WOW air ekki borgað mótframlagsgreiðslur í þrjá mánuði

WOW air á í miklum lausa­fjár­erf­ið­leikum og hefur ekki skilað mót­fram­lagi starfs­fólks í líf­eyr­is­sjóð og sér­eigna­líf­eyr­is­sparnað í þrjá mán­uði.

WOW air hefur ekki greitt mót­fram­lag í líf­eyris- og sér­eigna­sparnað í þrjá mán­uði, en félagið von­ast til þess að koma því í skil í þessum mán­uði, af því er haft er eftir Svan­hvíti Frið­riks­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins, á Vísi.

Fyr­ir­tækið hefur átt í miklum lausa­fjár­erf­ið­leikum og hefur ekki getað staðið skil á fyrr­nefndum greiðslum vegna þessa.

Um er að ræða greiðslur vegna nóv­em­ber og des­em­ber síð­asta árs auk jan­úar þessa árs en þær eru allar komnar fram yfir eindaga. 

Eins og greint var frá fyrir helgi, þá ætla WOW air og banda­ríska félagið Indigo Partners að taka sér mánuð til við­bót­ar, til 29. mars, til að reyna að ná sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu síð­ar­nefnda félags­ins í WOW air.

Stjórn­­völd fylgj­­ast nú náið með stöð­unni, eins og greint hefur verið frá í umfjöllun Kjarn­ans, og það við um rík­­is­­stjórn, yfir­­­menn Sam­­göng­u­­stofu, ISA­VIA og eft­ir­lits­­stofn­anna í fjár­­­mála­­kerf­inu, Seðla­­bank­ans og FME.

Rík­­is­­stjórnin átti fund seinni part­inn á fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn, þar sem mál­efni er tengd­ust WOW air voru meðal ann­­ars rædd, þó fund­­ur­inn hafi verið boð­aður af öðru til­­efn­i.

Í ljósi þess að staða WOW air er metin fall­völt, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, ef ekki tekst að útvega félag­inu fjár­­­magn á næstu mis­s­erum, þá hafa yfir­­völd sett sig í þær stell­ingar að illa geti farið en vonir standa þó alltaf til þess að það tak­ist að tryggja fjár­­­mögnun félags­­ins.

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­­­­ins 13,5 millj­­­­­ónum dala, jafn­­­­­virði tæp­­­­­lega 1,7 millj­­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár