Fimm lögmannstofur högnuðust um 1,6 milljarð

Logos hagnast mest allra íslenskra lögmannsstofa
Logos hagn­ast mest allra íslenskra lög­manns­stofa

Fimm stærstu lög­manns­stofur lands­ins högn­uð­ust um 1.645 millj­ónir króna sam­an­lagt á síð­asta ári. Logos, stærsta lög­manns­stofa lands­ins, hagn­að­ist lang­mest, eða um 824 millj­ónir króna eftir skatta. Hagnaður hennar 2014 hafði verið 616 millj­ónir króna. Starf­semi stof­unnar í London átti stóran þátt í bættri afkomu hennar á milli ára. Hinar fjórar stof­urnar eru Lex, BBA Legal, Landslög og Mörkin. Frá þessu er greint í DV í dag.

Afkoma flestra íslenskra lög­manns­stofa batnað mikið í kjöl­far hruns­ins sem varð haustið 2008 vegna auk­inna umsvifa í tengslum við gjald­þrot og fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu margra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins.

Logos er stærsta lög­fræði­stofa lands­ins og hefur verið í sér­flokki þegar kemur að hagn­aði árum saman. Stofan hefur meðal ann­ars unnið mikið fyrir erlenda aðila sem átt hafa hags­muna að gæta á Íslandi, sér­stak­lega í tengslum við upp­gjör gömlu bank­anna. Sam­an­lagt hefur Logos hagn­ast um 5,3 millj­arða króna frá banka­hruni. Eigendur stof­unnar eru 17 tals­ins. Áætlað er að hver og einn eig­andi hafi fengið 48,5 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu stof­unnar í fyrra. Í frétt DV segir að starf­semi Logos erlendis sé ábyrg fyrir um 40 pró­sent af hagn­aði stof­unnar. Hagnaður BBA Legal, Lands­laga og Mark­ar­innar jókst í fyrra en hann dróst saman hjá Lex og var 146 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögmenn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár