Icelandair hríðfellur við opnun markað eftir fréttir af slysi og WOW air

Flugslys í Eþíópíu og tíð­indi af WOW air eru bæði þættir sem gætu haft þau áhrif að gengi bréfa í Icelandair hríð­féllu við opnun mark­aða í morgun.

Hluta­bréf í Icelandair Group hafa lækkað um 9,42 pró­sent í virði það sem af er degi. Tvennt gerð­ist um helg­ina sem er lík­legt til að vera áhrifa­valdur á gengi bréfa í félag­inu. Annars vegna hrap­aði Boeing 737 MAX 8 vél í Eþíópu um helg­una með þeim afleið­ingum að 157 fór­ust. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem vél af þess­ari teg­und hefur farist, en sams­konar vél fórst í Jakarta í fyrra­haust.

Icelandair á þrjár MAX 8 vélar og á von á fleirum í nán­ustu fram­tíð. Kínversk loft­ferð­ar­yf­ir­völd hafa gripið til þess ráðs að kyrr­setja allar vélar af MAX 8 gerð sem kín­versk flug­fé­lög um ótil­tekin tíma, eða þar til að ástæður slysanna tveggja liggja fyrir. Cayman Airlines hefur tekið sömu afstöðu varð­andi vélar af MAX 8 gerð­inni sem það félag á. Icelandair ætlar hins vegar ekki að kyrr­setja sínar vélar.

[adspot]Haft er eftir Jens Þórð­ar­syni, fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­sviðs hjá Icelandair, í Frétta­blað­inu í dag að ótíma­bært sé að tengja slysin tvö saman og að enn sem komið er sé engin ástæða til að ótt­ast MAX 8 vél­arnar.

WOW air í öndunarvél, en á lífi

Hin tíð­indin sem urðu um helg­ina og snerta Icelandair snú­ast um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu sam­keppn­is­að­il­ans WOW air. Á laug­ar­dag sendi WOW air frá sér til­kynn­ingu til skulda­bréfa­eig­enda sinna um nýja skil­mála sem Indigo Partners hefur farið fram á að þeir sam­þykki til að aðkoma þeirra að WOW air geti gengið eftir.

Indigo hefur hug á að fjár­festa allt að 90 millj­ónir dala, um ell­efu millj­arða króna, í WOW air en for­svars­menn Indigo vilja að eig­endur skulda­bréfa­flokks, sem var gef­inn út í sept­em­ber í fyrra sam­þykki marg­þættar breyt­ingar á skil­málum hans sem feli í sér að end­­ur­heimt­ur þeirra verða bundn­ar rekstr­­ar­frammi­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á næstu árum. Þannig geti end­­ur­heimt­ur þeirra orðið 50 til 100 pró­sent af upp­­haf­­legu virði bréf­anna. Jafn­framt er óskað eftir því að vextir skulda­bréf­anna verði lækk­aðir úr 9 pró­sent í 7 pró­sent. Auk þess verði lengt í skulda­bréf­un­um, í stað þriggja ára eins og upp­­haf­­lega var lagt upp með er nú miðað við að bréf­in end­­ur­greið­ist nú á fimm árum. Farið er fram á að ábyrgðir tengdar skulda­bréf­unum verði felld niður auk þess að skulda­bréfin verði afskráð. Breyt­ingar sem skulda­bréfa­eig­end­urnir höfðu áður sam­þykkt runnu úr gildi um síð­ustu mán­aða­mót. Sam­­kvæmt hinum nýju skil­málum gæti hlut­ur Skúla Mogensen, stofn­anda og eina eig­anda WOW air, orðið á bil­inu 0 til 100 pró­sent allt eft­ir því hvernig fé­lag­inu reiðir af á kom­andi árum. Fjár­­­fest­ing Indigo mun fela í sér, að hann eign­ist hluta­bréf í fé­lag­inu en veiti því einnig lán með breytirétti sem síð­ari geti orðið stofn að hluta­fé í fé­lag­inu.

Enn frem­ur kveðið á í til­kynn­ing­unni að víkj­andi lán sem fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lag Skúla Mogensen, Tít­an, veitti WOW air og stefnt var að yrði end­­ur­greitt verði af­­skrif­að. Fjár­­hæð láns­ins sem nú er af­­skrifað nam 6 millj­­ón­um doll­­ara, jafn­­v­irði tæp­­lega 730 millj­­óna króna.

[adspot]Við­mæl­endur Kjarnans á mark­aði telja að til­kynn­ingin gefi til­efni til meiri bjart­sýni um að það tak­ist að bjarga WOW air. Miklar sögu­sagnir voru á floti í síð­ustu viku um að Indigo Partners væri farið frá samn­inga­borð­inu í kjöl­far þess að frestur til að ná nið­ur­stöðu í samn­ings­við­ræðum við skulda­bréfa­eig­endur var fram­lengdur í mánuð 28. febr­úar síð­ast­lið­inn og út spurð­ist að WOW air hefði leitað til Icelandair eftir því að end­ur­vekja við­ræður um kaup þess síð­ar­nefnda á WOW air. Þá fór ekki fram­hjá neinum að WOW air átti í vand­ræðum með að greiða út laun um síð­ustu mán­að­ar­mót og er í van­skilum með greiðslu á fram­lagi iðgjalda til líf­eyr­is­sjóða.

Skulda­bréfa­eig­endur eiga enn eftir að sam­þykkja hina breyttu skil­mála, en stærstur þeirra er banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Eaton Vance. Skúli Mogensen keypti auk þess hluta bréf­anna sjálfur og það gerðu sjóðir í stýr­ingu hjá GAMMA líka. Valdimar Ármann, for­stjóri GAMMA, sagði í við­tali við RÚV i gær að nýju skil­mál­arnir væru ákveðin von­brigði en að nið­ur­staðan væri þó skárri en hann hafði ótt­ast.

Miklar sveiflur í gengi yfir lengri tíma

Sveiflur á gengi bréfa í Icelandair hafa verið tíðar und­an­farin miss­eri. Ástæðan fyrir miklum sveiflum á gengi bréfa félags­ins á und­an­förnum mán­uðum má að miklu leyti rekja til tíð­inda af WOW air og rekstr­ar­erf­ið­leikum Icelandair, sem gaf út afkomu­við­var­anir á síð­asta ári þegar ljóst var að áætl­anir voru ekki að fara að stand­ast.

Mark­aðsvirði Icelandair hrundi til að mynda niður um 16 pró­sent eftir að upp­gjör félags­ins var birt snemma í febr­úar, en félagið tap­aði alls 6,7 millj­örðum króna á síð­asta ári. Eigið fé Icelandair var 56,5 millj­arðar króna í lok síð­asta árs en mark­aðsvirði félags­ins við opnum mark­aða í dag var ein­ungis 39,8 millj­arðar króna. Gera má ráð fyrir því að um tæp­lega fjórir millj­arðar króna hafi skaf­ast af virð­inu það sem af er degi.

Mark­aðsvirði Icelandair fór yfir 180 millj­arða króna í apríl 2016 og því hefur virði félags­ins dreg­ist saman um rúm­lega 140 millj­arða króna á tæp­lega þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár