WOW air óskaði eftir ríkisábyrgð á láni

Skúli Mogensen hefur leitað ásjár stjórn­valda og kannað mögu­leika á rík­is­á­byrgð á láni. Lán­veit­andi WOW air hefur sett rík­is­á­byrgð sem skil­yrði fyrir lán­veit­ingu þar sem ekki er talið að nægj­an­leg veð sé að hafa í rekstr­ar­fjár­munum flug­fé­lags­ins sjálf.

Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, leitaðist eftir því síðustu helgi að ríkissjóður veitti flugfélaginu ríkisábyrgð fyrir láni til þess að tryggja rekstur félagsins til skemmri tíma. Beiðni Skúla var beint að fjármála- og efnahagsráðuneytinu en samkvæmt heimildum Viðskiptamoggans mun ráðuneytið ekki hafa orðið við að þeirri beiðni.

Lánveitandi WOW air setti ríkisábyrgð sem skilyrði

[links]WOW air hefur undanfarið átt í miklum lausafjárerfiðleikum. Fyrirtækið hefur ekki greitt mótframlag í lífeyris- og séreignarsparnað í þrjá mánuði. Auk þess skuldar flugfélagið Isavia ógreidd lendingargjöld yfir margra mánaða skeið. Isavia neitar þó að tjá sig um málefni einstakra viðskiptavina og því er ekki vitað hve há skuldin. Þá herma heimildir Markaðarins að WOW air hafi undanfarið þurft að hafa ávallt eina flugvél úr flota félagsins tiltæka á Keflavíkurflugvelli vegna skilmála Isaiva. Þá geti Isavia kyrrsett vélina ef flugfélagið lendir í greiðsluerfiðleikum.

Samkvæmt heimildum Viðskiptamoggans hefur lánveitandi WOW air sett ríkisábyrgð sem skilyrði fyrir lánafyrirgreiðslu þar sem ekki er talið að nægjanleg veð sé að hafa í rekstrarfjármunum félagsins sjálf. Fjármála- og efnahagsráðuneytið varð ekki við beiðni flugfélagsins um ríkisábyrgð en í ljósi þess að staða WOW air er metin fallvölt þá fylgj­­­ast stjórnvöld náið með stöð­unni.

Líkt og greint hefur verið frá leitaði Skúli Mogensen til forsvarsmanna Icelandair Group í lok síðasta mánaðar en stjórn Icelandair Group ákvað þá að ganga ekki til viðræðna við lággjaldaflugfélagið að sinni. Í umfjöllun Markaðarins í dag kemur aftur á móti fram að óformlegar þreifingar hafi verið á milli fulltrúa WOW air og Icelandair Group undanfarna daga um aðkomu síðarnefnda félagsins að því fyrrnefnda.

Ef skuldabréfaeigendurnir samþykkja skilmálana þá fær Skúli frest til aprílloka

Óvissa ríkir um framgang viðræðna WOW air og Indigo Partners en í lok febrúar gáfu félögin tvö sér mán­að­ar­frest til við­bót­ar til að klára við­ræðurnar. Þann 9. mars sendi WOW air síðan frá sér til­kynn­ingu til skulda­bréfa­eig­enda sinna um nýja skil­mála sem Indigo Partners hefur farið fram á að þeir sam­þykki til að aðkoma þeirra að WOW air geti gengið eft­ir. Í tilkynningunni kom fram að Indigo hefur hug á að fjár­festa allt að 90 millj­ónir dala, um ell­efu millj­arða króna, í WOW air. Jafnframt vilja for­svars­menn Indigo að eig­endur skulda­bréfa­flokks, sem var gef­inn út í sept­em­ber í fyrra, sam­þykki marg­þættar breyt­ingar á skil­málum hans sem feli í sér að end­­­ur­heimt­ur þeirra verða bundn­ar rekstr­­­ar­frammi­­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á næstu árum. Þannig geti end­­­ur­heimt­ur þeirra orðið 50 til 100 pró­­sent af upp­­­haf­­­legu virði bréf­anna. Indigo krafðist jafnframt fleiri breytinga á skilmálum.

Sam­­­kvæmt hinum nýju skil­­málum gæti hlut­ur Skúla Mogensen, stofn­anda og eina eig­anda WOW air, orðið á bil­inu 0 til 100 pró­­sent allt eft­ir því hvernig fé­lag­inu reiðir af á kom­andi árum. Fjár­­­­­fest­ing Indigo mun fela í sér, að hann eign­ist hluta­bréf í fé­lag­inu en veiti því einnig lán með breytirétti sem síð­­­ari geti orðið stofn að hluta­fé í fé­lag­inu.

Ef skuldabréfaeigendurnir samþykkja breytingarnar hefur WOW air frest til 29. apríl til þess að ná samkomulagi við Indigo Partners.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár