Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið sameinast um næstu áramót

Breyt­ing­arnar lúta að sam­ein­ingu verk­efna hjá einni stofnun. Sextán þing­menn greiddu ekki atkvæði eða voru fjar­ver­andi við atkvæða­greiðsl­una.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri. Hann mun láta af því starfi í ágúst og nýr taka við.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Hann mun láta af því starfi í ágúst og nýr taka við. Mynd: Bára Huld Beck

Fjár­mála­eft­ir­litið og Seðla­banki Íslands sam­ein­ast í eina stofnun frá og með næstu ára­mótum. 32 þing­menn greiddu með breyt­ing­unni, 15 gegn, tíu greiddu ekki atkvæði og voru sex þing­menn fjar­ver­andi.

[links]Breyt­ingar munu ekki vera á verk­efnum stofn­an­anna heldur lúta breyt­ing­arnar að sam­ein­ingu verk­efna hjá einni stofnun, fyr­ir­komu­lagi ákvarð­ana­töku og stjórn­skipan, að því er kemur fram í frétta­til­kynn­ingu For­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að laga­setn­ingin eigi sér langan aðdrag­anda, stjórn­völd hafi fengið ráð­gjöf margra sér­fræð­inga und­an­farin ár, auk þess sem skýrsla starfs­hóps skip­aðan af for­sæt­is­ráð­herra 2017 hafi lagt fram 11 til­lögur um umgjörð þjóð­hags­var­úðar, end­ur­bætt verð­bólgu­mark­mið og beit­ingu stjórn­tækja Seðla­bank­ans.

Breytingartillaga samþykkt

Fjórtán þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ell­efu þing­menn Vinstri grænna, auk sjö þing­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins greiddu með til­lög­unni.

[adspot]Þingmenn Við­reisnar og Pírata greiddu gegn til­lög­unni, auk sex þing­manna Mið­flokks­ins en einn þeirra sat hjá. Þingmenn Flokks fólks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar sátu einnig hjá.

Frum­varpið var gagn­rýnt úr ýmsum áttum og var eitt þeirra deilu­mála sem var undir þegar rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir reyndu að semja um þing­lok við stjórn­ar­and­stöð­una. Á end­anum náð­ist sátt um að sam­þykkja breyt­ing­ar­til­lögu minni­hlut­a efna­hags- og við­skipta­nefndar í mál­inu sem sam­an­stóð af Odd­nýju G. Harð­ar­dótt­ur, þing­manni og þing­flokks­for­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Smára McCart­hy, þing­manni Pírata, og Þor­gerði K. Gunn­ars­dótt­ur, þing­manni Við­reisnar og for­manni flokks­ins.

Í breyt­ing­ar­til­lög­unni fólst í fyrsta lagi að kröfur til hæfni full­trúa í banka­ráði Seðla­bank­ans verði aukn­ar, í öðru lagi að verk­efni banka­ráðs verði nánar skil­greind, í þriðja lagi að for­mennska fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar verði að jafn­aði í höndum vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­eft­ir­lits í stað seðla­banka­stjóra, í fjórða lagi að fjallað skuli um árangur mark­miða í árs­skýrslu Seðla­bank­ans, í fimmta lagi að fram skuli fara ytra mat á starf­semi Seðla­bank­ans á fimm ára fresti og í sjötta lagi að innan tveggja ára frá gild­is­töku lag­anna skuli vinna skýrslu um reynsl­una af starfi nefnda Seðla­bank­ans með nánar til­greindum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár