Kröfuhafar í raun búnir að taka yfir WOW - Leita að fjárfestum

Þegar til­kynnt var um að sam­komu­lagi hefði náðst um skulda­bréfa­eig­endur myndu eign­ast hlut í félag­inu, voru kröfu­hafar í reynd að taka yfir félagið.

Skúli Mogensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air, hefur misst félagið til kröfu­hafa, en þetta varð ljóst eftir að heim­ild skulda­bréfa­eig­enda til að taka félagið virkj­að­ist, þegar félagið gat ekki greitt um 150 millj­ónir króna í vexti af skulda­bréfa­flokknum.

Frá þessu greindi mbl.is í dag, en skulda­bréfa­flokk­ur­inn var upp á 50 millj­ónir evra, um 6,8 millj­arða króna, en skulda­bréfa­út­boðið fór fram í haust.

Við þessa ákvörðun skulda­bréfa­eig­enda miss­ir eign­ar­halds­fé­lagið Tít­an Fjár­fest­inga­fé­lag ehf. sem að fullu leyti er í eigu Skúla Mo­gen­sen, yf­ir­ráð yfir fé­lag­inu, en að því er fram kemur í umfjöllun mbl.is þá verður hann áfram hlut­hafi í félag­inu, þar sem hann keypti um 11 pró­sent af skulda­bréfa­flokknum sjálfur.

Nú er unnið að því að ná sam­komu­lagi við aðra kröfu­hafa, eins og flug­véla­leigu­fé­lög, en umfram allt er verið að reyna að vinna eins hratt og kostur er, að því að fá meira fjár­magn inn í félagið, enda er það á ystu nöf og bráð­vantar pen­inga til að geta haldið áfram rekstri og staðið við skuld­bind­ingar, þar á meðal launa­út­keyrslu fyrir næstu mán­að­ar­mót.

Meðal þeirra sem horft er til þess að fá aftur að borð­inu, er banda­ríska félagið Indigo Partners, þar sem hinn 81 árs gamli Bill Franke er aðal­eig­andi og stjórn­andi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Ekki er langt síðan til­kynnt var um við­ræðu­slit milli WOW air og Indigo Partners.

Liv Bergþórs­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­stjóri Nova, er stjórn­ar­for­maður félags­ins, en aðrir í stjórn eru Helga Hlín Há­kon­ar­dótt­ir lög­maður og Davíð Más­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár