Hundruð þúsunda mótmæla í Hong Kong

Mót­mæl­endur hafa flykkst á götur Hong Kong síð­ustu daga til að mót­mæla nýrri laga­setn­ingu sem gæti leyft yfir­völdum Hong Kong að fram­selja fanga til Kína.

Myndin er frá mótmælunum í Hong Kong 2014
Myndin er frá mót­mæl­unum í Hong Kong 2014 Mynd: Flickr

Til átaka kom á milli lög­reglu og mót­mæl­enda í Hong Kong í dag. Mótmælin hafa staðið yfir í þó nokkra daga og standa yfir enn. Mótmælin náðu hámarki sunnu­dag­inn síð­ast­lið­inn þegar hund­ruðir þús­unda íbúa flykkt­ust á götur Hong Kong.

Ástæða mót­mæl­anna er ný laga­setn­ing sem að sögn mót­mæl­enda auð­veldar fram­sal á almennum borg­urum Hong Kong til Kína og auð­veldi þar af leiðir kín­verskum stjórn­völdum að rétta yfir fólki á meg­in­landi Kína í stað fyrir í Hong Kong.

[adspot]Amnesty International hefur gagn­rýnt fram­komu lög­reglu sem beitt hafa táragasi og gúmmí­kúlum á mót­mæl­endur. Mót­mæl­endur hafa þeytt grjóti í lög­reglu og kveikt elda til að sýna óánægju sína.

Utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, Jeremy Hunt, hefur blandað sér í málið og þrýsti á yfir­völd Hong Kong að hlusta á mót­mæl­endur.

Allt hófst með einum manni

Málið á upp­haf sitt að rekja til máls í Taiwan árið 2018, þar sem maður að nafni Chan Tong-Kai var sak­aður um að hafa myrt kær­ustu sína, að því er kemur fram í frétt South China Morning Post. Chan flúði til Hong Kong og var hand­tek­inn í kjöl­farið. Ekki var þó hægt að senda hann til Taiwan þar sem ekki ríkir samn­ingur á milli ríkj­anna um flutn­ing fanga.

Því brugð­ust yfir­völd Hong Kong við með því að leggja fram laga­setn­ingu sem leyfir stjórn­völdum Hong Kong að flytja fanga til ann­arra ríka, þó að ekki liggi fyrir samn­ingur um flutn­ing fanga.

Mót­mæl­endur ótt­ast að mynd­ist laga­leg glufa þegar fangar séu fluttir til Taiwan, vegna þess að Kína gerir til­kall til eyj­ar­innar. Málið er svo umdeilt að til lík­am­legra átaka kom í lög­gjaf­ar­ráði Hong Kong.

Ekki allir á einu máli um lagasetninguna

Carrie Lam, leið­togi yfir­valda í Hong Kong, sagði að mót­mælin vera skipu­lagðar óeirðir. Enn fremur hafa hátt­settir emb­ætt­is­menn sagt að yfir­völd Hong Kong muni hafa loka­úr­slit um hvort og þá hvenær fangar verði fram­seldir. Þá verði ekki hægt að fram­selja póli­tíska fanga.

Regnhlífamótmælin skýrt í minni

Nú eru liðin 5 ár frá Regn­hlífa­mót­mæl­unum 2014. Þau mót­mæli hófust vegna áhyggja af því að kín­versk stjórn­völd hefðu of mikil áhrif á hver gæti boðið sig fram til kosn­inga í Hong Kong.

Mót­mæl­endur flykkt­ust líkt og nú í þús­undum talið á götur Hong Kong og kröfð­ust sjálf­ræðis og höfn­uðu afskiptum kín­verskra stjórn­valda.

Hægt er að fylgj­ast með fram­gangi mála núver­andi mót­mæla á Twitter undir merk­inu #ExtraditionBill

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár