Forstjóri Isavia hættur

Björn Óli Hauksson, sem stýrt hefur rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia í ára­tug, er skyndi­lega hættur störfum. Hann hættir sam­stundis.

Björn Óli Hauksson.
Björn Óli Hauksson. Mynd: Aðsend mynd

Björn Óli Hauksson, for­stjóri Isavia, hef­ur sagt starfi sínu lausu. Hann lætur nú þegar af störfum sam­kvæmt til­kynn­ingu. Isavia á og rekur flug­vell­ina í land­inu og er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

Skipt var um stjórn­ar­for­mann í fyr­ir­tæk­inu í síð­asta mán­uði þegar Orri Hauksson, for­stjóri Símans, tók við af Ingi­mundi Sig­ur­páls­syni.

Í til­kynn­ing­unni segir Björn Óli að hann hafi nú starfað hjá Isavia í ára­tug og að sá tími hafi verið við­burða­ríkur og skemmti­legur. „Ég hef fengið að taka þátt í upp­bygg­ingu á Isavia sem hefur verið ein­stakt. Einnig hef ég fengið tæki­færi til að vinna með frá­bæru starfs­fólki í umhverfi þar sem áskor­anir eru og hafa verið miklar. Ég er þakk­látur fyrir það hversu vel hefur tek­ist til og nú er að hefj­ast enn einn kafl­inn í sögu Isavia. Í því ljósi tel ég að nú sé góður tími fyrir nýtt fólk til að taka við kefl­inu.”

Orri Hauksson segir á sama stað að stjórnin virði ákvörðun Björns Óla um að nú sé góður tíma­punkt­ur til að láta af störf­um. Hafist verði handa við að ráða nýjan for­stjóra. Fram að því munu Elín Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri, og Svein­björn Ind­riða­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs, ann­ast dag­legan rekstur félags­ins.

Skuld WOW air og launamál

Isavia hefur verið mikið til umfjöll­unar und­an­farið, meðal ann­ars vegna vand­ræða WOW air sem end­uðu með gjald­þroti í síð­asta mán­uði. Isavia hafði veitt WOW air umtals­vert svig­rúm vegna greiðslu á lend­ing­ar­gjöldum og voru þær skuldir vel á annan millj­arð króna hið minnsta. Vegna þeirra gerði Isavia kröfu um að ein þeirra véla sem WOW air var með á leigu væri alltaf stað­sett á Kefla­vík­ur­flug­velli. Sú vél hefur síðan verið notuð til að reyna að inn­heimta skuld WOW air við Isavia. Umburð­ar­lyndi Isavia gagn­vart WOW air var harð­lega gagn­rýnt af ýmsum fyrir að vera and­stætt eðli­legum sam­keppn­is­sjón­ar­miðum.

Launamál Björns Óla hafa líka verið umtals­vert til umfjöll­unar sið­ustu miss­eri. Kjarninn greindi frá því fyrr á þessu ári að heild­­ar­­laun ­Björns Óla hefðu hækkað um 43,3 pró­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði árið 2017 til stjórn­ar ­fyr­ir­tæk­is­ins á ný. Launin hækk­uðu úr 1.748.000 krónum á mán­uði í nóv­em­ber 2017 í 2.504.884 í maí 2018.

Þetta kom fram í svari Isa­vi­a við fyr­ir­­spurn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um hvernig fyr­ir­tækið hefði brugð­ist við til­mælum sem beint var til fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu í jan­úar 2017 er varðar launa­á­kvarð­anir og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár