Skortur á áhættuvitund á meðal lögmanna

Fjöldi lög­manna virð­ist ekki vera með­vit­aður um með hvaða hætti þjón­usta þeirra getur verið mis­notuð til að þvætta pen­inga. Sú ógn sem staf­aði af of litlu eft­ir­liti með starf­semi þeirra var metin mikil.

Lögmenn þurfa að þekkja viðskiptamenn sína betur áður en þeir handsala það að vinna verk fyrir þá.
Lögmenn þurfa að þekkja við­skipta­menn sína betur áður en þeir hand­sala það að vinna verk fyrir þá. Mynd: Pexels

Mikil pen­inga­þvætt­is­ógn stafar af því að eft­ir­lit með starf­semi lög­manna er of lítil. Þetta er meðal þeirra veik­­leika sem til­­­greindir eru á pen­inga­þvætt­is­vörnum hér­­­lendis sem tengj­ast aflétt­ingu hafta og frjáls­ara flæði fjár­muna milli Íslands og ann­arra landa í aðgerð­­ar­á­ætlun gegn pen­inga­þvætti sem birt var fyrr í mán­uð­inum. Þar segir orð­rétt: „Áhætta tengd lög­mönnum var metin há í áhættu­mati. Eftirlit með lög­mönnum, sér í lagi þeim sem bjóða upp á þá þjón­ustu sem helst er hætta á að vera mis­notuð er þ.a.l. í for­gangi 1.“

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni er greint frá því að Rík­is­skatt­stjóri hafi haf­ist handa við að búa til áhættu­mið­aða eft­ir­lits­á­ætlun sem byggi á ítar­legri grein­ingu og áhættu­mati á starf­semi lög­manna sem gæti liðkað fyrir pen­inga­þvætti strax í jan­úar 2019. Í maí hafi áhættu­matið legið fyrir.

[adspot]Í áætl­un­inni er þó tekið fram að um við­var­andi verk­efni sé að ræða og að það þurfi að upp­færa áhættu­mið­uðu eft­ir­lits­á­ætl­un­ina á tveggja ára fresti að lág­marki, en ávallt „ef breyt­ingar verða á ógnum eða veik­leikum sem varða lög­menn.“

Þá er lagt að hið áhættim­ið­aða eft­ir­lit með starf­semi lög­manna myndi hefj­ast strax um mitt ár 2019. Þar eigi að kanna meðal ann­ars aðferðir og ferla, áhættu­mat, fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­unar og þjálfun starfs­manna.“

Skortur á áhættuvitund

Í áætl­un­inni segir að skortur á áhættu­vit­und sé á meðal lög­manna­stétt­ar­innar. „Fjöldi lög­manna virð­ist ekki vera með­vit­aður um með hvaða hætti þjón­usta þeirra getur verið mis­notuð.“

Þessi hættu­merki og aðferðir við mis­notkun tengj­ast meðal ann­ars stofnun félaga eða fjár­vörslu­sjóða á aflands­svæðum, stofnun lög­að­ila, raun­veru­legu eign­ar­haldi, áhættu­sömum við­skipta­mönnum, mis­notkun á vörslu­reikn­ingum og áhættu tengdri því að koma fram fyrir hönd lög­að­ila sem er í eigu við­skipta­manns.

Þá kemur fram að upp á vanti við athugun lög­manna á laga­legri stöðu umbjóð­enda sinna eða þegar þeir koma fram fyrir hönd þeirra í dóms­máli eða í tengslum við dóms­mál, þar með talið þegar þeir veita ráð­gjöf um hvort höfða eigi dóms­mál eða kom­ast hjá dóms­máli.

Í maí og júní 2019 var brugð­ist við þessu að hluta með því að pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit Rík­is­skatt­stjóra gaf út fræðslu­efni um hættu­merki og aðferðir við mis­notkun fyrir lög­menn sem var birt á heima­síðu stofn­un­ar­innar og selt til lög­manna­fé­lags­ins, sem dreifði því til félags­manna. Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni er hins vegar lagt til að frekara fræðslu­efni verði und­ir­búið á haust­mán­uðum og dreift til lög­manna.

[links]Sér­stak­lega er tekið fram að það sé veik­leiki í pen­inga­þvætt­is­vörnum að skortur sé á til­kynn­ingum frá lög­mönnum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu. Stýri­hópur um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hafi gefið út fræðslu­efni um til­kynn­ingar til skrif­stof­unnar til að bregð­ast við þessu og fræðslu­fundur hafi verið hald­inn með lög­mönnum í maí. Halda á frek­ari fræðslu­fundi í nóv­em­ber og des­em­ber 2019.

Lögmenn vildu hafa eftirlitið með sér hjá sér

Í sumar voru sam­þykkt lög um fryst­ingu fjár­muna og skrán­ingu aðila á lista yfir þving­un­ar­að­gerðir í tengslum við fjár­mögnun hryðju­verka og útbreiðslu ger­eyð­ing­ar­vopna. Samkvæmt þeim fær­ist eft­ir­lit með því að lög­menn fari eftir ákvæðum lag­anna sem snúa ann­ars vegar að fryst­ingu fjár­muna og efna­hags­legs auðs og hins vegar að ráð­stöf­unum til að meta hvort við­skipta­menn séu á listum yfir pen­inga­þvætt­is­að­gerð­ir, til emb­ættis Rík­is­skatt­stjóra.

Lög­manna­fé­lag Íslands var ósatt með þessa breyt­ingu og skil­aði umsögn um frum­varp lag­anna áður en það var sam­þykkt. Í henni kom fram að félagið teldi eðli­legt að eft­ir­lit með því hvort að lög­menn væru að fara eftir lög­unum væri höndum þess, en ekki Rík­is­skatt­stjóra. Lögmenn vildu því að lög­menn hefðu eft­ir­lit með lög­mönnum.

Utan­rík­is­ráðu­neytið, sem bar ábyrgð á frum­varp­inu, taldi ekki ástæðu til að bregð­ast við aðfinnslum Lög­manna­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögmenn

Fréttirlögmenn

Fimm lög­mann­stofur högn­uð­ust um 1,6 millj­arð

Fimm stærstu lög­manns­stofur lands­ins högn­uð­ust um 1.645 millj­ónir króna sam­an­lagt á síð­asta ári. Logos, stærsta lög­manns­stofa lands­ins, hagn­að­ist lang­mest, eða um 824 millj­ónir króna eftir skatta. Hagnaður hennar 2014 hafði verið 616 millj­ónir króna. Starf­semi stof­unnar í London átti stóran þátt í bættri afkomu hennar á milli ára. Hinar fjórar stof­urnar eru Lex, BBA Legal, Landslög og Mörkin. Frá þessu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár