Aflýsa flugi frá London - Rauðglóandi síminn hjá Neytendasamtökunum

For­svars­menn WOW air reyna nú allt til að bjarga félag­inu frá gjald­þroti.

Flugi WOW air frá Gatwick til Kefla­vík­ur sem áætlað var seint í kvöld hef­ur verið af­lýst, að því er fram kemur á vef mbl.is. Þetta er annað flug WOW air frá Gatwick til Kefla­vík­ur í dag sem er af­lýst, en flugi fé­lags­ins til Lund­úna í morg­un var af­lýst.

Í fréttum RÚV í kvöld koma fram, að upp­lýs­inga­full­trúi WOW air, Svanhvít Frið­riks­dóttir, hefði greint RÚV frá því, að áætl­un­ar­flug ætti að ganga sam­kvæmt áætlun á morgun.

Í skila­boðum sem far­þegar fengu send seinni­part­inn í dag, vegna flugs­ins frá London til Kefla­víkur, seg­ir að flug­inu hafi verið frestað vegna rekstr­ar­tak­mark­ana (e. Operati­onal restricti­ons), að því er fram kemur á mbl.is.

Eins og komið hefur fram í dag, þá reynir Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, nú allt til að bjarga félag­inu frá gjald­þroti, en staða félags­ins er fall­völt. Í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í dag, segir að kapp sé lagt á það að styrkja fjár­hags­stöðu félags­ins með því að grynnka á skuldum - með því að umbreyta þeim í hlutafé - og fá inn meira fjár­magn til rekstr­ar­ins.

Þetta er hins vegar kapp við tím­ann, þar sem fjár­hags­staðan er erfið og mán­að­ar­mót framundan, sem kosta félagið mörg hund­ruð millj­ónir króna, þar sem greiða þarf laun og standa við aðrar skuld­bind­ingar.

Fram kom í við­tali á Stöð 2 í kvöld, við Breka Karl­as­son, for­mann Neyt­enda­sam­tak­anna, að fólk hefði mikið sett sig í sam­band við sam­tökin vegna stöðu WOW air, enda fjöldi fólks með bókuð flug og vill fá á hreint hvernig rétt­ar­staða þess er.

Full­trúar WOW air hafa fundað með Sam­göngu­stofu í dag, en hún gefur út flug­rekstr­ar­leyfi og getur svipt félög þeim leyfum, ef þau upp­fylla ekki skil­yrði til að sinna rekstr­inum, sam­kvæmt mati stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár