Sex hundruð milljónum skipt á milli hinna sýknuðu

Viðræður um miska- og skaða­bætur fara nú fram milli rík­is­lög­manns og þeirra sem sýkn­aðir voru í Guð­mundar- og Geir­finns­málum í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Sex hund­ruð millj­ónum verður skipt á milli hinna sýkn­uðu meðal ann­ars eftir lengd gæslu­varð­halds.

Verjendur fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
Verj­endur fyrrum sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. Mynd: Skjáskot.

Viðræður um bóta­fjár­hæðir fara nú fram á milli setts rík­is­lög­manns og þeirra sem sýkn­aðir voru í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins eru sex hund­ruð millj­ónir til skipt­anna en fénu verður deilt á milli hinna sýkn­uðu meðal ann­ars eftir lengd frels­is­svipt­ingar.

Upphæðin hækkuð til að liðka fyrir viðræðum

[links] For­sæt­is­ráð­herra skip­aði nefnd síð­asta haust sem leiða átti fyrir hönd stjórn­valda sátta­við­ræður við fyrrum sak­born­inga í Guð­mund­ar- og Geir­finns­mál­inu sem sýkn­aðir voru með dómi Hæsta­réttar Íslands þann 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn í end­ur­upp­töku­máli og aðstand­endur þeirra. Kristrún Heim­is­dóttir lög­fræð­ing­ur hefur leitt störf nefnd­ar­inn­ar.

Verk­efni nefnd­ar­innar er að leiða sátta­við­ræð­urnar og gera til­lögu til for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórnar um hugs­an­lega greiðslu miska- og skaða­bóta eða eftir atvikum svo­nefndra sann­girn­is­bóta til aðila máls­ins og aðstand­enda þeirra. Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins kemur fram að upp­haf­lega hafi stjórn­völd hyggst verja til sátt­anna 400 millj­ónum en nú hafi sú upp­hæð verið hækkuð í 600 millj­ónir til að liðka fyrir við­ræð­unum. [adspot]

Fjár­hæð­inni verður skipt á milli hinna sýkn­uðu eftir lengd gæslu­varð­halds og afplán­unar óháð því hvort við­kom­andi er enn á lífi en í til­viki þeirra Sævars Marínós Ciesielski og Tryggva Rúnars Leifs­sonar rynnu bætur til erf­ingja þeirra.

Heim­ildir Frétta­blaðs­ins herma að rík­is­lög­maður leggur upp með að með sáttum myndi mál­inu ljúka og hinir sýkn­uðu afsala sér rétti til að freista þess að sækja frek­ari bætur til dóm­stóla. Takist samn­ingar um skaða­bætur þarf að setja sér­stök lög um sátt­ina en lagt er upp með að um skatt­frjálsar miska­bætur yrði að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár