Köld skilaboð úr dómsmálaráðuneytinu

Fyrr­ver­andi for­maður Lög­manna­fé­lags­ins hélt þrumu­ræðu á aðal­fundi félags­ins í gær og var afar ósáttur við gagn­rýni aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra á mála­rekstur Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar kollega hans vegna skipan dóm­ara við Lands­rétt.

Fyrr­ver­andi for­maður Lög­manna­fé­lags­ins hélt þrumu­ræðu á aðal­fundi félags­ins í gær og var afar ósáttur við gagn­rýni aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra á mála­rekstur Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar kollega hans vegna skipan dóm­ara við Lands­rétt.

[links]Reimar Pét­urs­son lét af emb­ætti sem for­maður Lög­manna­fé­lags­ins í gær. Nýr for­maður er Berglind Svav­ars­dóttir en hún er önnur konan í 107 ára sögu félags­ins sem gegnir emb­ætt­inu.

Bakari hengdur fyrir smið

Í ræðu sinni á fund­inum sagði Reimar mörg dæmi um það í heims­sög­unni að lög­menn þurfi að sæta árásum vegna starfa sinna. Slíkt ger­ist helst í ríkjum þar sem tíðk­ist alræði. Hann sagði við hér á landi ekki eiga því að venj­ast.

Reimari var samt sem áður órótt yfir þróun mála. Kunnara sé en frá þurfi að segja að dóms­mála­ráð­herra hafi brotið lög við skipan dóm­ara í Lands­rétt. Því hafi fylgt miklir eft­ir­málar með til­heyr­andi réttaró­vissu. Í tengslum við það hafi lög­maður einn tekið að sér fyrir hönd skjól­stæð­ings síns að láta reyna að umfang réttar skjól­stæð­ings­ins sam­kvæmt mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu að dóm­ari sé skip­aður í sam­ræmi við lög. Reimar sagði þetta hefð­bundið lög­manns­verk­efni og reyndar í þessu til­viki mik­il­vægt fyrir rétt­ar­kerfið í heild sinni að umfjöllun um málið verði tæmd.

Reimar sagði óhjá­kvæmi­legt að vald­hafar tjái sig mál­efna­lega um þetta og taki afstöðu. Vald­hafar geti hins vegar ekki kvartað undan lög­mann­inum sjálfum. „Lög­mað­ur­inn er bara að reka málið og með því að beina spjótum að honum er bak­ari hengdur fyrir smið. Með því að veit­ast að lög­mann­inum eru vald­hafar í raun ekki að gera annað en að grafa undan því hlut­verki lög­manna í rétt­ar­kerf­inu að ganga fram fyrir skjöldu til verndar mann­rétt­indum.“

Auglýsingamennska

Hann sagði að athygli hans hefði verið vakin á skrifum aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra, Einars Hann­es­sonar, á sam­fé­lags­miðlum um mála­rekst­ur­inn.

Einar skrifar á Facebook síðu sína meðal ann­ars að öllu þrjú dóm­stigin hafi hafnað mál­flutn­ingi Vil­hjálms H. Vil­hjáms­sonar og yfir­gnæf­andi líkur séu á að nið­ur­staðan í Strasbourg verði sú sama og „óþarfi fyrir fjöl­miðla að hjakka meira í þessu máli. Það sem mér leikur hins vegar for­vitni á að vita er hver ætlar að borga máls­kostn­að­inn af þess­ari aug­lýs­inga­mennsku - endar hann hjá skatt­borg­urum?“

Annars staðar skrifar Einar að hann telji að Vil­hjálmur hafi aldrei átt séns vegna þess að lögin leiddu til aug­ljósrar nið­ur­stöðu. Þá spyr hann: „Hvers vegna ferðu í her­ferð sem á aldrei séns með blaða­menn og þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar í för?“

Einar blandar frétta­stofu RÚV einnig í málið sem hann segir „alveg sér­stak­lega mót­tæki­leg fyrir rök­semdum Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar hvort sem um er að ræða athafna­skáld með vafa­sama for­tíð í Suður Ameríku eða full­yrð­ingar um skipan Lands­rétt­ar­dóm­ara sem hafnað hefur verið á öllum dóm­stigum.“

Á fimmtu­dag sagði Einar að dómur Hæsta­réttar hafi stað­fest það sem flestir hafi vitað, að dóm­arar við Lands­rétt væru hæfir og óvil­hallir og þeir hefðu verið skip­aðir í sam­ræmi við lög. „Nú hljóta þeir sem hafa grafið undan trú á dóms­kerf­inu með svig­ur­mælum sínum að hér verði allt í óvissu í mörg ár að sjá að sér.“

Valdhafar með lítinn eða engan skilning þýðingu starfa lögmanna fyrir réttarríki

Reimar segir Einar með þessu hafa lýst því svo að lög­mað­ur­inn sjálfur sé aðili máls frekar en skjól­stæð­ingur hans. Eins hafi hann sagt mála­rekst­ur­inn aug­lýs­inga­mennsku og að á milli lög­manns­ins og RÚV sé ein­hvers konar van­heil­agt sam­band og að hann virð­ist telja úr lög­mann­inum að bera fram kvörtun til Stras­borgar. „Ugg­væn­legt er þegar sjálf­stætt starf­andi lög­manni eru send köld skila­boð sem þessi úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu.“

Reimar beinti á þá stað­reynd að dóms­mála­ráðu­neytið fer með æðsta stjórn­sýslu­vald í mál­efnum lög­manna og sinnir æðstu stefnu­mótum á sviði stjórn­sýsl­unnar í málum þeirra. „Hér heggur því sá er hlífa skyldi. Við lög­menn megum ekki láta svona atlögur draga úr okkur í bar­átt­unni fyrir sjálf­stæði stétt­ar­innar,“ sagði Reimar og vildi að þær séu lög­mönnum frekar hvatn­ing.

„Svona atlögur minna ein­fald­lega á mik­il­vægi þess að allt eft­ir­lit á störfum lög­manna fari fram á vegum okkar sjálfra en sé ekki komið fyrir í höndum vald­hafa sem hafa sam­kvæmt þessu lít­inn sem engan skiln­ing á eðli starfa okkar og þýð­ingu þeirra fyrir rétt­ar­ríki.“

Málið snúist ekki um persónur og leikendur

Í sam­tali við Kjarnann seg­ist Vil­hjálmur ekki muna missa svefn yfir þessum skoð­unum dóms­mála­ráð­herra, sem hann segir að svo virð­ist sem hún hafi falið aðstoð­ar­manni sínum að flytja. „Þó það hræði mig að tveir lög­fræð­ingar sem báðir hafa starfað sem lög­menn skuli hafa þetta yfir­grips­mikla van­þekk­ingu á hlut­verki og störfum lög­manna. Það er líka vani þeirra sem hafa vondan mál­stað að verja að per­sónu­gera hlut­ina.“

Vil­hjálmur segir þetta mál ekki snú­ast um per­sónur og leik­endur. Hvorki hans eigin per­sónu, dóms­mála­ráð­herra eða við­kom­andi lands­rétt­ar­dóm­ara. Það sé miklu stærra en svo.

„Málið varðar grund­vall­ar­spurn­ingar um lýð­ræði, rétt­ar­ríkið, sjálf­stæði dóm­stóla og rétt fólks til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi fyrir dóm­stólum sem skip­aðir eru sam­kvæmt lögum. Síðast en alls ekki síst varðar málið ásýnd Íslands á alþjóða­vett­vengi sem lýð­ræð­is­ríki þar sem sjálf­stæði og hlut­leysi dóm­stóla er tryggt. Því miður færir dómur Hæsta­réttar frá þeim stað sem við höfum viljað vera á til þessa, það er með Norð­ur­lönd­unum, Danmörku og Noregi, yfir í hóp með öðrum löndum sem ég ætla að láta ógert að nefna á nafn. Þess vegna þarf að láta á málið reyna í Strasbourg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögmenn

Fréttirlögmenn

Fimm lög­mann­stofur högn­uð­ust um 1,6 millj­arð

Fimm stærstu lög­manns­stofur lands­ins högn­uð­ust um 1.645 millj­ónir króna sam­an­lagt á síð­asta ári. Logos, stærsta lög­manns­stofa lands­ins, hagn­að­ist lang­mest, eða um 824 millj­ónir króna eftir skatta. Hagnaður hennar 2014 hafði verið 616 millj­ónir króna. Starf­semi stof­unnar í London átti stóran þátt í bættri afkomu hennar á milli ára. Hinar fjórar stof­urnar eru Lex, BBA Legal, Landslög og Mörkin. Frá þessu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár