Til stendur að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið

Vinna er nú hafin við að sam­eina Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið.

Seðlabanki Íslands.
Seðla­banki Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefur ákveðið að hefja end­ur­skoðun lagaum­gjarðar um pen­inga­stefnu, þjóð­hags­varúð og fjár­mála­eft­ir­lit. Fyr­ir­liggj­andi eru skýrslur sér­fræð­inga sem bregða birtu á ýmis við­fangs­efni og tæki­færi til úrbóta við fram­kvæmd pen­inga­stefnu og umgjörð þjóð­hags­var­úðar og fjár­mála­eft­ir­lits, nú síð­ast vinna starfs­hópa um end­ur­skoðun á ramma pen­inga­stefn­unnar og end­ur­skoðun laga um fjár­mála­eft­ir­lit frá því í júní síð­ast­liðnum.

Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Yfir­stjórn þessa verk­efnis verður í höndum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins sem í sitja for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Á vegum ráð­herra­nefnd­ar­innar starfar verk­efn­is­stjórn um pen­inga­stefnu, þjóð­hags­varúð og fjár­mála­eft­ir­lit, skipuð af for­sæt­is­ráð­herra. Hún er skipuð full­trúum for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis auk tengiliða frá Seðla­bank­anum og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Verk­efn­is­stjórnin skal skila drögum að laga­frum­vörpum til ráð­herra­nefndar eigi síðar en 28. febr­úar á næsta ári.

Samkvæmt ráðu­neyt­unum kallar end­ur­skoð­unin á eft­ir­far­andi:

  • Breyt­ingar á lögum sem lúta meðal ann­ars að pen­inga­stefn­unni, núver­andi verk­efnum Seðla­bank­ans og yfir­stjórn. 
  • Breyt­ingar á lögum sem lúta að fyr­ir­komu­lagi þjóð­hags­var­úðar. 
  • Breyt­ingar á lögum um fjár­mála­eft­ir­lit. 
  • Breyt­ingar sem lúta að var­an­legu fyr­ir­komu­lagi fjár­streym­is­tækis. 
  • Breyt­ingar á yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar og Seðla­bank­ans um verð­bólgu­mark­mið. 
  • Breyt­ingar á verk­lagi í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans. 

Í frétt­inni segir að meg­in­leið­ar­ljós vinn­unnar verði að efla traust, gagn­sæi og skil­virkni við yfir­stjórn efna­hags­mála. Miðað skuli við að við­halda verð­bólgu­mark­miði sem meg­in­mark­miði pen­inga­stefn­unnar og sjálf­stæði Seðla­bank­ans og pen­inga­stefnu­nefndar hans til að beita stjórn­tækjum til að ná því en gera við­eig­andi breyt­ingar sem efla traust og auka gagn­sæi. Enn­fremur skuli miðað við að sam­eina Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skil­virkni við fram­kvæmd þjóð­hags­var­úðar og fjár­mála­eft­ir­lits.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár