Segir breytingartillögu ákveðinn öryggisventil

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur sam­þykkt breyt­ing­ar­til­lögu minni­hlut­ans við frum­varp til laga um Seðla­banka Íslands. Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir til­lög­una vera ákveð­inn örygg­is­ventil.

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis sam­þykkti breyt­ing­ar­til­lögu minni­hlut­ans við frum­varp til laga um Seðla­banka Íslands í dag. Minni­hlut­inn sam­anstendur af Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, þing­manni og þing­flokks­for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, Smára McCarthy, þing­manni Pírata, og Þorgerði K. Gunn­ars­dóttur, þing­manni Við­reisnar og for­manni flokks­ins.

Í breyt­ing­ar­til­lög­unni felst í fyrsta lagi að kröfur til hæfni full­trúa í banka­ráði Seðla­bank­ans verði auknar, í öðru lagi að verk­efni banka­ráðs verði nánar skil­greind, í þriðja lagi að for­mennska fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar verði að jafn­aði í höndum vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­eft­ir­lits í stað seðla­banka­stjóra, í fjórða lagi að fjallað skuli um árangur mark­miða í árs­skýrslu Seðla­bank­ans, í fimmta lagi að fram skuli fara ytra mat á starf­semi Seðla­bank­ans á fimm ára fresti og í sjötta lagi að innan tveggja ára frá gild­is­töku lag­anna skuli vinna skýrslu um reynsl­una af starfi nefnda Seðla­bank­ans með nánar til­greindum hætti.

[adspot]

Vilja að ytra mat fari fram á fimm ára fresti

[links]Varðandi ytra matið þá er lagt til að á fimm ára fresti skuli ráð­herra fela þremur óháðum sér­fræð­ingum á sviði pen­inga- og fjár­mála­hag­fræði að gera úttekt um hvernig Seðla­banka Íslands hefur tek­ist að upp­fylla mark­mið um stöðugt verð­lag, fjár­mála­stöð­ug­leika og fram­kvæmd fjár­mála­eft­ir­lits.

Jafn­framt skuli litið til ann­arra þátta í starf­semi bank­ans, svo sem skipu­lags, verka­skipt­ingar og valds­viðs. Einn sér­fræð­ing­anna skuli hafa hald­góða þekk­ingu á íslensku efna­hags­lífi en hinir tveir skuli hafa víð­tæka þekk­ingu og reynslu af alþjóð­legri fjár­mála­starf­semi og rekstri seðla­banka utan Íslands.

Hefðu kosið að hafa frumvarpið öðruvísi

Oddný Harð­ar­dóttir segir í sam­tali við Kjarnann að þau í Sam­fylk­ing­unni hafi gagn­rýnt frum­varpið mikið en að þessi breyt­ing­ar­til­laga sé ákveð­inn örygg­is­vent­ill. „Við hefðum kosið að hafa frum­varpið með öðrum hætti, en það var ekki í boði,“ segir hún. Þá hafi þau í minni­hlut­anum frekar viljað fara þá leið að koma með breyt­ing­ar­til­lögu og fá sam­þykki meiri­hlut­ans við henni.

Hún bætir því við að í fram­hald­inu verði að gæta vel að Seðla­bank­anum þegar hann er orð­inn svo mik­ill og vold­ugur. „Hann á svo mikið undir trausti, hann á lítið annað,“ segir hún. Þá skipti miklu máli að bank­inn starfi undir skýrum mark­miðum og að gætt sé að því að orð­sporið skað­ist ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár