Skuldabréfaeigendur tilbúnir að leggja sitt af mörkum - Lítill tími til stefnu

Skulda­bréfa­eig­endur WOW air eru til­búnir að taka hlut í félag­inu í skiptum fyrir nið­ur­fell­ingu skulda.

Eigendur skulda­bréfa WOW air eru til­búnir að gefa eftir skuldir gegn því að verða eig­endur 49 pró­sent hluta­fjár í félag­inu, að því er fram kom á mbl.is í kvöld.

Fór fram fundur fyrr í kvöld þar sem þessi atriði voru meðal ann­ars rædd. Félagið þarf nauð­syn­lega á fjár­fest­ingu að halda, sem allra fyrst, en rætt hefur verið um að félagið þurfi minnst um 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 5 millj­arða króna, til að styrkja efna­hag sinn, í það minnsta til skamms tíma. 

Eins og komið hefur fram í dag, þá reynir Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, nú allt til að bjarga félag­inu frá gjald­þroti, en staða félags­ins er fall­völt.

Í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í dag, segir að kapp sé lagt á það að styrkja fjár­hags­stöðu félags­ins með því að grynnka á skuldum - með því að umbreyta þeim í hlutafé - og fá inn meira fjár­magn til rekstr­ar­ins.

Þetta er hins vegar kapp við tím­ann, þar sem fjár­hags­staðan er erfið og mán­að­ar­mót framund­an, sem kosta félagið mörg hund­ruð millj­ónir króna, þar sem greiða þarf laun og standa við aðrar skuld­bind­ing­ar.

Félagið tap­aði 22 millj­örðum króna í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Morg­un­blaðið birti í morgun.

For­svars­men WOW air hafa varist frétta í dag, og ekki gefið færi á því að veita upp­lýs­ingar, og þá hefur ekki náðst í Þórólf Árnason, for­stjóra Sam­göngu­stofu, en hún gefur út flug­rekstr­ar­leyfi og hefur eft­ir­lit með þeim félögum sem það hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár