„Fáránleikinn og samtryggingin kemur til bjargar fyrir elítuna“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, telur að það að vera dæmdur fyrir að segja satt geti ekki verið góð máls­með­ferð og vísar hann til þess að sann­leiks­gildi ummæla Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur hafi ekki verið sann­reynt við máls­með­ferð for­sætis­nefndar.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Fárán­leik­inn og sam­trygg­ingin kemur til bjargar fyrir elít­una. Ekki fyrir sendi­boð­ann sem bendir á nakta keisar­ann. Þ.e.a.s. bara fyrir strák­inn sem benti, ekki stelpuna.“ Þetta skrifar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag eftir að nið­ur­staða for­sætis­nefndar Alþingis var gerð kunn­gjörð í fjöl­miðlum í morgun.

[links]Nefndin hefur fall­ist á nið­ur­­­stöður siða­nefnd­ar þings­ins þess efn­is að Þór­hild­ur Sunna Ævar­s­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, hafi brotið gegn siða­regl­ur alþing­is­­manna með um­­mæl­um sín­um um Ásmund Frið­riks­­son, þing­­mann Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins.

„Njótið meðan end­ist, kæra elíta. Þið blinda, sjálf­hverfa og með­virka fólk. Þið fenguð kjörið tæki­færi til þess að sýna að þið eruð trausts­ins verð en klúðruðuð því marg­falt. Til að byrja með í rann­sókn­inni. Svo í til­mælum um að sann­leik­ur­inn skiptir ekki máli, að halda ekki sam­kvæmni á milli sendi­boða og að lokum að taka ekki sönsum á loka­metr­unum þrátt fyrir öll rök og gögn máls­ins,“ skrifar Björn Leví.

Fann ekkert að akstursgreiðslum Ásmundar þrátt fyrir játningu

Í færsl­unni segir hann margt í mál­inu vera galið. Sem dæmi gagn­rýnir hann bókun Þor­steins Sæmunds­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, þar sem segir: „Ómögu­legt er einnig að setja þing­menn í þá stöðu að þurfa að kveða upp úr um „sekt“ eða „sak­leysi“ kollega sinna. Í því er einnig fal­inn nokkur freistni­vandi eins og þegar hefur komið fram. Brýnt er því að taka núver­andi fyr­ir­komu­lag til end­ur­skoð­unar auk þess sem bæta þarf fyr­ir­liggj­andi reglur.“ Björn Leví segir Þorstein dæma sig sekan þrátt fyrir að hann telji ómögu­legt að setja þing­mann í stöðu dóm­ara.

„For­sætis­nefnd fann svo ekk­ert að akst­urs­greiðslum Ásmundar þrátt fyrir játn­ingu hans um mögu­legt brot og end­ur­greiðslur vegna þeirra. Enda má ekki kom­ast að sann­leiks­gildi þess hvort þing­menn svindla á end­ur­greiðslu­kerf­inu eða ekki en á sama tíma er hægt að dæma fólk fyrir ummæli sem eru ber­sýni­lega sönn – þar sem þau vitna í játn­ingu um mögu­legt brot - og að það sé brot á siða­reglum að segja að það þurfi að rann­saka hvort um raun­veru­legt brot sé að ræða.

En nei, það er ekki rann­sakað frekar. End­ur­greiðsla kom eftir að mögu­legt brot upp­götv­að­ist og þar af leið­andi þarf ekk­ert að gera. Mér þætti áhuga­vert hvort búða­þjófar kom­ast upp með að borga bara eða skila vör­unni ef þeim tekst ekki að kom­ast upp með stuld­inn, hvort slíkur stuldur sé alls ekki brot ef vör­unni er bara skilað þegar við­kom­andi er grip­inn glóð­volgur.

Nei, það er ekki látið á það reyna. Það er bara afskrifað sem afgreitt og þar af leið­andi eng­inn grunur lengur,“ skrifar Björn Leví.

Spyr hvað sé satt

Hann spyr jafn­framt hvað sé satt í þessu máli, hvað sé alvöru sann­leikur. „Það getur vel verið að sitt sýn­ist hverjum en eitt ættu allir að geta séð, að vera dæmdur fyrir að segja satt getur ekki verið góð máls­með­ferð. Hvort Sunna sagði satt skipti ekki máli. Það skipti meira máli að dæma hana og skamma. Hvað ger­ist næst þegar hún segir „rök­studdur grunur“ ... Hvort sem það er satt eða ekki? Ég veit að það ger­ist ekk­ert ef ég segi það, miðað við þessa nið­ur­stöðu,“ segir hann og bætir því við að hann hafi meira að segja end­ur­tekið það sem Þór­hildur Sunna sagði en að ekk­ert hafi gerst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár