Gera ráð fyrir miklum viðsnúningi í rekstri WOW air

Áætlun um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu WOW air gerir ráð fyrir miklum við­snún­ingi í rekstri félags­ins á næstu árum. Gangi áætl­unin eftir er gert ráð fyrir að lausa­fjár­staða félags­ins verði jákvæð um meira en millj­arð um mitt næsta ár.

Forsvarsmenn WOW air og ráðgjafar flugfélagsins funduðu um endurskipulagningu félagsins í gærkvöldi. Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins, hefur drög að kynningu á endurskipulagningu félagsins undir höndunum en samkvæmt henni er gert ráð fyrir miklum viðsnúning í rekstri flugfélagsins á næstu árum. Meðal annars er gert ráð fyrir að lausafjárstaða félagsins verði jákvæð um 1,1 milljarð króna um mitt næsta ár en í dag er hún neikvæð um rúmlega 1,3 milljarða króna og búist er við að hún versni enn frekar.

Eigendur skuldabréfa muni eignast 23 prósent í félaginu

[links]Upp úr hádegi í gær sendi WOW air frá sér tilkynningu um að félagið hefði náð samkomulagi við meirihluta skuldabréfaeigenda um fjárhagslega endurskipulagningu þess. Nú vinnur félagið að því að ná sam­komu­lagi við aðra kröfu­hafa, eins og flug­véla­leigu­fé­lög, en umfram allt er verið að reyna að vinna eins hratt og kostur er, að því að fá meira fjár­magn inn í félag­ið, enda er það á ystu nöf og bráð­vantar pen­inga til að geta haldið áfram rekstri og staðið við skuld­bind­ing­ar, þar á meðal launa­út­keyrslu fyrir næstu mánaðamót.

Að því sem fram kemur í kynningunni sem Markaðurinn hefur undir höndunum miða áform stjórnenda WOW air að því að breyta skuldum þess við skuldabréfaeigendur og aðra lánardrottna upp á samanlagt 120,4 milljónir dala, jafnvirði um 14,6 milljarða króna, í hlutafé og gefa í kjölfarið út ný forgangshlutabréf fyrir 40 milljónir dala, sem jafngildir 4,8 milljörðum króna, til þess að fullfjármagna rekstur flugfélagsins.

Fjárfestirinn sem leggur flugfélaginu til 40 milljónir dala í nýtt hlutafé muni þá eignast 51 prósents hlut í félaginu sem og forgangsrétt að arðgreiðslum og öðrum útgreiðslum félagsins, samkvæmt kynningunni. Meðal þeirra sem horft er til þess að fá aftur að borð­inu er banda­ríska félagið Indigo Partners, þar sem hinn 81 árs gamli Bill Franke er aðal­eig­andi og stjórn­andi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Í kynningunni segir að eigendur skuldabréfa WOW air, sem samþykktu í gær að breyta kröfum sínum á hendur félaginu í hlutafé, munu eignast 23 prósenta hlut í félaginu og aðrir lánardrottnar 26 prósenta hlut. En í áætlun flugfélagsins er gert ráð fyrir að allir lánardrottnarnir, þar á meðal Arion banki og Isavia, samþykki að breyta kröfum sínum í hlutafé.

Gangi áform WOW air eftir gera forsvarsmenn félagsins ráð fyrir að lausa­fjár­staða félags­ins verði jákvæð um 1,1 millj­arð króna um mitt næsta ár. Í lok árs 2021 er svo gert ráð fyrir að lausa­fjár­staðan verði jákvæð um 9,6 millj­arða króna og rekstr­ar­hagn­aður sama ár verði 8,7 millj­arð­ar. Í ár er gert ráð fyrir 900 millj­óna króna tapi á rekstri flug­fé­lags­ins.

Lán Títans breytt í hlutabréf en félagið missti yfirráð yfir WOW air í gær

Í kynn­ing­unni segir að auk þess muni víkj­andi láni sem eign­ar­halds­fé­lagið Títan, sem er í fullu í eigu Skúla Mogensen, veitti flug­fé­lag­inu verði breytt í hluta­bréf sem verða án atkvæð­is­réttar. Lánið stendur í um 6,3 millj­ónum dala, jafn­virði 760 millj­óna króna.

Í gær fjall­aði Kjarninn um að þegar til­kynnt var um að sam­komu­lagi hefði náðst um skulda­bréfa­eig­endur myndu eign­ast hlut í félag­inu, voru kröfu­hafar í reynd að taka yfir WOW air. Við þessa ákvörðun skulda­bréfa­eig­enda hafi Tít­an í raun misst yf­ir­ráð yfir fé­lag­inu, en sam­kvæmt umfjöllun mbl.is um málið þá verður Skúli áfram hlut­hafi í félag­inu, þar sem hann keypti um 11 pró­sent af skulda­bréfa­flokknum sjálf­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár