Lögmenn vildu að lögmenn hefðu eftirlit með lögmönnum

Lög­manna­fé­lag Íslands taldi eðli­legt að eft­ir­lit með því hvort að lög­menn væru að fara eftir nýjum lögum sem tengj­ast pen­inga­þvætt­is­vörnum væri í höndum þess, en ekki Rík­is­skatt­stjóra líkt og frum­varpið gerði ráð fyrir.

Eftirlit með fjölmörgum stéttum sem starfa í aðstæðum þar sem peningaþvætti gæti átt sér stað hefur verið eflt til muna hérlendis síðustu mánuði.
Eftirlit með fjöl­mörgum stéttum sem starfa í aðstæðum þar sem pen­inga­þvætti gæti átt sér stað hefur verið eflt til muna hér­lendis síð­ustu mán­uði. Mynd: Pexels.com

Í umsögn laga­nefndar Lög­manna­fé­lags Íslands (LMFÍ) um frum­varp til laga um fryst­ingu fjár­muna og skrán­ingu aðila á lista yfir þving­un­ar­að­gerðir í tengslum við fjár­mögnun hryðju­verka og útbreiðslu ger­eyð­ing­ar­vopn, sem skilað var til utan­rík­is­mála­nefndar í síð­ustu viku, var tekið undir það sjón­ar­mið að eft­ir­lit með lög­mönnum yrði í höndum félags­ins. Sjón­ar­miðið sjálft var sett fram af stjórn Lög­manna­fé­lags Íslands í sept­em­ber í fyrra.

Samkvæmt frum­varp­inu er gert ráð fyrir að Rík­is­skatt­stjóri hafi eft­ir­lit með því að lög­menn fari eftir ákvæðum lag­anna sem snúa ann­ars vegar að fryst­ingu fjár­muna og efna­hags­legs auðs og hins vegar að ráð­stöf­unum til að meta hvort við­skipta­menn séu á listum yfir pen­inga­þvætt­is­að­gerðir.

[adspot]Í minn­is­blaði sem utan­rík­is­ráðu­neytið sendi utan­rík­is­mála­nefnd á fimmtu­dag segir að þegar sé gætt að sjálf­stæði lög­manna­stétt­ar­innar í frum­varp­inu í ákvæði þar sem segir að lög­menn séu und­an­skildir upp­lýs­inga­gjöf sem þeir öðlist „við athugun á laga­legri stöðu skjól­stæð­ings í tengslum við dóms­mál, þ.m.t. þegar hann veitir ráð­gjöf um hvort höfða eigi mál eða kom­ast hjá máli, eða upp­lýs­ingar sem hann öðl­ast fyrir, á meðan eða eftir lok dóms­máls, ef upp­lýs­ing­arnar hafa bein tengsl við málið.“ Því telur ráðu­neytið ekki ástæðu til þess að bregð­ast frekar við aðfinnslum Lög­manna­fé­lags­ins og ekki er tekið til­lit til þeirra í breyt­inga­til­lögu sem lögð hefur verið fram í þverpóli­tískri sátt vegna frum­varps­ins.

Eðlilegt að eftirlit væri hjá félaginu

Í umsögn laga­nefndar Lög­manna­fé­lags Íslands er bent á að stjórn félags­ins hafi þegar lýst yfir sér­stökum áhyggjum af því að ekki væri gætt að sjálf­stæði lög­manna­stétt­ar­innar með setn­ingu lag­ana. Það var gert á stjórn­ar­fundi 5. sept­em­ber 2018 þar sem ályktun um að sjálf­stæði lög­manna­stétt­ar­innar yrði gætt í hvít­vetna við vinnu lag­anna. „Stjórn LMFÍ telur eðli­legt að eft­ir­lit með lög­mönnum verði í höndum félags­ins. LMFÍ er til­búið til við­ræðna um nán­ari útfærslu á slíku eft­ir­liti, en nákvæmar til­lögur um til­högun eft­ir­lits liggja ekki fyrir.“

Frum­varpið var lagt fram í byrjun apríl síð­ast­liðnum og var afgreitt úr utan­rík­is­mála­nefnd á föstu­dag með breyt­ing­ar­til­lögu.

Tilefni frum­varps­ins er úttekt sem alþjóð­lega fjár­mála­að­gerða­hóp­ur­inn Financial Action Task Force (FATF) gerði á vörnum Íslands gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem lauk með útgáfu skýrslu í apríl árið 2018. Nið­ur­staða FATF var afger­andi og alvar­leg: Ísland fékk fall­ein­kunn í vörnum sínum gegn pen­inga­þvætti.

Hætta á að vera sett á lista

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um slakar varnir Íslend­inga gegn pen­inga­þvætti und­an­farin mis­s­eri. Í byrjun jan­úar greindi Kjarn­inn frá því að í fyrra­vor hafi Ísland fengið aðvör­un. Annað hvort myndu stjórn­­völd þar taka sig til og inn­­­leiða almenn­i­­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista FATF um ósam­vinn­u­þýð ríki.

[adspot]Í úttekt sam­tak­anna á stöðu mála Íslandi, sem var gerð opin­ber í apríl 2018, fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn. Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­­leg­­ar, og Ísland færi á lista FATF ­yfir ósam­vinn­u­þýð ríki myndi það, að mati inn­­­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­­legan hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­­­mála­­starf­­semi, stofnun úti­­­búa, dótt­­ur­­fé­laga og umboðs­­skrif­­stofa og jafn­­vel útgáfu aðvar­ana um að við­­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.

Ný heildarlög tóku gildi í byrjun árs

Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráðu­neytis var því settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­skipta­nefnd 12. des­em­ber og síð­ari tvær umræður kláraðar dag­inn án ann­arra ræðu­halda en Brynjars Níels­sonar, sem mælti fyrir nefnd­ar­á­liti um málið sem full­trúar alla flokka skrif­uðu undir.

[links]Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gildi á þriðju­dag, þann 1. jan­úar 2019.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði að nauð­syn­legt yrði að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á gild­andi lögum þar sem gera þarf veru­legar úrbætur á lög­unum til að upp­fylla þær lág­marks­kröfur sem gerðar eru á alþjóða­vett­vangi.

Alþjóðaskuldbindingar

Til við­bótar þurfti að utan­rík­is­ráð­herra að leggja fram frum­varp sem tryggði að reglu­verk og fram­kvæmd mála­flokks­ins upp­fylli alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart FATF og Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Það frum­varp er nú til umræðu í þing­inu og umsögn Lög­manna­fé­lags Íslands snéri að því. Annarri umræðu um frum­varpið í gær. Hún stóð í tæpar átta mín­útur og í henni fólst fram­saga Bryn­dísar Har­alds­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks sem mælti fyrir áliti utan­rík­is­mála­nefndar, sem lauk rétt fyrir hálf tólf í gær­kvöldi.

Búist er við því að frum­varpið verði að lögum á næstu dögum. Í yfir­stand­andi júní­mán­uði mun koma í ljós hvort að við­brögð Íslands hafi verið nægj­an­leg til að sleppa við afleið­ingar af hendi FATF.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögmenn

Fréttirlögmenn

Fimm lög­mann­stofur högn­uð­ust um 1,6 millj­arð

Fimm stærstu lög­manns­stofur lands­ins högn­uð­ust um 1.645 millj­ónir króna sam­an­lagt á síð­asta ári. Logos, stærsta lög­manns­stofa lands­ins, hagn­að­ist lang­mest, eða um 824 millj­ónir króna eftir skatta. Hagnaður hennar 2014 hafði verið 616 millj­ónir króna. Starf­semi stof­unnar í London átti stóran þátt í bættri afkomu hennar á milli ára. Hinar fjórar stof­urnar eru Lex, BBA Legal, Landslög og Mörkin. Frá þessu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár