­ingum til fjöl­miðla af samn­inga­fundi hjá Rík­is­sátta­semj­ara um samn­ings­til­boð Eflingar sem lagt var fram 16. jan­úar síð­ast­lið­inn og braut þannig bæði trúnað og lög.“

Þess í stað krefst samn­inga­nefnd Eflingar þess að kjara­við­ræður við borg­ina fari héðan í frá fram fyrir opnum tjöldum og telur að það séu eðli­leg við­brögð við meintu trún­að­ar­broti emb­ætt­is­manna borg­ar­innar. Auk þess telur Efling að þannig verði farið rétt með þær kröfur sem Efling setur fram í við­ræð­unum.

[adspot]Efling hefur boðað til opins samn­inga­fundar í Iðnó á mið­viku­dag­inn 22. jan­úar klukkan 13:00 þar sem samn­inga­nefnd Eflingar mun kynna til­boð sitt til borg­ar­innar um kjara­samn­ing sem gildi til loka árs 2022.

„Borgin er í okkar höndum!“

Í opnu bréfi til Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, frá Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, segir að samn­inga­nefnd Eflingar krefj­ist þess að Dagur axli póli­tíska ábyrgð á fram­göngu samn­inga­nefndar borg­ar­innar, á þeirri stöðu sem upp er komin í við­ræðum vegna þeirra, og á því verk­efni að kjara­mál félags­manna Eflingar hjá borg­inni verði leyst með boð­legum hætti.

Í bréf­inu segir enn fremur að í til­boð­inu sem kynnt verði á boð­uðum opnum fundi á mið­viku­dag sé fall­ist á sömu taxta­hækk­anir og samið var um á almennum vinnu­mark­aði í apríl síð­ast­liðnum, í hinum svoköll­uðu Lífs­kjara­samn­ingum, auk þess sem kraf­ist verði „nauð­syn­legrar og tíma­bærrar leið­rétt­ingar á lág­launa­stefnu borg­ar­innar“.

Á þriðju­dag mun birt­ast í dag­blöðum opið bréf samn­inga­nefndar Eflingar gagn­vart Reykja­vík­ur­borg til Dags B. Egg­erts­sonar, en atkvæða­greiðsla um verk­fall 1.800 félags­manna Eflingar hjá borg­inni hefst á hádegi sama dag.

Í lok bréfs­ins segir: „Við erum hér. Við erum á leið í verk­fall. Við munum berj­ast þangað til við höfum verið við­ur­kennd og okkur tryggt mann­sæm­andi við­ur­væri. Borgin er í okkar höndum!“

Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands Íslands, fyrir hönd 17 aðild­ar­fé­laga sinna, skrif­aði í síð­ustu viku undir nýjan kjara­samn­ing við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga með fyr­ir­vara um sam­þykki félags­manna í atkvæða­greiðslu. Samn­ing­ur­inn gildir frá 1. jan­úar 2020 til 30. sept­em­ber 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár