Morgunblaðið: WOW air skuldar Isavia milljarða

WOW air skuldar Isavia ohf. um tvo millj­arða króna í lend­ing­ar­gjöld sam­kvæmt Morg­un­blað­inu. Af þeirri skuld er um helm­ing­ur­inn nú þegar gjald­fall­inn.

WOW air skuldar Isavia ohf. um tvo millj­arða króna í lend­ing­ar­gjöld sam­kvæmt heim­ildum Morg­un­blaðs­ins. Af þeirri skuld er um helm­ing­ur­inn nú þegar gjald­fall­inn.

[links]Í frétt Morg­un­blaðs­ins segir að WOW hafi ekki greitt lend­ing­ar­gjöld á Kefla­vík­ur­flug­velli frá því í vor og hafa inn­lendar við­skipta­kröfur Isavia hækkað um 1.220 millj­ónir króna frá ára­mótum sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi Isavia.

Ekki ligg­ur enn ljóst fyr­ir með hvaða hætti Isa­via hyggst inn­heimta skuld flug­fé­lags­ins.

Þegar Morg­un­blaðið leit­aði við­bragða Isa­via feng­ust þau svör að fyr­ir­tækið tjáði sig ekki um mál­efni ein­staka við­skipta­vina sinna. Þegar spurt var út í al­mennt verk­lag við úr­lausn mála þegar flug­fé­lög lentu í van­skil­um með lend­ing­ar­gjöld var svarið á þá leið að „Isa­via vinn­ur með við­kom­andi fé­lög­um að lausn mála ef upp koma til­vik þar sem van­skil verða á lend­ing­ar­gjöld­um með hags­muni Isa­via að leið­ar­ljósi.“

Greint var frá því í gær að skulda­bréfa­út­boði WOW air ljúki á þriðju­dag­inn og að útgáfan verði að lág­marki 50 millj­ónir evra. Skulda­bréfin eru til þriggja ára og vextir eru níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euri­bor vexti, sem eru milli­banka­vextir á evru­mark­aði.

Skúli Mogensen segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að frétt Morg­un­blaðs­ins sé röng. Þar segir:

„Ég get ekki orða bund­ist lengur að sjá hvernig sumir fjöl­miðlar kepp­ast um að tor­tryggja WOW air og það sem við höfum byggt upp und­an­farin ár. Ég hrein­lega trúi ekki að nokkur blaða­maður eða fjöl­mið­ill sé svo skamm­sýnn að vilja vís­vit­andi skemma fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu félags­ins. Nýjasta "fréttin" er að við eigum að skulda Isavia yfir tvo millj­arða. Þessu er slegið upp með stórri fyr­ir­sögn í æsifrétta­stíl á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag og er vitnað í nafn­lausan heim­ild­ar­mann. Við leggjum ekki í vana að tjá okkur um ein­staka birgja eða þjón­ustu­samn­inga en þetta er ein­fald­lega rangt. Við eigum mjög gott sam­starf við Ísavía og höfum aldrei skuldað þeim yfir tvo millj­arða króna og það er til skammar að Morg­un­blaðið sé að slá upp slíkum fyr­ir­sögnum án áreið­an­legra heim­ilda.

Svo í ofaná­lag kemur tíma­bund­inn for­stjóri Icelandair og fer að kvarta yfir mis­munun og að við séum að selja flug­miða of lágu verði. (þá vitum við hver staðan væri ef WOW hefði ekki komið til sög­unnar!) Við getum og munum halda áfram að selja flug­miða á frá­bærum verðum ein­fald­lega af því að við erum með mun lægri rekstrar kostnað en Icelandair. Afkoma WOW air á þriðja árs­fjórð­ungi verður góð og útlit fyrir að seinni hluti árs­ins verði einnig góður. 
Það hefur ekk­ert félag í Íslands­sög­unni fengið jafn mikla rík­is­að­stoð og verið bjargað jafn oft af rík­inu eins og Icelandair. Jafn­framt er rík­is­bank­inn Íslands­banki stærsti lán­veit­andi félags­ins.

Ég hlakka til að klára útboðið okkar á þriðju­dag­inn og fá frið til að halda áfram að byggja upp WOW air með okkar frá­bæra teymi, öllum til hags­bóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár