Drög að frumvörpum um sameiningu Seðlabankans og FME komin fram

Vara­seðla­banka­stjórar munu hafa fag­lega umsjón með vinnu bank­ans á sínum sér­sviðum.

For­sæt­is­ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bendikts­sonar hafa birt drög að frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra til laga um Seðla­banka Íslands og drög að frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til laga um breyt­ingar á ýmsum lögum vegna sam­ein­ingar Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í sam­ráðs­gátt til umsagnar.

Umsagn­ar­frestur er til 18. mars.

Með frum­vörp­unum er lagt til að Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið verði sam­einuð í eina stofnun.

„Ekki eru lagðar til breyt­ingar á þeim verk­efnum sem eru á ábyrgð þess­ara tveggja stofn­ana sam­eig­in­lega sam­kvæmt núgild­andi lögum. Lúta breyt­ing­arnar fremur að sam­ein­ingu verk­efna hjá einni stofnun og breyt­ingum á stjórn­skipan og fyr­ir­komu­lagi ákvarð­ana­töku, einkum í ljósi auk­ins vægis fjár­mála­stöð­ug­leika,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Markmið Seðla­bank­ans, sam­kvæmt frum­varp­inu, er að stuðla að stöð­ugu verð­lagi, fjár­mála­stöð­ug­leika og traustri og öruggri fjár­mála­starf­semi.

Einn seðlabankastjóri og þrír varaseðlabankastjórar

For­sæt­is­ráð­herra skipar seðla­banka­stjóra til fimm ára í senn, að hámarki þó tvisvar sinnum. Þá skipar for­sæt­is­ráð­herra þrjá vara­seðla­banka­stjóra einnig til fimm ára í senn og að hámarki tvisvar sinnum. Einn leiðir mál­efni er varða pen­inga­stefnu, einn leiðir mál­efni er varða fjár­mála­stöð­ug­leika og einn leiðir mál­efni er varða fjár­mála­eft­ir­lit. Vara­seðla­banka­stjórar fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lits eru skip­aðir eftir til­nefn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Rekstur og stjórnun Seðla­bank­ans er í höndum seðla­banka­stjóra. Hann ber ábyrgð á rekstri bank­ans og fer með ákvörð­un­ar­vald í öllum mál­efnum hans sem ekki eru öðrum falin. Sumar ákvarð­anir eru teknar sam­eig­in­lega af seðla­banka­stjóra og vara­seðla­banka­stjórum.

Ákvarð­anir um beit­ingu til­tek­inna vald­heim­ilda bank­ans eru teknar af pen­inga­stefnu­nefnd, fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd og fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd. Nefnd­irnar eru skip­aðar 5-7 full­trúum, bæði emb­ætt­is­mönnum Seðla­bank­ans og utan­að­kom­andi sér­fræð­ingum á við­kom­andi sviði. Seðla­banka­stjóri er for­maður allra þriggja nefnda bank­ans.

Vara­seðla­banka­stjórar hafa fag­lega umsjón með vinnu bank­ans á sínum sér­sviðum, segir í frum­varp­inu, og munu þeir bera ábyrgð á und­ir­bún­ingi vinnu fyrir nefndir bank­ans og sitja jafn­framt í ein­stökum nefndum hans.

Bankaráð hefur eft­ir­lit með því að Seðla­banki Íslands starfi í sam­ræmi við þau lög sem um starf­sem­ina gilda. Í banka­ráði sitja sjö manns sem kosnir eru hlut­falls­kosn­ingu af Alþingi.

„Í frum­varpi sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mun leggja fram sam­hliða koma fram breyt­ingar á þrjá­tíu lögum m.a. lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi og lögum um greiðslu kostn­aðar við opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi. Að auki eru lagðar til þær breyt­ingar á öðrum lögum um fjár­mála­starf­semi sem nauð­syn­legar eru vegna sam­ein­ingar Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Af breyttu skipu­lagi Seðla­bank­ans leiðir að lagt er til að kerf­is­á­hættu­nefnd verði lögð niður og að hlut­verki fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs verði breytt. Þær breyt­ingar sem lagðar eru til í þessum frum­vörpum eru að veru­legu leyti byggðar á nið­ur­stöðum þeirra sér­fræð­inga sem und­an­farin ár hafa unnið skýrslur að beiðni stjórn­valda um besta fyr­ir­komu­lag stjórn­skip­unar pen­inga­mála, fjár­mála­stöð­ug­leika og fjár­mála­eft­ir­lits,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár