Evrópuþingið hefur samþykkt ályktun um að kalla formlega eftir því að yfirvöld í Hong Kong dragi formlega til baka hin umdeildu framsalslög í Hong Kong. South China Morning Post greinir frá.
Framsalslögunum var frestað í júní í kjölfar harðra fjöldamótmæla. Mótmælendur töldu að lögin gætu auðveldað framsal á almennum borgurum Hong Kong til Kína og myndu gera kínverskum stjórnvöldum kleift að rétta yfir fólki á meginlandi Kína í stað fyrir í Hong Kong. Til harðra átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu og þurftu fjölmargir að leita á sjúkrahús.
[adspot]Stjórnvöld í Beijing segja ályktun Evrópuþingsins vera fulla af fáfræði og fordómum. Með ályktuninni hvetur Evrópuþingið yfirvöld í Hong Kong til að fella niður kærur gegn friðsamlegum mótmælendum og hvetur þau jafnframt til að koma á sjálfstæðri rannsókn um lögregluofbeldi. Ályktunin gagnrýnir enn fremur „stöðug og aukin afskipti Kína af innanríkismálum Hong Kong.“
Utanríkisráðuneyti Kína sendi frá sér tilkynningu þar sem evrópsku stjórnmálamennirnir voru sakaðir um hræsni þar sem hún beini fingrum og skipi yfirvöldum Hong Kong fyrir.
Eve Geddie, framkvæmdastjóri Evrópudeildar mannréttindasamtakanna Amnesty International, tók undir gagnrýnina og sagði Evrópuríki sjálf þurfa að hætta að nota táragas og gúmmíkúlur þar sem það gæti verið notað gegn friðsamlegum mótmælendum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir