Kristrún Heimisdóttir leiðir sáttanefnd vegna eftirmála í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu

For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað nefnd til að leiða fyrir hönd stjórn­valda sátta­við­ræður við fyrrum sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu sem sýkn­aðir voru með dómi Hæsta­réttar.

Kristrún Heimisdóttir.
Kristrún Heim­is­dóttir. Mynd: Aðsend mynd

For­sæt­is­ráð­herra hefur í sam­ræmi við sam­þykkt rík­is­stjórnar Íslands frá 28. sept­em­ber síð­ast­liðnum skipað nefnd til að leiða fyrir hönd stjórn­valda sátta­við­ræður við fyrrum sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu sem sýkn­aðir voru með dómi Hæsta­réttar Íslands þann 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn í end­ur­upp­töku­máli og aðstand­endur þeirra.

[links]Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Nefndina skipa Kristrún Heim­is­dóttir lög­fræð­ingur, en hún mun sitja sem full­trúi for­sætiráðu­neytis og for­maður nefnd­ar­innar, Bryndís Helga­dóttir skrif­stofu­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og Magnús Óskar Haf­steins­son sér­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Verkefni nefnd­ar­innar eru nánar til­tekið að koma fram fyrir hönd stjórn­valda í við­ræðum og sátta­um­leit­unum við aðila máls­ins og aðstand­endur þeirra og gera til­lögu til for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórnar um hugs­an­lega greiðslu miska- og skaða­bóta eða eftir atvikum svo­nefndra sann­girn­is­bóta til aðila máls­ins og aðstand­enda þeirra, segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár