Samþykkja að breyta skuldabréfum í hlutafé í WOW air

Skulda­bréfa­eig­endur WOW air hafa sam­þykkt að breyta skulda­bréfum sínum í hlutafé og þá eru form­legar við­ræður hafnar við fjár­festa um mögu­lega aðkomu að rekstri félags­ins.

Eig­endur skulda­bréfa WOW air hafa sam­þykkt að breyta skulda­bréfum sínum í hlutafé og þá eru form­legar við­ræður hafnar við fjár­festa um mögu­lega aðkomu að rekstri félags­ins.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá WOW air sem send var fjöl­miðlum í dag.

„Þetta er mik­il­vægt skref í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu fé­lags­ins og stöðug­leika WOW Air til lengri tíma litið,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. 

[links]Félagið þarf nauð­syn­lega á fjár­fest­ingu að halda, sem allra fyrst, en rætt hefur verið um að félagið þurfi minnst um 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 5 millj­arða króna, til að styrkja efna­hag sinn, í það minnsta til skamms tíma. 

Eins og komið hefur fram í fréttum síð­ast­lið­inna daga, þá reynir Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, nú allt til að bjarga félag­inu frá gjald­þroti, en staða félags­ins er erfið.

Í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í gær, segir að kapp sé lagt á það að styrkja fjár­hags­stöðu félags­ins með því að grynnka á skuldum – með því að umbreyta þeim í hlutafé – og fá inn meira fjár­magn til rekstr­ar­ins.

Þetta er hins vegar kapp við tím­ann, þar sem fjár­hags­staðan er erfið og mán­að­ar­mót framund­an, sem kosta félagið mörg hund­ruð millj­ónir króna, þar sem greiða þarf laun og standa við aðrar skuld­bind­ing­ar.

Félagið tap­aði 22 millj­örðum króna í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Morg­un­blaðið birti í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár