Stjórnvöld fylgjast náið með framvindunni hjá WOW air

Málefni WOW air komu til umræðu hjá ráða­mönnum á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær. Reynt verður til þrautar að ljúka fjár­mögnun félags­ins.

Flestir skulda­bréfa­eig­endur WOW air, sem lögðu félag­inu til fjár­muni í skulda­bréfa­út­boði í haust þegar staða félags­ins var orðin alvar­leg, töldu það skyn­sam­leg­ast - og í rauna það eina raun­hæfa - að veita frek­ari frest til við­ræðna við banda­ríska Indigo Partners í þeirri von að sam­komu­lag náist um fjár­fest­ingu félags­ins til WOW air fyrir 29. mars.

Stjörnvöld fylgjast með hverju skrefi

Stjórn­völd fylgj­ast nú náið með stöð­unni, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og það við um rík­is­stjórn, yfir­menn Sam­göngu­stofu, ISAVIA og eft­ir­lits­stofn­anna í fjár­mála­kerf­inu, Seðla­bank­ans og FME. Rík­is­stjórnin átti fund seinni part­inn í gær, þar sem mál­efni er tengd­ust WOW air voru meðal ann­ars rædd, þó fund­ur­inn hafi verið boð­aður af öðru til­efni.

Í ljósi þess að staða WOW air er metin fall­völt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, ef ekki tekst að útvega félag­inu fjár­magn á næstu miss­erum, þá hafa yfir­völd sett sig í þær stell­ingar að illa geti farið en vonir standa þó alltaf til þess að það tak­ist að tryggja fjár­mögnun félags­ins. Arion banki á tölu­verða hags­muni undir sem lán­veit­andi, en bank­inn hefur nú þegar farið illa út úr falli flug­fé­lags þegar Primera Air fór í gjald­þrot í lok síð­asta árs.

Ljóst er að fall WOW air gæti haft víð­tækar nei­kvæðar afleið­ingar á hag­kerfi lands­ins, eins og fram hefur komið áður, og var meðal ann­ars ein sviðs­mynd stjórn­valda, sem greind var í fyrra, á þá leið að hag­vöxtur gæti farið niður um 3 pró­sent við fall félags­ins.

Und­an­farna mán­uði hefur þó tek­ist að vinna mik­il­vægan tíma til að end­ur­skipu­leggja stöð­una, bæði hjá Icelandair og WOW air, en félagið greip meðal ann­ars til sárs­auka­fullra aðgerða í des­em­ber þegar 350 starfs­menn misstu vinn­una hjá félag­inu í hag­ræð­ing­ar­að­gerðum. Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sagði við það til­efni að aðgerð­irnar hefðu verið nauð­syn­legar til að styrkja fjár­hag­inn og end­ur­skipu­leggja fram­tíð­ar­stefn­una, í takt við vænt­ingar og mat Indigo Partners.

Betra að veita andrými

Í sam­tölum Kjarnans við hluta af þeim sem tóku þátt í skulda­bréfút­boð­inu í sept­em­ber, hefur komið fram að það sé mat þeirra að best sé að veita eins mikið and­rými og þarf til að ljúka við­ræðum WOW air og Indigo Partners, þar sem fyrir liggi að miklir fjár­munir geti tap­ast ef allt fer á versta veg og félagið fer í þrot.

Það er helst að óánægja hafi verið uppi hjá banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Eaton Vance en það keypti skulda­bréf í útboði WOW air síð­ast­liðið haust fyrir um 10 millj­ónir evra, eða sem nemur tæp­lega 1,4 millj­arða króna. Fjallað var ítar­lega um við­skipti Eaton Vance á Íslandi og hvernig félagið hefur verið að selja eignir und­an­farin miss­eri, í umfjöllun í Mark­aðnum 16. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Aftur viðræður við Icelandair?

Vefsíðan Túristi greindi frá því í dag að Skúli hefði sett sig í sam­band við Icelandair í vik­unni til að kanna hvort mögu­leiki væri á því að taka upp þráð­inn á nýjan leik, en ekki reynd­ist áhugi á því. Greint var frá því á mbl.is að Skúli hefði haft beint sam­band við Boga Nils Bogason, for­stjóra Icelandair Group, en hann hefði lokað á þær. Icelandair hefur sjálft verið að glíma við þungan rekstur og tap­aði 6,8 millj­örðum króna á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs.

Viðræður WOW air og Indigo hafa staðið yfir síðan í nóv­em­ber þegar ljóst var að Icelandair ætl­aði sér ekki að kaupa WOW air. Hinn 81 árs gamli Bill Franke, stýrir félag­inu sem er með höf­uð­stöðvar í Arizona. Horft hefur verið til þess að WOW geti fengið um 9 millj­arða fjár­fest­ingu frá Indigo, að upp­fylltum skil­yrðum.

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­­ónum dala, sem jafn­­­­­gildir um 4,2 millj­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­­ins 13,5 millj­­­ónum dala, jafn­­­virði tæp­­­lega 1,7 millj­­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Mikið er í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf, eins og áður segir, enda hefur WOW air verið í lyk­il­hlut­verki við upp­gang í ferða­þjón­ustu og efna­hags­lífi lands­ins, á und­an­förnum árum, og flutt til lands­ins 600 til 700 þús­und ferða­menn á ári, með til­heyr­andi marg­feld­is­á­hrifum á efna­hag lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár