WOW skuldaði Isavia tvo milljarða í lok febrúar

Isavia gerði sam­komu­lag við WOW air í sept­em­ber í fyrra um hvernig flug­fé­lagið gæti greitt him­in­háa skuld sína við rík­is­fyr­ir­tækið. Á grund­velli þess sam­komu­lags gat Isavia haldið vél frá WOW air á Kefla­vík­ur­flug­velli sem veði fyrir greiðslu.

Isavia og WOW air gerðu sam­komu­lag um það í lok sept­em­ber 2018 um hvernig flug­fé­lagið ætl­aði að greiða upp van­skila­skuld sína við Kefla­vík­ur­flug­völl. Þá námu van­skil flug­fé­lags­ins við Isavia, rekstr­ar­að­ila flug­vall­ar­ins, um einum millj­arði króna. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Í frétt blaðs­ins segir enn fremur að skuld WOW air við Isavia hafi staðið í 1.954 millj­ónum króna í lok febr­úar 2019, mán­uði áður en að félagið varð gjald­þrota. Sam­komu­lagið sem gert var í fyrra­haust hafi snú­ist um að greiða van­skila­skuld­ina við Isavia upp í 13 afborg­unum sem áttu að fara fram mán­að­ar­lega frá og með nóv­em­ber 2018. WOW air greiddi sam­kvæmt sam­komu­lag­inu fram í mars, þegar 30 millj­óna króna reikn­ingur var ekki greiddur.

Það var á grund­velli þessa sam­komu­lags sem Isavia gat haldið einni flug­vél frá WOW air kyrr­settri á Kefla­vík­ur­flug­velli sem veð fyrir þeirri miklu skuld sem flug­fé­lagið hafði safnað upp gagn­vart Isavia. Sú vél var í eigu leigu­sala WOW air, ekki flug­fé­lags­ins sjálfs, og sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins var eig­and­inn hvorki upp­lýstur um sam­komu­lagið af Isavia né WOW air. Nú stefnir Isavia að því að bjóða upp þá vél á upp­boði ef eig­andi hennar, banda­ríska flug­véla­leigu­fyr­ir­tækið Air Lease Corportion, greiðir ekki tæp­lega tveggja millj­arða króna skuld WOW air við Isavia.

[adspot]Isavia á og rekur flug­­vell­ina í land­inu og er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

Skúli neitaði umfangi skuldarinnar

Í Morg­un­blað­inusegir enn fremur að skuld WOW air við Isavia hafi verið um tveir millj­arðar króna í fyrra­haust og að um helm­ingur hennar hafi verið gjald­fall­inn þegar sam­komu­lagið var gert.

Það rímar við frétt sem Morg­un­blaðið sagði um skuld WOW air við Isavia í sept­em­ber í fyrra. Skúli Mogensen, stofn­andi, eig­andi og for­stjóri WOW air, setti þá stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann sagði að frétt Morg­un­blaðs­ins væri röng. Þar sagði m.a.: „„Ég get ekki orða bund­ist lengur að sjá hvernig sumir fjöl­miðlar kepp­ast um að tor­tryggja WOW air og það sem við höfum byggt upp und­an­farin ár. Ég hrein­lega trúi ekki að nokkur blaða­maður eða fjöl­mið­ill sé svo skamm­sýnn að vilja vís­vit­andi skemma fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu félags­ins. Nýjasta „frétt­in" er að við eigum að skulda Isavia yfir tvo millj­arða. Þessu er slegið upp með stórri fyr­ir­sögn í æsifrétta­stíl á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag og er vitnað í nafn­lausan heim­ild­ar­mann. Við leggjum ekki í vana að tjá okkur um ein­staka birgja eða þjón­ustu­samn­inga en þetta er ein­fald­lega rangt.“

Forstjórinn og stjórnarformaðurinn farnir

Svipt­ingar hafa orðið innan Isavia und­an­farið og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans má rekja þær að minnsta kosti að hluta til þeirrar stöðu sem fyr­ir­tækið var komið í vegna WOW air. Umburð­ar­lyndi Isavia gagn­vart WOW air var harð­lega gagn­rýnt af ýmsum fyrir að vera and­stætt eðli­legum sam­keppn­is­sjón­ar­mið­um.

Í gær var greint frá því að Björn Óli Hauks­son, for­stjóri Isavia, hef­ði sagt starfi sínu lausu. Hann hætti sam­stundis, en Björn Óli hafði stýrt Isavia í ára­tug.

Þá var skipt var um stjórn­ar­for­mann í fyr­ir­tæk­inu í síð­asta mán­uði þegar Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, tók við af Ingi­mundi Sig­ur­páls­syni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár