Skúli vill fá annað tækifæri til að stofna flugfélag – Myndi kalla það WOW air

Stofn­andi WOW air segir það mik­il­vægt að á Íslandi sé lággjalda­flug­fé­lag og telur hann að nýtt félag eigi erindi hér á landi undir for­merkjum WOW air.

Skúli Mogensen, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri flug­fé­lags­ins WOW a­ir, segir að ef hann fengi tæki­færi til að stofna annað flug­fé­lag þá myndi hann gera það, þó ekki endi­lega sem for­stjóri. Nýja flug­fé­lagið myndi hann kalla WOW air, „enda frá­bært vöru­merki“ að hans mati.

Þetta kom fram í erindi hans á við­burði Startup Iceland í Hörpu í dag. Við­burð­ur­inn er hald­inn í átt­unda sinn og er þemað í ár Stofn­endur og und­ir­stöður.

Eftir mik­inn upp­gang árum saman lenti íslenska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið WOW air í veru­legum vand­ræð­um og dugði skulda­bréfa­út­­­boð upp á 50 millj­­ónir dala sem félagið fór í í sept­­em­ber 2018 ekki til að laga stöð­una. Í kjöl­farið var reynt að selja WOW air til Icelandair og Indigo Partners en þau áform gengu ekki eft­­ir. Íslenska ríkið taldi sig jafn­framt ekki hafa neinar for­sendur til að ganga inn í rekstur WOW air og að morgni 28. mars síð­ast­lið­ins fór félagið í þrot.

Fólk taldi hann óðan

[links]Í erindi Skúla kemur fram að eftir OZ-ævin­týrið hafi hann ætlað sér að verða fjár­festir og stjórn­ar­maður fyr­ir­tækja en hann segir að honum hafi hins vegar leiðs í þeim störfum. „Ég var ekki góður fjár­festir og stjórn­ar­maður,“ segir Skúli. Hann hafi viljað finna nýjar áskor­anir og taldi hann það ekki vera góða hug­mynd að hætta að vinna fer­tugur. Svo hann spurði sig hvað hann gæti gert í stað­inn en þá vakn­aði upp sú hug­mynd að stofna flug­fé­lag. Hann hafði flogið mikið og trúði því að Íslend­ingar gætu gert betur í þessum málum.

Við­brögðin létu ekki á sér standa en sam­kvæmt Skúla töldu margir hann vera óðan en hann leit svo á að þetta verk­efni væri eitt­hvað sem hann yrði að fram­kvæma.

Ekkert sem heitir „auðvelt“ í flugbransanum

Rekstur WOW air fór vel af stað og segir Skúli að mark­aðs­setn­ing hafi gengið ein­stak­lega vel. Þau hafi haft gott teymi sem vann vel og hafi þau eytt miklum tíma í þá mark­aðs­setn­ingu.

„Ég vildi hafa áhrif. Á mörgum stöðum í heim­inum er það mun­aður að fljúga en ég vildi að allir hefðu mögu­leika á að gera það,“ segir Skúli. Hann segir það enn fremur mis­skiln­ing að sá sem eyðir litlu í flug­far sé versti kúnn­inn. „Það er rugl, algjört rugl. Ég tel að þeir séu þeir kláru,“ segir hann.

Hann talar jafn­framt um þau mis­tök sem gerð voru árið 2018 í rekstri WOW air. Hann segir að fyr­ir­tækið hafi misst sjónar á mark­miðum þess það árið. „Ég hélt að þetta væri auð­velt en það er ekk­ert sem heitir „auð­velt“ í flug­brans­anum,“ segir hann.

Hefði átt að vera þolinmóður

Eins og fram hefur komið í umfjöllun fjöl­miðla eftir gjald­þrot WOW air þá segir Skúli að helstu mis­tökin hafi verið að stækka vél­arnar. Í tölvu­pósti sem Skúli sendi starfs­mönnum sínum des­em­ber síð­ast­liðnum kemur þetta einnig fram en þar sagði hann: „Í stuttu máli misstum við ein­beit­ing­una og byrj­uðum að hegða okkur eins og hefð­bundið flug­fé­lag. Þessi mis­tök hafa næstum því kostað okkur fyr­ir­tækið þar sem tapið árið 2018 hefur stig­magn­ast und­an­farna mán­uði vegna slæmrar fjár­hags­legrar afkomu. Það er afar mik­il­vægt að taka fram að ég kenni engum nema sjálfum mér um þessi mis­tök.“

Hann segir í erindi sínu að hann hafi átt að bíða og vera þol­in­móður en hann hafi verið óþreyju­fullur að stækka. Það hafi ekki verið rétt ákvörðun, svona eftir á að hyggja.

Vill fá annað tækifæri

Skúli segir í erindi sínu að við fall WOW air hafi hann orðið mjög reiður. Og að hann sé enn reiður. „Það er ekki dagur – eða klukku­tími – sem ég hugsa ekki um þetta,“ segir hann. En að því sögðu þá veltir hann því fyrir sér hvað taki nú við. „Hvað getum við gert núna? Hver eru tæki­færin,“ spyr hann.

Hann segir að það yrði slæmt ef þekk­ingin og reynslan sem afl­að­ist við rekstur og upp­bygg­ingu WOW air yrði ekki nýtt. Ekki væri hægt að byggja upp slíka þekk­ingu auð­veld­lega aftur og því telur hann að nú ætti að nýta tæki­færið. Ísland verði að vera með lággjalda­flug­fé­lag.

„Ég ætla ekki endi­lega að gera þetta á morgun en ég vil fá tæki­færi til að gera þetta aftur,“ segir Skúli og bætir því við að honum sé aftur farið að leið­ast. Hann bendir enn fremur á að nú sé sam­dráttur í íslensku sam­fé­lagi og að ein­hver verði að gera eitt­hvað í þessum málum.

Hægt er að horfa á streymi frá Startup Iceland hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár