Skúli gæti endað með 0 prósent hlut

Hlut­ur Skúla Mo­gen­sen, stofn­anda og eina eig­anda fé­lags­ins, gæti orðið á bil­inu 0 til 100 pró­sent allt eft­ir því hvernig fé­lag­inu reiðir næstu þrjú árin, sam­kvæmt nýrri til­kynn­ingu frá WOW air.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen Mynd: WOW air

Endanleg skipting milli Indigo Partners og Skúla Mogensen í WOW air veltur á hvernig fjárhagsstaða WOW air þróast á næstu þremur árum, samkvæmt tilkynningu frá flugfélaginu. Sam­kvæmt tilkynningunni gæti hlut­ur Skúla, stofn­anda og eina eig­anda fé­lags­ins orðið á bil­inu 0 til 100 prósent, allt eft­ir því hvernig fé­lag­inu reiðir af á kom­andi árum. Jafnframt segir í tilkynningu að virði Wow air sé lægra en áður hafi verið ráðgert í viðræðum félaganna. Þá er einnig gert ráð fyrir að víkjandi lán sem Skúli hefur veitt Wow air verði afskrifað.

Indigo hyggst setja meira í WOW

Í tilkynningu sem birt var á vef WOW air í morgun segir að ráðgert sé að fjárfestingu Indigo Parters í Wow air nemi um 90 milljónum dollara, eða sem samsvarar um 11 milljarða króna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Það þýðir að félagið hækki fyrra tilboð sitt um 15 milljónir dollara en félagið hafði áður lýst sig reiðubúið að leggja félaginu til allt að 46 milljónir dollara.

Jafnframt segir í tilkynningunni fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing fé­lags­ins leiði af sér að all­ar mögu­leg­ar end­ur­heimt­ur nú­ver­andi hlut­hafa byggi á rekstr­araf­komu fé­lags­ins á kom­andi árum. Í yf­ir­lýs­ing­unni er hins vegar ít­rekað að enn sé ekki sam­komu­lag komið á milli aðila. Þannig eigi enn eft­ir að ljúka áreiðan­leika­könn­un á rekstri fé­lags­ins.

Nýir skilmálar fyrir skuldabréfaeigendur

Þá þurfi skuldabréfaeigendur sem keyptu bréf í Wow air í sept­em­ber í fyrra að samþykkja nýja skil­mála sem feli í sér að end­ur­heimt­ur þeirra verða bundn­ar rekstr­ar­frammistöðu fyr­ir­tæk­is­ins á næstu árum. Þannig geti end­ur­heimt­ur þeirra orðið 50 til 100 prósent af upp­haf­legu virði bréf­anna. Jafnframt er óskað eftir því að vextir skuldabréfanna verði lækkaðir úr 9 prósent í 7 prósent. Auk þess verði lengt í skulda­bréf­un­um, í stað þriggja ára eins og upp­haf­lega var lagt upp með er nú miðað við að bréf­in end­ur­greiðist nú á fimm árum. Farið er fram á að ábyrgðir tengdar skuldabréfunum verði felld niður auk þess að skuldabréfin verði afskráð. Breytingar sem skuldabréfaeigendurnir höfðu áður samþykkt runnu úr gildi um síðustu mánaðamót.

Sam­kvæmt hinum nýju skilmálum gæti hlut­ur Skúla Mogensen, stofn­anda og eina eig­anda fé­lags­ins því orðið á bil­inu 0 til 100 prósent allt eft­ir því hvernig fé­lag­inu reiðir af á kom­andi árum. Fjár­fest­ing sjóðsins mun fela í sér, að hann eign­ist hluta­bréf í fé­lag­inu en veiti því einnig lán með breytirétti sem síðari geti orðið stofn að hluta­fé í fé­lag­inu

Skúli gef­i eft­ir víkj­andi lán

Enn fremur kveðið á í tilkynningunni að víkj­andi lán sem fjár­fest­ing­ar­fé­lag Skúla Mogensen, Tít­an, veitti WOW air og stefnt var að yrði end­ur­greitt verði af­skrifað. Fjár­hæð láns­ins sem nú er af­skrifað nam 6 millj­ón­um doll­ara, jafn­v­irði tæp­lega 730 millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár