Forsætisráðherra biður fyrrum sakborninga, aðstandendur þeirra og annarra sem átt hafa um sárt að binda vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins afsökunar á því ranglæti sem þau hafa mátt þola.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar vegna nýfallins sýknudóms Hæstaréttar Íslands í málum allra dómfelldu í endurupptökumáli í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
Dómur í málinu var kveðinn upp í gær.
Fjölmenni var viðstatt dómsuppkvaðninguna í Hæstarétti í gær, sem var sýnd í beinni útsendingu, þvert á almennar reglur réttarins sem heimila ekki upptökur af dómhaldi, en undantekning var gerð í þessu tilviki.
Fyrirfram var búist við sýknudómi, enda krafðist ákæruvaldið sýknu í sínum málflutningi. Erfitt er að sjá hvernig rétturinn gæti sakfellt í málinu þar sem enginn gerir kröfu um sakfellingu. Mönnum greinir helst á í því hversu langt Hæstiréttur mun ganga í að lýsa yfir sakleysi ákærðu í dómsniðurstöðu sinni.
Endurupptökunefnd féllst í febrúar í fyrra á að dómur Hæstaréttar í málinu sem felldur var árið 1980 skyldi tekinn upp hvað varðaði fimm sakborninga af sex. Endurupptökubeiðni Erlu Bolladóttur var hins vegar hafnað. Settur saksóknari í málinu, Davíð Þór Björgvinsson, við það tilefni að sakfelling í málinu hefði ekki verið studd við sönnunargögn sem ekki verði véfengd með skynsamlegum rökum. Málflutningur fór fram fyrir tæpum hálfum mánuði.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir