Rúmlega 4 þúsund manns gætu misst vinnuna

Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Reykja­vík Economics gerir ráð fyrir að alls muni 1.450 til 4.350 manns missa vinn­una fari svo að WOW air hætti starf­semi sinni, sam­hliða allt að 2,7 pró­senta sam­drætti, verð­bólgu og geng­is­veik­ingu.

Auglýsing frá WOW air.
Aug­lýs­ing frá WOW air. Mynd: Bára Huld Beck

Hugs­an­legt brott­hvarf WOW air af flug­mark­aði myndu leiða til nið­ur­skurðar 1.450 til 4.350 starfa í ferða­þjón­ustu­geir­anum, sem flest eru stað­sett á Suð­ur­nesjum. Sömu­leiðis er spáð 0,9 til 2,7 pró­senta sam­drætti í lands­fram­leiðslu, sam­hliða geng­is­veik­ingu og auk­inni verð­bólgu. Þetta kemur fram í skýrslu ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Reykja­vík Economics, en Frétta­blaðið greindi fyrst frá.

Samkvæmt Frétta­blað­inu var skýrslan unnin að beiðni WOW air, en til­gangur hennar var að meta efna­hags­leg áhrif félags­ins á íslenskan þjóð­ar­bú­skap. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar voru þær að afleidd áhrif mögu­legs brott­hvarfs flug­fé­lags­ins yrðu tölu­verð í ferða­þjón­ustu­geir­anum vegna færri flug­far­þega til Íslands.

Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið bendir á að lík­legt sé að far­þegum sem koma hingað með tengiflugi milli Evrópu og Ameríku muni fækka veru­lega, en ekki er öruggt að önnur flug­fé­lög myndu taka við Atl­ants­hafs­flugum WOW air. Samkvæmt skýrsl­unni kæmi þessi fækkun niður á innviðum Kefla­vík­ur­flug­vallar og 20 millj­arða króna fjár­fest­ing­ar­á­formum ISAVIA.

Allt að 2,7 prósenta samdráttur

Enn fremur segir Reykja­vík Economics að fækkun ferða­mann­anna myndi leiða til sam­dráttar í efna­hags­lífi lands­ins, en sam­kvæmt sviðs­mynd fyr­ir­tæk­is­ins myndu 10 til 30 pró­sent af núver­andi vinnslu­virði ferða­þjón­ust­unnar tap­ast. Þá væri áætl­aður sam­dráttur í lands­fram­leiðslu á bil­inu 0,9 til 2,7 pró­sent.

Einnig er búist við minni gjald­eyr­is­tekjum, veik­ara gengi og hærri verð­bólgu fari svo að flug­fé­lagið leggi starf­semi sína niður. Þar nefnir skýrslan að gjald­eyr­is­tekjur erlendra ferða­manna sem flugu með WOW air í fyrra hafi numið 89 millj­örðum króna og að skatt­tekjur þeirra hafa numið um 12 millj­örðum króna. Allar líkur væru á geng­is­veik­ingu og auk­inni verð­bólgu í kjöl­far hennar, en skýrslan nefnir þó að lík­legt yrði að Seðla­bank­inn reyni að stemma stigu við geng­is­fall­inu.

Suðurnesin verst úti

Samkvæmt skýrslu­höf­undum myndi brott­fall flug­fé­lags­ins einnig hafa tölu­verð áhrif á vinnu­mark­að­inn. Fyr­ir­tækið gerir ráð fyrir að 5 til 15 pró­sent allra þeirra sem starfa innan ein­kenn­andi atvinnu­greina ferða­þjón­ust­unnar myndu missa vinn­una sína, en það jafn­gildir 1.450 til 4.350 manns. „Það er umtals­vert atvinnu­leysi á íslenskan mæli­kvarða og lík­lega yrðu Suð­ur­nesin einna helst fyrir barð­inu á því,“ segir í skýrsl­unni.

Kjarninn hefur áður fjallað um erf­ið­leika WOW air, en flug­fé­lagið stendur nú í samn­inga­við­ræðum við Icelandair eftir að þeim var slitið við fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners. Við­ræð­urnar fara fram í sam­ráði við stjórn­völd, sem seg­ist fylgj­ast grannt með fram­vind­unni. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði að ekk­ert hafi verið rætt um fjár­hags­lega rík­is­ins í við­tali við mbl.is í gær.

Stefnt er að því að við­ræðum milli WOW air og Icelandair ljúki fyrir næst­kom­andi mánu­dag, 25. Mars. Steinn Logi Björns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Icelandair, sagð­ist í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í gær telja gjald­daga á 150 millj­óna króna vaxta­greiðslu á láni WOW á mánu­dag vera ástæð­una fyrir þeim stutta tíma sem gef­inn er í við­ræð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wowair

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár