Ríkisstjórnin bindur vonir við farsæla niðurstöðu

Í til­kynn­ingu Icelandair til kaup­hallar kemur fram að við­ræður félags­ins við WOW air fari fram í sam­ráði við stjórn­völd.

„Stjórn­völd hafa síð­asta árið fylgst með erf­ið­leikum í alþjóð­legum flug­rekstri og sam­keppn­is­stöðu íslenskra flug­fé­laga í því ljósi. Eigendur Wow air hafa um nokk­urra mán­aða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félags­ins og hafa átt við­ræður við fjár­festa, flug­rek­endur og aðra hag­hafa. Hingað til hafa þær við­ræður ekki skilað þeim árangri sem eig­andi félags­ins stefndi að. Rík­is­stjórnin mun áfram fylgj­ast grannt með fram­vind­unni og bindur vonir við að við­ræður félag­anna muni skila far­sælli nið­ur­stöðu.“

Þannig hljómar til­kynn­ing frá rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, vegna til­kynn­ingar um að Icelandair og WOW air hafi hafið við­ræður um sam­ein­ingu eða kaup Icelandair á síð­ar­nefnda félag­inu, eftir að það slitn­aði upp úr við­ræður WOW air og banda­ríska félags­ins Indigo Partners.

Icelandair segir í til­kynn­ingu að af við­skipt­unum muni ekki verða nema á grund­velli þess að WOW air, sem Skúli Mogensen á og stýrir, sé skil­greint sem fyr­ir­tæki á fallandi fæti, í skiln­ingi sam­keppn­islaga.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans í dag, þá er staðan í flug­iðn­aði um margt krefj­andi um þessar mundir, og hafa íslensku flug­fé­lögin fundið fyrir því. WOW air hefur verið í neyð­ar­vanda um langt skeið, þar sem félagið þarf nauð­syn­lega á fjárinn­spýt­ingu að halda til að geta lifað af.

Icelandair tap­aði 6,8 millj­örðum á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs, en eig­in­fjár­staða félags­ins er traust, en það nam um 55 millj­örðum í lok árs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár