Verðbólga hækkar skarpt milli mánaða - Flugfargjöld hækkuðu um 20 prósent

Verð­bólga mælist nú 3,3 pró­sent og hækkar umtals­vert á milli mán­aða. Gjald­þrot WOW air hefur þar mikil áhrif en verð á flug­far­gjöldum hækk­aði um 20,6 pró­sent á milli mán­aða.

WOW air varð gjaldþrota í lok mars.
WOW air varð gjald­þrota í lok mars. Mynd: Isavia

Tólf mán­aða verð­bólga hækk­aði á milli mán­aða og mælist nú 3,3 pró­sent. Hún mæld­ist 2,9 pró­sent við síð­ustu mæl­ingu fyrir mán­uði síðan. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Á meðal þess sem gerst hefur frá því að síð­asta mæl­ing á tólf mán­aða verð­bólgu var birt er gjald­þrot WOW air í lok mars mán­aðar. Í frétt Hag­stof­unnar segir að verð frá flug­far­gjöldum til útlanda hafi hækkað um 20,6 pró­sent milli mán­aða. „Gjald­þrot fyr­ir­tækis í far­þega­flugi til og frá Íslandi um síð­ustu mán­aða­mót hafði áhrif á nið­ur­stöðu mæl­ingar á vísi­tölu neyslu­verðs nú. Auk þess er algengt að sjá hærri flug­far­gjöld í kringum páska. Mælingin tekur til­lit verðs á helstu flug­leiðum milli Íslands og Evrópu ann­ars vegar og Íslands og Norður-Ameríku hins vegar. Mælt er verð hjá helstu þjón­ustu­veit­endum á hverri leið og gert ráð fyrir að ferð­ast sé frá Íslandi og aftur til baka.“

Hafði lækkað síðustu mánuði

Verð­bólgan hækk­aði skarpt á síð­ari hluta árs­ins 2018 og mæld­ist 3,7 pró­sent í des­em­ber síð­ast­liðn­um. Hún hjaðn­aði síðan hratt í byrjun árs og fór aftur undir þrjú pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði.

Verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent. Vel hefur gengið á und­an­förnum árum að halda verð­bólg­unni undir því mark­miði. Verð­bólgan fór undir 2,5 pró­sent mark­miðið í febr­úar 2014 og hélst þar þangað til í mars í fyrra.

Frá febr­úar 2014 hefur verð­bólga mælst þrjú pró­sent eða hér­lendis í fimm mán­uði, þ.e. frá nóv­em­ber 2018 og fram í febr­úar síð­ast­lið­inn og svo nú, þegar hún mælist 3,3 pró­sent.

Verð­bólga hefur áhrif á lán heim­ila

Þróun verð­bólgu skiptir íslensk heim­ili miklu máli þar sem þorri lána þeirra eru verð­tryggð. Það þýðir að þróun verð­bólgu hefur áhrif á þróun lána þeirra. Því meiri verð­bólga því hærri verð­bætur leggj­ast á lán­in, og því meira þarf að greiða til baka af höf­uð­stól þess.

Í skýrslu sem Íslands­banki vann og birti í októ­ber í fyrra kom fram að 77 pró­sent heild­ar­skulda íslenskra heim­ila væru verð­tryggð­ar.

Slík lán hafa verið hag­kvæm­asti kost­ur­inn sem boð­ist hefur íslenskum neyt­endum á und­an­förnum árum þar sem verð­bólga hef­ur, líkt og áður sagði, að mestu verið við eða undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miðum Seðla­banka Íslands síð­ast­lið­inn fimm ár.

Sam­hliða hafa láns­kjör batnað umtals­vert, þótt þau séu enn langt frá því að vera á pari við það sem er í boði hjá öðrum þjóðum sem Ísland ber sig saman við. Þannig eru vextir á ódýr­ustu verð­tryggðu lán­unum sem bera breyti­lega vexti nú 2,15 pró­sent og alls bjóða níu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sjóðs­fé­lögum sínum slík lán með vöxtum sem eru undir þremur pró­sent­um. Hægt er að skoða sam­an­burð á hús­næð­is­lánum sem eru í boði á síð­unni Herborg.is.

Verð­tryggðir breyti­legir vextir hjá bönk­unum þremur eru hins vegar á bil­inu 3,55 til 3,89 pró­sent. Ódýr­astir hjá rík­is­bank­anum Lands­banka og dýr­astir hjá Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár