Alþingi samþykkir úttekt vegna gjaldþrots WOW air

Rík­is­end­ur­skoðun mun meðal ann­ars rann­saka hvort að Isavia hafi haft heim­ildir til þess að veita WOW air greiðslu­frest þegar flug­fé­lagið gat ekki greitt rík­is­fyr­ir­tæk­inu fyrir veitta þjón­ustu.

Alþingi sam­þykkti í dag með öllu greiddum atkvæðum beiðni um skýrslu frá rík­is­end­ur­skoð­anda um úttekt á aðkomu Sam­göngu­stofu og Isavia ohf. að starf­semi og rekstri WOW air hf. í aðdrag­anda gjald­þrots félags­ins og eftir það.

Fyrsti flutn­ings­maður beiðn­innar var Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, en auk hennar voru flutn­ings­menn úr sex öðrum flokkum sem eiga sæti á Alþingi. Þeir eru auk þess allir nefnd­ar­menn í umhverfis- og sam­göngu­nefnd.

[adspot]Í grein­ar­gerð sem fylgdi með beiðn­inni segir að flutn­ings­menn telji nauð­syn­legt að aðkoma stjórn­valda að gjald­þroti WOW air, m.a. sem eft­ir­lits­að­ila, verði skoðuð ofan í kjöl­inn. „Lagt er til að mark­mið úttekt­ar­innar verði að leiða í ljós hvort stjórn­sýsla máls­ins hafi verið nægi­lega vönduð, hvort nýt­ing rík­is­fjár hafi verið for­svar­an­leg, hvort reglum um flug­rekstr­ar­hæfi[...] hafi verið fram­fylgt og hvað gera hefði mátt betur. Að mati flutn­ings­manna er jafn­framt nauð­syn­legt að skoða heim­ildir Isavia ohf.,[...]til að veita flug­rek­endum greiðslu­frest á lend­ingar- og þjón­ustu­gjöldum og hvort end­ur­skoða þurfi þær heim­ildir sem opin­ber hluta­fé­lög hafa til slíkrar fyr­ir­greiðslu á sam­keppn­is­mark­aði. Er sér­stak­lega óskað eftir að Rík­is­end­ur­skoðun kanni umræddar fyr­ir­greiðslur með til­liti til sam­keppn­islaga og rík­is­að­stoð­ar­reglna.“

Dauða­stríð fyrir opnum tjöldum

WOW air varð gjald­þrota 28. mars síð­ast­lið­inn. Þá hafði félagið barist í dauða­stríði fyrir opnum tjöldum frá því síð­sum­ars 2018 og átt í miklum erf­ið­leikum allt frá haustinu 2017.

Sam­göngu­stofa er sú eft­ir­lits­stofnun sem gefur út flug­rekstr­ar­leyfi og á að hafa eft­ir­lit með því að þau flug­fé­lög sem fá slíkt séu rekstr­ar­hæf. Stofn­unin hefur verið víða harð­lega gagn­rýnd fyrir að grípa ekki fyrr inn í rekstur WOW air þegar ljóst var að eig­in­fjár­staða félags­ins var afar bág­borin og illa gekk fyrir það að fá nýja fjár­festa að rekstr­in­um.

Isavia veitti WOW air sömu­leiðis umtals­verðan slaka vegna skulda sem safn­ast höfðu upp vegna van­gold­inna lend­ing­ar- og þjón­ustu­gjalda á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þegar WOW air fór í þrot stóðu þær skuldir í um tveimur millj­örðum króna. Óljóst er hversu mikið af þeim fjár­munum munu inn­heimt­ast en Isavia kyrr­setti flug­vél í eigu leigu­sala WOW air og von­að­ist til að geta krafið hann um greiðslu á skuld­inni. Tek­ist er á um það mál fyrir dóm­stól­um.

Skúli vill WOW 2.0

Skúli Mogensen, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­­­stjóri flug­­­­­fé­lags­ins WOW air, sagði í erindi sem hann hélt á við­­burði Startup Iceland í Hörpu nýverið að ef hann fengi tæki­­færi til að stofna annað flug­­­fé­lag þá myndi hann gera það, þó ekki end­i­­lega sem for­­stjóri. Nýja flug­­­fé­lagið myndi hann kalla WOW air, „enda frá­­­bært vöru­­merki“ að hans mati.

[adspot]Skúli sagði í erindi sínu að við fall WOW air hefði hann orðið mjög reið­­ur. Og að hann væri enn reið­­ur. „Það er ekki dagur – eða klukku­­tími – sem ég hugsa ekki um þetta,“ sagði hann. En að því sögðu þá velti hann því fyrir sér hvað taki nú við. „Hvað getum við gert núna? Hver eru tæki­­fær­in?“

Hann sagði að það yrði slæmt ef þekk­ingin og reynslan sem afl­að­ist við rekstur og upp­­­bygg­ingu WOW air yrði ekki nýtt. Ekki væri hægt að byggja upp slíka þekk­ingu auð­veld­­lega aftur og því taldi hann að nú ætti að nýta tæki­­fær­ið. Ísland yrði að vera með lággjalda­flug­­fé­lag.

„Ég ætla ekki end­i­­lega að gera þetta á morgun en ég vil fá tæki­­færi til að gera þetta aft­­ur,“ sagði Skúli og bætti því við að honum væri aftur farið að leið­­ast. Hann benti enn fremur á að nú væri sam­­dráttur í íslensku sam­­fé­lagi og að ein­hver yrði að gera eitt­hvað í þessum mál­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár