Allskyns mögulegir fjárfestar voru boðaðir á endurreisnarfund WOW air fyrir viku

Á meðal þeirra sem sátu fund Arctica Finance um mögu­lega end­ur­reisn WOW air á mánu­dag fyrir viku voru Pálmi Har­alds­son, fyrr­ver­andi eig­andi Iceland Express, og Jón Ásgeir Jóhann­es­son fjár­festir. Pt Capital á ekki í við­ræðum um að end­ur­reisa WOW air.

Unnið er að því að reyna að koma WOW air aftur í loftið. Til þess er fundað stíft með allskyns fjárfestum.
Unnið er að því að reyna að koma WOW air aftur í loftið. Til þess er fundað stíft með allskyns fjár­festum. Mynd: Aðsend mynd

Keahótel hafa ekki hug á því að koma að fjár­fest­ingu í end­ur­reistu WOW air. Fulltrúi félags­ins, sem í 75 pró­sent eigu dótt­ur­fé­laga banda­ríska eigna­stýrt­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Pt Capital, var á meðal hóps manna sem fund­uðu með Skúla Mogensen og Arctica Finance, ráð­gjafa Skúla, fyrir viku síðan á skrif­stofu Arctica Finance en sá fundur var hald­inn að und­ir­lagi þeirra síð­ast­nefndu. Um var að ræða upp­lýs­inga­fund.

[links]Hugh Short, for­stjóri Pt Capital setti hins vegar færslu á LinkedIn-síðu sína í gær þar sem hann sagði að fyr­ir­tækið væri ekki í við­ræðum um að end­ur­reisa WOW air. Fréttir íslenskra miðla af því um helg­ina væru rangar. Þar vísar hann til fréttar sem sögð var á RÚV í gær, og tekin upp af nokkrum öðrum íslenskum miðlum, um fund­ar­höld milli Skúla og full­trúa Kea­hót­ela. Hana er hægt að lesa hér.

Pt Capital á hlut í tveimur fyr­ir­tækjum á Íslandi. Annars vegar á það hlut í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova og hins vegar 75 pró­sent hlut í Kea­hót­elum sem keyptur var í gegnum dótt­ur­fé­lög á 5,5 millj­arða króna sum­arið 2017. Þetta eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í Alaska á því ýmis­legt undir því að vel gangi hér­lendis.

[adspot]Á meðal ann­arra sem sátu ofan­greindan fund, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, var Pálmi Har­alds­son, fyrr­ver­andi eig­andi Iceland Express Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fjár­festir­inn Guðni Eiríks­son, Bogi Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Bustra­vel Iceland og ýmsir aðrir tengdir íslenskri ferða­þjón­ustu. Alls voru vel á annan tug aðila á fund­inum þegar teymið sem var á vegum Skúla og Arctica Finance var með talið.

Til­gangur fund­ar­ins var að reyna að koma saman hópi sem gæti komið að því að fjár­festa í end­ur­reisn WOW air. Þeim sem á hann var boðið gerðu slíkt án nokk­urra skuld­bind­inga um þátt­töku í þeirri end­ur­reisn.

Vilja endurreisa WOW air

Á meðan að WOW air lifði var mikið reynt að fá flesta þá erlendu fjár­festa sem eiga eitt­hvað undir á Íslandi til að koma að björgun flug­fé­lags­ins, sér­stak­lega eftir að Icelandair sleit við­ræðum um kaup á WOW air sunnu­dag­inn 24. mars síð­ast­lið­inn. Þær umleit­anir voru meðal ann­ars á vegum Arion banka, eins stærsta kröfu­hafa WOW air.

Það skil­aði ekki árangri og á end­anum fór WOW air í þrot fimmtu­dag­inn 28. mars 2019. Fljót­lega eftir að gjald­þrotið var stað­fest spurð­ist út að Skúli Mogensen, stofn­andi, eig­andi og for­stjóri WOW air, væri að vinna að end­ur­reisn flug­fé­lags­ins.

Í við­skipta­á­ætlun sem er dag­sett 3. apríl, og hefur verið dreift víða innan íslensks við­skipta­lífs í von um að ein­hverjir með fjár­muni á milli hand­anna hafi áhuga á að taka þátt í verk­efn­inu, sem stýrt ef af Skúla og nokkrum fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum WOW air, er rakið hvað myndi fel­ast í slíkri end­ur­reisn og það sem aflaga fór síð­ast með þeim afleið­ingum að WOW air fór í þrot.

[adspot]Hið end­ur­reista félag á að kaupa ýmis verð­mæti úr þrota­búi WOW air, meðal ann­ars vöru­merkið og bók­un­ar­kerfið. Svo er stefnt að því að taka þátt í leigu­verk­efnum í tólf vikur fyrir stórt evr­ópskt flug­fé­lag en frá júnílokum 2019 á hið end­ur­reista félag að fljúga til 13 áfanga­staða í Evrópu og Banda­ríkj­unum (London, París, Amster­dam, Berlín, Kaup­manna­höfn, Dublin, Tenerife, Alicante, Frank­furt, Barcelona, New York, Baltimore og Boston).

Upp­runa­lega á að gera þetta með því að nota fimm Airbus-vélar en strax á næsta ári á þeim að fjölga í sjö og svo í tíu vorið 2021. Samkvæmt áætlun á hið nýja WOW air að geta flutt tæp­lega 600 þús­und far­þega á síð­ari helm­ing þessa árs, um 1,5 millj­ónir á næsta ári og rúm­lega tvær millj­ónir árið 2021. Til sam­an­burðar flutti WOW air 3,5 millj­ónir far­þegar í fyrra.

Vantar tæpa fimm milljarða

Til þess að láta þessa hug­mynd ganga upp þá hafa Skúli og teymið hans, ásamt full­trúum frá Arctica Finance, verið að funda með fjöl­mörgum fjár­festum síð­ustu vik­urnar. Þeim vantar nefni­lega 40 millj­ónir dali, um 4,8 millj­arða króna, til að láta dæmið ganga upp. Ef ein­hver er til­bú­inn að leggja þeim til það fé eru Skúli og lyk­il­stjórn­end­urnir til­búnir að láta við­kom­andi eftir 49 pró­sent í end­ur­reistu flug­fé­lagi á móti 51 pró­sent hlut Skúla og hóps­ins í kringum hann. Sá hópur skuld­bindur sig líka til að taka á sig 30 pró­sent launa­lækkun frá því sem áður var. Vænt­an­legir fjár­festar fá einnig svo­kall­aðan „fyrstur inn, fyrstur út“ fyr­ir­vara, sem þýðir að þeir fá fjár­fest­ingu sína end­ur­greidda að fullu áður en að hluta­fénu verður skipt upp milli þeirra og WOW-hóps­ins.

Stór hluti kynn­ing­ar­innar, sem Kjarninn hefur undir höndum, snýst um að tíunda þau mis­tök sem WOW air gerði síð­ustu árin í rekstri sínum og skil­uðu því að rekstr­ar­tap félags­ins var 176 millj­ónir dala í fyrra, eða um 21,1 millj­arður króna á gengi dags­ins í dag.

Auk þess kemur fram í henni að ef áætl­unin gangi eftir þá verði hægt að tryggja fjár­festum útgöngu­leið innan þriggja ára, mögu­lega í gegnum hluta­fjár­út­boð.

Við­mæl­endur Kjarnans úr fjár­mála­geir­anum segja að end­ur­reisnin þurfi helst að klár­ast fyrir páska ef hún á að eiga ein­hverja von. Mun minni líkur séu á því en meiri að svo verði og að þær líkur versni með hverjum deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár