Hafa lokað tímabundið á níu lögmenn frá árinu 2016

Eftirlit Sam­göngu­stofu með upp­flett­ingum lög­manna í öku­tækja­skrá fer fram með árlegu slembi­úr­taki. Síðan 2016 hafa níu lög­menn verið staðnir að því að mis­nota víð­tækan aðgang sinn að öku­tækja­skránni og aðgangi þeirra verið lokað tíma­bundið.

Tesla-bifreið fyrir framan Hallgrímskirkju.
Tesla-bif­reið fyrir framan Hall­gríms­kirkju. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­göngu­stofa hefur frá árinu 2016 lokað tíma­bundið á aðgang níu lög­manna að öku­tækja­skrá, eftir að þeir hafa verið staðnir að óleyfi­legum upp­flett­ingum í skránni. Enginn lög­maður hefur hins vegar verið stað­inn að mis­notkun frá því að ný lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga tóku gildi, en það var sum­arið 2018.

Þetta kemur fram í svari frá stofn­un­inni við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem lögð var fram eftir að Kjarninn fjall­aði um upp­flett­ingar lög­manns­ins Þor­björns Þórð­ar­sonar á bif­reiða­eign rit­höf­und­ar­ins Hall­gríms Helga­sonar, en lög­mað­ur­inn (og almanna­tengsla­ráð­gjaf­inn) fletti Hall­grími upp til þess að athuga hvort hann ætti Teslu.[links]

Lögmenn geta í krafti starfa sinna fengið víð­tæk­ari aðgang að öku­tækja­skrá en almenn­ingi almennt stendur til boða. Allir sem vilja geta flett upp skráðum eig­anda öku­tækis með því að skrá sig inn með raf­rænum skíl­ríkjum á vef Sam­göngu­stofu. Í þeim víð­tæk­ari aðgangi sem lög­menn hafa er hins vegar hægt að fletta upp með víð­tæk­ari hætti, og til dæmis sjá sögu bíla­eignar hjá ein­stak­lingum.

Þetta virð­ist lög­mað­ur­inn Þorbjörn hafa gert í til­felli Hall­gríms. „Hall­grímur Helgason rit­höf­undur er ekki skráður eig­andi Teslu,“ sagði Þorbjörn við Pál Stein­gríms­son skip­stjóra Samherja, sem hafði verið með kenn­ingu um að Hall­grímur ætti Teslu, en slík er í eigu nágranna hans.

Þorbjörn rakti fyrir skip­stjór­anum að Hall­grímur ætti tvo bíla af Hyundai-gerð, ann­ars vegar Santa Fe og hins vegar Galloper-jeppa. Einnig fylgdi sög­unni að rit­höf­und­ur­inn hefði áður átt Skoda-bif­reið af gerð­inni Octavia en selt hana árið 2007.

Eftirlit um það bil árlega með slembiúrtaki

Sam­göngu­stofa seg­ist sinna eft­ir­liti með upp­flett­ingum lög­manna „nokkuð reglu­bundið eða um það bil árlega“ og fer eft­ir­litið fram með skoðun á slembi­úr­taki.

[adspot]

„Þá er óskað eftir gögnum sem stað­festa heim­ild til að fram­kvæma til­teknar upp­flett­ingar, s.s. úrskurð hér­aðs­dóms vegna skip­unar við­kom­andi lög­manns sem skipta­stjóra. Verði mis­notk­unar vart eða gögnum ekki fram­vísað er aðgangi lokað. Við fyrsta brot í þrjá mán­uði, við annað brot sex mán­uði og við þriðja brot var­an­lega,“ segir í svari frá Sam­göngu­stofu.

Ef ábend­ingar ber­ast um mögu­lega mis­notkun eru þau mál skoðuð eftir hefð­bundnu verk­lagi, segir stofn­unin í svari til Kjarnans.

Ekki barst þó skýrt svar við spurn­ingu um hvort eitt­hvað sér­stakt yrði aðhafst vegna upp­flett­inga lög­manns­ins Þor­björns, sem sagt hefur verið frá opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögmenn

Fréttirlögmenn

Fimm lög­mann­stofur högn­uð­ust um 1,6 millj­arð

Fimm stærstu lög­manns­stofur lands­ins högn­uð­ust um 1.645 millj­ónir króna sam­an­lagt á síð­asta ári. Logos, stærsta lög­manns­stofa lands­ins, hagn­að­ist lang­mest, eða um 824 millj­ónir króna eftir skatta. Hagnaður hennar 2014 hafði verið 616 millj­ónir króna. Starf­semi stof­unnar í London átti stóran þátt í bættri afkomu hennar á milli ára. Hinar fjórar stof­urnar eru Lex, BBA Legal, Landslög og Mörkin. Frá þessu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár